Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 26 F-riðill ÞÝSKALAND F-riðill MEXÍKÓ Christoph Biermann 11 Freunde twitter.com/chbiermann Í augum flestra er Álfukeppnin lítið annað en hugarfóstur útvalinna stjórnarmanna hjá Alþjóðaknatt- spyrnusambandinu FIFA. Ári áður en heimsmeistaramótið fer fram taka gestgjafar HM á móti sex álfu- meisturum og ríkjandi heimsmeist- urum. Það eru ekki margir sem hafa áhuga á Álfukeppninni, fyrir utan skipuleggjendur mótsins sem fá tækifæri til þess að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir heims- meistaramótið sjálft. Leikmenn þýska landsliðsins voru ekki spenntir fyrir því að taka þátt í mótinu eftir erfitt og strembið tíma- bil með félagsliðum sínum. Það var ákveðinn léttir fyrir þá þegar Joac- him Löw tjáði þeim á síðasta ári að hann ætlaði sér að taka óreynda og minna þekkta spámenn með sér til Rússlands. Margir fastamenn liðsins fengu hins vegar aðvörun þegar þeir horfðu á leiki liðsins í sjónvarpinu því ákvörðun Löw virtist margborga sig. Leikmenn eins og Leon Go- retzka, Lars Stindl, Timo Werner og Antonio Rüdiger unnu ekki bara Álfukeppnina, þeir sýndu það og sönnuðu að þeir eru ekki bara góðir varamenn. Þeir gerðu alvöru tilkall til byrjunarliðssætis með frammi- stöðu sinni. Margir stuðningsmenn þýska liðsins, sem voru margir hverjir orðnir þreyttir á landsliðinu, urðu allt í einu spenntir yfir þessum nýju og öflugu leikmönnum. Álfukeppnin 2017 hristi því heldur betur upp í hlutunum. Það er aftur samkeppni um stöður í liðinu og Löw hefur nú ennþá breiðari hóp til þess að velja úr. Ekki bara vegna þess að leikmennirnir stóðu sig vel í Álfu- keppninni, það eru líka tveir leik- menn til taks sem hafa verið afar óheppnir með meiðsli undanfarin ár. Gündogan og Reus Annar þeirra er Ilkay Gündogan, miðjumaður Manchester City. Þrátt fyrir að hann spili utan Þýskalands, þá eru margir stuðningsmenn lands- liðsins ánægðir að sjá hann loksins klára heilt tímabil með félagsliði sínu án þess að meiðast alvarlega. Gündogan væri með talsvert fleiri landsleiki en 24 á bakinu ef ekki væri fyrir meiðslasögu hans. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir sjö árum og væri heimsmeistari í dag ef meiðsli hefðu ekki haldið honum frá keppni 2014 og á EM 2016. Marco Reus er annar leikmaður sem hefur verið afar óheppinn með meiðsli. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2011 en er þrátt fyrir það með einungis fimm fleiri lands- leiki á bakinu en Gündogan. Hann missti af HM 2014 eftir að hafa meiðst í lokaleik liðsins fyrir mótið. Þá missti hann ef EM 2016 vegna tognunar aftan í læri sem hélt hon- um frá keppni í nokkra mánuði. Þetta þýðir að Löw er með tvo frá- bæra leikmenn til taks, sem hafa báðir mikið að sanna með þýska landsliðinu. Landsliðsþjálfarinn er án alls vafa ánægður með stöðuna á þýska hópnum, sérstaklega þar sem hann hefur nú marga valkosti í hverja stöðu. Löw er ekki bara hrif- inn af því að sníða leikkerfi liðsins að andstæðingum Þjóðverja með því að fara úr 4-2-3-1 í 4-3-3. Hann hefur líka notast við 3-4-3 og 3-5-2 og þá er Þjóðverjinn þekktur fyrir að breyta um áherslur í miðjum leik með kraft- miklum innáskiptingum. Líklegt byrjunarlið: Ter Stegen – Kimmich, Boateng, Hummels, Hector – Khedira, Kroos – Müller, Özil, Reus – Werner. Markverðir: 15 Niklas Süle Bayern ’95 13 Thomas Müller Bayern ’89 1 Manuel Neuer Bayern ’86 16 Antonio Rüdiger Chelsea (Eng) ’93 14 Leon Goretzka Schalke ’95 12 Kevin Trapp PSG (Fra) ’90 17 Jeróme Boateng Bayern ’88 19 Sebastian Rudy Bayern ’90 22 Marc-André ter Stegen Barcelona (Sp) ’92 18 Joshua Kimmich Bayern ’95 20 Julian Brandt Leverkusen ’96 21 Ilkay Gündogan Man.City (Eng) ’90 Varnarmenn: Miðjumenn: 2 Marvin Plattenhardt Hertha ’92 6 Sami Khedira Juventus (Ít) ’87 Sóknarmenn: 3 Jonas Hector Köln ’90 7 Julian Draxler PSG (Fra) ’93 9 Timo Werner Leipzig ’96 4 Matthias Ginter Gladbach ’94 8 Toni Kroos Real Madrid (Sp) ’90 11 Marco Reus Dortmund ’89 5 Mats Hummels Bayern ’88 10 Mesut Özil Arsenal (Eng) ’88 23 Mario Gómez Stuttgart ’85 Lið Þýskalands Þjálfari: Joachim LöwÁlfukeppnin hristi upp í Þjóðverjum AFP Þýskaland Toni Kroos er í stóru hlutverki á miðjunni hjá þýsku heims- meisturunum og er einn þeirra leikjahæstu manna með 83 landsleiki.  