Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
22
D-riðill ÍSLAND
D-riðill NÍGERÍA
Sindri Sverrisson
Morgunblaðið
twitter.com/sindrisverris
Þrátt fyrir að þetta verði fyrsta
heimsmeistaramót Íslands þá býr ís-
lenski hópurinn yfir mikilli reynslu
ef talið er í árum og landsleikjum
sem leikmennirnir hafa spilað sam-
an. Landslið þessarar minnstu þjóð-
ar sem komist hefur á HM byrjaði
fyrst að láta til sín taka eftir að Lars
Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson
tóku við því undir lok árs 2011, og
síðan þá hefur liðið byggst að lang-
mestu leyti á sömu leikmönnum,
skipulagi og leikáætlun. Þessir leik-
menn hafa séð til þess að liðið hefur
verið á stöðugri uppleið síðustu ár
og þeir eru staðráðnir í að koma
heiminum öllum á óvart, líkt og þeir
gerðu með því að komast í 8-liða úr-
slit á sínu fyrsta stórmóti, EM 2016.
„Markmiðið okkar er skýrt og það
er að komast áfram úr riðlinum.
Þegar við komumst áfram þá þurf-
um við ekki að óttast nokkurn ein-
asta mótherja, því við munum hafa
skilið eftir tvö þessara liða; Argent-
ínu, Króatíu eða Nígeríu,“ sagði
Heimir Hallgrímsson þegar hann til-
kynnti hvaða 23 leikmenn hann tæki
með sér til Rússlands.
Lagerbäck vildi alltaf nota 4-4-2
leikkerfið en Heimir hefur opnað
frekar á þann möguleika að nota 4-
5-1 kerfi gegn sterkari andstæð-
ingum. Þannig getur Aron Einar
Gunnarsson fyrirliði fengið meiri að-
stoð við að verjast, með hinn yfirveg-
aða og vel spilandi Emil Hall-
freðsson sér við hlið, og Gylfi Þór
Sigurðsson fær frjálsara hlutverk
fyrir framan þá með sinn magnaða
spyrnufót. Það má færa góð rök fyr-
ir því að Aron og Gylfi séu mikilvæg-
ustu leikmenn íslenska liðsins og
þeir hafa myndað fullkomið miðju-
par um árabil, en báðir hafa þeir
glímt við meiðsli á lokasprettinum
fyrir HM. Gylfi jafnaði sig þó í tæka
tíð til að spila síðustu leiki Íslands
fyrir HM, en Aron er stórt spurning-
armerki. Birkir Bjarnason hefur
sýnt að hann getur ágætlega fyllt í
hans skarð á miðjunni.
Ef ekki koma til meiðsli þá spila
Birkir og Jóhann Berg Guðmunds-
son á köntunum eins og mörg síð-
ustu ár. Jóhann er fljótur og stöðugt
ógnandi með sinn góða vinstri fót en
Birkir hefur einnig gott auga fyrir
mörkum, og báðir eru gríðarlega
samviskusamir við að hjálpa til við
að verjast. Það á reyndar við um allt
liðið, jafnvel aðalframherjana Jón
Daða Böðvarsson, sem hættir aldrei
að hlaupa, og Alfreð Finnbogason
sem er einn besti markaskorari
þýsku 1. deildarinnar. Ísland mun
klárlega spila með varnarsinnuðum
hætti, hver einasti leikmaður, en
getur alltaf refsað andstæðingnum
með þaulæfðum skyndisóknum og
úr föstum leikatriðum, ekki síst í
gegnum löng innköst Arons fyr-
irliða. Markmiðið hefur alltaf verið
að eiga best skipulagða og agaða lið í
heimi en í liðinu er líka gullkynslóð
miðju- og sóknarmanna með mikla
einstaklingshæfileika, sem ættu að
vera að komast á hátind ferilsins
núna.