Nýir og spennandi leikmenn gerðu tilkall til sætis í liði heimsmeistaranna Manuel Portillo Televisa twitter.com/mapoga227 Juan Carlos Osorio hefur sett sitt mark á mexíkóska liðið: örar leik- mannabreytingar og taktísk aðlög- unarhæfni. Í raun og veru geta and- stæðingar Mexíkó í Rússlandi ekki verið vissir um hverju þeir munu mæta í Rússlandi: það er mjög ófyr- irsjáanlegt hvernig þeir munu leggja upp leikinn og hegða sér inni á vellinum. Liðið hans Osorios er eins og kameljón sem lagar sig að mótherj- anum og þjálfarinn veit að fótbolt- inn sem er spilaður breytist eftir því hverjir mætast hverju sinni. Leik- skipulag og uppstilling mótast því eftir styrkleikum andstæðingana. „Ég held að við verðum að vera samblanda af tveimur hlutum,“ seg- ir hann. „Við verðum að spila á okk- ar eigin styrkleikum en einng virða mótherjann. Við verðum að sjálf- sögðu að vera trúir okkar eigin leik- stíl vegna þess að þannig búum við til færin okkar. Ég tel að við séum á réttri leið.“ Osario hefur aðallega spilað 4-3-3 þrátt fyrir að Mexíkóar hafi í gegn- um tíðina náð góðum árangri með 3-4-3. Sigur á Úrúgvæ í Suður- Ameríkukeppninni í Bandaríkj- unum 2016 er aðeins eitt dæmi um það. Þetta mexíkóska lið spilar framarlega með varnarlínuna. Það er ekki óalgengt fyrir Mexíkóa að halda boltanum vel á vallarhelmingi andstæðinganna með fjóra öftustu varnarmenn sína á miðjulínunni. Varnarmenn stundum í vanda En að spila svona sóknarþenkj- andi fótbolta getur leitt til vanda- mála. Varnarmennirnir eiga á köfl- um í vandræðum með staðsetningar og að vita hvenær á að pressa og hvenær að bakka. Á miðjunni hefur Osario ekki enn tekist að finna leikmann sem á að leysa stöðu sem gjarnan er tengd við treyju númer 6. Hann vill leik- mann sem er góður í loftinu en jafnframt nógu tæknilega góður til þess að spila boltanum út úr vörn- inni. Þar sem Rafa Márquez er kominn af léttasta skeiði og mun fljótlega leggja skóna á hilluna hef- ur Osario spilað Héctor Herrera í þessu hlutverki. Því miður er Porto-leikmaðurinn ekki alltaf rétt staðsettur, sem getur leitt til þess að mikið pláss skapast milli varnar og miðju. Óvissan er minnst í sóknar- leiknum. Osario vill hafa tvo væng- menn sem geta komið með fyrir- gjafir eða sent klókar skásendingar inn í teiginn á framherja sem getur ráðist á þá bolta sem þeir fá auk þess að búa til pláss fyrir miðju- mennina sem koma inn í teiginn á eftir þeim. Líklegt byrjunarlið: Ochoa – Salcedo, Reyes, Moreno, Layún – J.Dos Santos, Herrera, Guardado – Vela, Hernández, Lozano. Markverðir: 15 Héctor Moreno R.Sociedad (Sp) ’88 20 Javier Aquino Tigres UANL ’90 1 José Corona Cruz Azul ’81 16 Héctor Herrera Porto (Por) ’90 23 Jesús Gallardo Pumas UNAM ’94 12 Alfredo Talavera Toluca ’82 21 Edson Álvarez América ’97 13 Guillermo Ochoa Standard (Bel) ’85 Sóknarmenn: Miðjumenn: 8 Marco Fabián E.Frankfurt (Þýs) ’89 Varnarmenn: 6 Jonathan Dos Santos Galaxy (Ban) ’90 9 Raúl Jimenez Benfica (Por) ’91 2 Hugo Ayala Tigres UANL ’87 7 Miguel Layún Sevilla (Sp) ’88 11 Carlos Vela Los Angeles (Ban) ’89 3 Carlos Salcedo E.Frankfurt (Þýs) ’93 10 Giovani Dos Santos Galaxy (Ban) ’89 14 Javier Hernández West Ham (Eng) ’88 4 Rafael Márquez Atlas ’79 17 Jesús Corona Porto (Por) ’93 19 Oribe Peralta América ’84 5 Diego Reyes Porto (Por) ’92 18 Andrés Guardado Real Betis (Sp) ’86 22 Hirving Lozano PSV (Hol) ’95 Lið Mexíkó Þjálfari: Juan Carlos Osorio KólumbíuMexíkóar eru mjög ófyrir- sjáanlegir AFP Mexíkó Javier Hernández framherji West Ham er markahæsti landsliðsmaður Mexíkó frá upphafi með 49 mörk.  Osorio breytir ört um menn og leik- aðferð og lagar sig að mótherjunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.