Hannes Þór Halldórsson hefur
verið mjög öruggur sem að-
almarkvörður Íslandsn síðustu sex
ár, með Kára Árnason og Ragnar
Sigurðsson fyrir framan sig. Mið-
varðaparið sló í gegn um alla Evrópu
með frammistöðu sinni á EM 2016
en síðan þá hefur Sverrir Ingi Inga-
son færst mun nær því að fá aðra
miðvarðastöðuna. Hinn 25 ára gamli
Hörður Björgvin Magnússon er há-
vaxinn en leikinn vinstri bakvörður,
og yngsti leikmaðurinn í væntanlegu
byrjunarliði. Hinn öskufljóti Birkir
Már Sævarsson á svo hægri bak-
varðarstöðuna líkt og síðustu ár.
Líklegt byrjunarlið: Hannes –
Birkir S., Kári, Ragnar, Hörður –
Jóhann, Aron, Emil, Birkir B. –
Gylfi – Jón Daði.
Geta þeir
komið öllum
á óvart, aftur?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ísland Gylfi Þór Sigurðsson fagnar ásamt Jóni Daða Böðvarssyni og Birki Bjarnasyni eftir að hafa komið Íslandi
yfir gegn Kósóvó í síðasta leiknum í undankeppni HM þar sem Ísland tryggði sér sæti í lokakeppninni 2018.
Heimir varlega í breytingar frá EM-
ævintýrinu Óljóst með fyrirliðann
Solomon Fowowe
Guardian Nigeria
twitter.com/Solomon/Fowowe
Frá því Gernot Rohr tók við þjálfun
nígeríska landsliðsins árið 2016 hef-
ur það tekið stórt skref fram á við,
bæði þegar kemur að liðsanda og
aga. Það er mikil samheldni í liðinu
sem er mjög andlega sterkt og það
gerir þá að erfiðum andstæðingi
fyrir hvaða lið sem er. Liðið er ungt
og fingraför þjálfarans sjást vel.
Rohr hefur búið til mjög stöðugt
skyndisóknalið sem gæti komið
mörgum á óvart á heimsmeist-
aramótinu.
Rohr hefur daðrað við mörg leik-
kerfi síðan hann tók við. Liðið spil-
aði 3-5-2 í nóvember á síðasta ári
þegar Nígería vann 4:2 sigur á Arg-
entínu en það verður að teljast lík-
legt að hann muni stilla upp í 4-2-
3-1 í Rússlandi þar sem áherslan
verður lögð á agaðan varnarleik og
hraðar skyndisóknir.
Þótt helstu styrkleikar liðsins fel-
ist í liðsheildinni treystir liðið líka á
gæði einstakra leikmanna. Rohr
treystir mikið á lykilmenn liðsins,
þótt hann gefi það ávallt út að það
sé liðsheildin sem skipti hann mestu
máli.
„Við erum ekki með leikmenn
eins og Kanu eða Okocha, sem voru
frábærir með landsliðinu. Styrkur
liðsins felst fyrst og fremst í sam-
vinnu og liðsheild,“ sagði Rohr í
samtali við Przeglad Sportowy.
„Fyrirliðinn okkar, John Obi Mikel
og Victor Moses eru ekki leikmenn
sem munu ráða úrslitum, líkt og
stjörnurnar frá níunda áratugnum.“
Hins vegar hefur Mikel gríð-
arlega mikil áhrif á allan leik liðsins.
Þessi fyrrverandi miðjumaður
Chelsea stýrir leik Nígeríu og hrað-
anum með ró sinni og sending-
argetu.
Fyrir aftan Mikel eru tveir varn-
arsinnaðir miðjumenn, Ogenyi
Onazi og hinn hæfileikaríki Wilfred
Ndidi. Þeir vinna mikið á miðsvæð-
inu og verja svæðið fyrir framan
vörnina. Þeir eru báðir mjög sterkir
í að brjóta upp sóknir andstæðing-
anna en sóknargeta þeirra er minni
og er þetta helsta gagnrýnin sem
liðið hefur fengið á sig. Liðið er
lengi að snúa vörn í sókn þegar Mi-
kel nýtur ekki við.
Rohr hefur reynt að leysa þetta
vandamál með því að færa Mikel
meira inn á miðsvæðið, nær þeim
Onazi og Ndidi og hann spilar því
nær miðjunni en framherjanum,
Odion Ighalo. Hann er mjög hreyf-
anlegur í fremstu víglínu sem gerir
það að verkum að hann er ekki jafn
einangraður fremst á vellinum.
Hann kemur vel til baka og sækir
boltann, getur haldið honum og þá
er hann líka góður í að finna sér
pláss inni í vítateig andstæðing-
anna. Hann er framherji númer eitt
hjá liðinu en Kelechi Iheanacho er
alltaf tilbúinn að koma inn af bekkn-
um.
Í sóknarleik sínum treystir liðið
mikið á hraða og getu Victor Moses,
vængmanns Chelsea. Moses er
töframaðurinn i nígeríska liðinu
sem getur búið til hluti upp á sitt
eindæmi. Hann er í mun meira
sóknarhlutverki hjá landsliðinu en
með Chelsea sem gerir hann að ein-
um mikilvægasta leikmanni liðsins.
Rohr hefur lagt mikla áherslu á
agaðan varnarleik og samheldni.
Það endurspeglast í miðvörðum
liðsins, þeim Leon Balogun og Willi-
am Troost-Ekong. Þeir bindast
sterkum böndum og samstarf þeirra
hefur styrkt varnarleik liðsins mikið
og það er erfitt að brjóta hann á
bak aftur. Balogun er góður með
boltann á meðan Troost-Ekong er
mjög sterkur í návígjum og þeir
henta leikstíl liðsins afar vel.
Líklegt byrjunarlið: Uzoho –
Abdullahi, Troost-Ekong, Balogun,
Idowu – Ndidi, Onazi – Iwobi,
Mikel, Moses – Ighalo.
Markverðir: 12 Shehu Abdullahi Bursaspor (Tyr) ’93 17 Ogenyi Onazi Trabzonspor (Tyr) ’92
1 Ikechukwu Ezenwa Enyimba ’88 20 Chidozie Awaziem Nantes (Fra) ’97 19 John Ogu Hap.Beer Sheva (Ísr) ’88
16 Daniel Akpeyi Chippa (S.Ar) ’86 21 Tyronne Ebuehi Den Haag (Hol) ’95
23 Francis Uzoho La Coruna (Sp) ’98 22 Kenneth Omeruo Kasimpasa (Tyr) ’93 Sóknarmenn:
7 Ahmed Musa CSKA Moskva (Rús) ’92
Varnarmenn: Miðjumenn: 9 Odion Ighalo Changchun (Kína) ’89
2 Brian Idowu Amkar Perm (Rús) ’92 4 Wilfred Ndidi Leicester (Eng) ’96 11 Victor Moses Chelsea (Eng) ’90
3 Elderson Echiéjilé Cercle (Bel) ’88 8 Oghenekaro Etebo Las Palmas (Sp) ’95 13 Simeon Nwankwo Crotone (Ít) ’92
5 William Troost-Ekong Bursaspor (Tyr) ’93 10 John Obi Mikel Tianjin (Kína) ’87 14 Kelechi Iheanacho Leicester (Eng) ’96
6 Leon Balogun Mainz (Þýs) ’88 15 Joel Obi Torino (Ít) ’91 18 Alex Iwobi Arsenal (Eng) ’96
Lið Nígeríu Þjálfari: Gernot Rohr ÞýskalandiNígería hefur
tekið stór
skref frá 2016
AFP
Nígería Victor Moses, leikmaður enska liðsins Chelsea, er aðalmaðurinn í
sóknarleik Nígeríu. Hann hefur skorað 11 mörk í 34 landsleikjum.
Samheldið og agað lið hjá Rohr
með Mikel og Moses sem lykilmenn