Morgunblaðið - 13.06.2018, Page 8

Morgunblaðið - 13.06.2018, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 8 A-riðill EGYPTALAND A-riðill SÁDI-ARABÍA Ahmad Yousef Kingfut.com twitter.com/EgyptianPlayers Egyptar eru vissulega með einn besta knattspyrnumann heims í dag, Mohamed Salah. Þrátt fyrir það spilar liðið afar varnarsinnaðan fótbolta undir stjórn Héctor Cúper. Í fyrstu 32 leikjum hans með liðið fengu Egyptar á sig 18 mörk. Síðan í maí á síðasta ári hefur liðið ekki tapað leik með meira en einu marki. Leikmenn liðsins eru meðvitaðir um það að áherslur þjálfarans liggja í varnarleiknum og mun hann stilla upp 4-2-3-1 með þá Mohamed Elneny og Tarek Hamed sem varnarsinnaða miðjumenn. Markvörðurinn 45 ára Þá mun Essam El Hadary byrja í markinu, þrátt fyrir að vera far- inn að nálgast fimmtugt. „Ég er 45 ára gamall, ég mun ekki reyna þræta fyrir það, en fyrir mér er aldur afstæður og einungis númer á blaði.“ Fyrir framan hann verða þeir Mohamed Abdelshafy (Karim Ha- fez náði ekki að jafna sig af meiðslum) í vinstri bakverðinum. Ali Gabr og Ahmed Hegazi, varn- armenn West Bromwich Albion á Englandi, verða miðverðir liðsins og þá mun hinn fjölhæfi Ahmed Fathi leysa stöðu hægri bakvarðar. Hávaxnir miðverðir fá á sig mörk eftir fyrirgjafir Helsti veikleiki Egypta hefur verið mörkin sem þeir hafa verið að fá á sig og það er eitthvað sem þeir verða að laga fyrir HM. Af þeim 18 mörkum sem þeir hafa fengið á sig undir stjórn Cúper hafa 13 komið eftir fyrirgjafir. Það er í raun ótrúlegt því meðalhæð þeirra Hegazi og Gabr er 195 sentímetrar og liðinu hefur reglu- lega verið hrósað fyrir góðan varn- arleik. Cúper hefur notast við þrjá sóknarsinnaða leikmenn fyrir aftan framherjann. Mahmoud Hassan (kallaður Trézéguet), Abdallah Sa- id og Mohamed Salah munu skipa sóknartríóið og vonast Trézéguet til þess að halda uppteknum hætti með landsliðinu eftir frábært tíma- bil með Kasimpasa í Tyrklandi. „Ég vonast til þess sýna fram á sambærilega frammistöðu með landsliðinu í Rússlandi og ég hef gert í Tyrklandi á þessari leiktíð. Ég vil hjálpa landsliðinu eins mikið og ég get,“ sagði leikmaðurinn. Egyptar munu treysta mikið á Mohamed Salah á hægri kantinum og að hann sé klár í slaginn eftir meiðsli. Hann er snöggur, sterkur og skorar mörk sem Egyptar þurfa nauðsynlega á að halda. Kantmaður Liverpool þarf nú að einbeita sér að fótboltanum eftir að hafa átt í útistöðum við knatt- spyrnusamband Egypta vegna ímyndarréttar leikmannsins. Said stýrir sóknarleiknum Said mun stýra sóknarleiknum en hlutverk þess sem verður í stöðu framherjans verður að vinna mjög óeigingjarnt starf fyrir liðið. Hann verður að pressa andstæð- ingana framarlega á vellinum, elta allar langar sendingar og halda boltanum fyrir liðsfélaga sína á meðan liðið færir sig framar á völlinn. Egyptar hafa verið í vandræð- um með að skora mörk en á hinn bóginn verður erfitt fyrir önnur lið að brjóta þá á bak aftur. Liðið tapaði fyrir Portúgal og Grikk- landi í vináttuleikjum fyrr á þessu ári, 2:1 og 1:0, en þrátt fyrir það sýna úrslitin að hvaða lið sem er getur átt erfiðan leik á móti Egyptalandi. Líklegt byrjunarlið: El Hadary – Abdelshafy, Gabr, Hegazi, Fathi – Elneny, Tarek – Salah, Said, Tré- zéguet – Mohsen. Markverðir: 12 Ayman Ashraf Al Ahly ’91 19 Abdallah Said Kuopion (Fin) ’85 1 Essam El Hadary Al Taawoun (S.Ar) ’73 13 Mohamed Abdelshafy Al Fateh (S.Ar) ’85 21 Trézéguet Kasimpasa (Tyr) ’94 16 Sherif Ekramy Al Ahly ’83 15 Mahmoud Hamdy Zamalek ’95 23 Mohamed Elshenawy Al Ahly ’88 20 Samir Saad Al Ahly ’89 Sóknarmenn: 9 Marwan Mohsen Al Ahly ’89 Varnarmenn: Miðjumenn: 10 Mohamed Salah Liverpool (Eng) ’92 2 Ali Gabr WBA(Eng) ’89 4 Omar Gaber Los Angeles (Ban) ’92 11 Kahraba Al-Ittihad (S.Ar) ’94 3 Ahmed Elmohamady A.Villa (Eng) ’87 5 Sam Morsy Wigan (Eng) ’91 14 Ramadan Sobhy Stoke (Eng) ’97 6 Ahmed Hegazy WBA (Eng) ’91 8 Tarek Hamed Zamalek ’88 18 Shikabala Al Raed (S.Ar) ’86 7 Ahmed Fathi Al Ahly ’84 17 Mohamed Elneny Arsenal (Eng) ’92 22 Amr Warda Atromitos (Gri) ’93 Lið Egyptalands Þjálfari: Héctor Cúper ArgentínuVarnarsinnað- ir með Salah í framlínunni AFP Egyptaland Essam El Hadary, 45 ára gamall markvörður Egypta, og Mohamed Salah, stjarna liðsins, slá á létta strengi á æfingu liðsins fyrir HM.  Egyptar fá ekki mörg mörk á sig og treysta á að Salah skori mörkin Gregory Wilcox Arab News twitter.com/gregorydwilcox Juan Antonio Pizzi tók sér sæti á bekknum sem þjálfari Sádi-Arabíu í fyrsta skipti í nóvember árið 2017. Hann er enn að bíða eftir fyrsta keppnisleik sínum sem þjálfari Grænu fálkanna, sem verður gegn Rússum í upphafsleik HM. Á þessu sjö mánaða tímabili spilaði argent- ínski þjálfarinn eins marga æfinga- leiki og hann gat til þess að fá góða mynd af því hvar liðið stendur og hvað þarf að laga áður en augu heimsins beinast að þeim 14. júní. Í undankeppninni í stjórnartíð Bert Van Marwijk spiluðu Grænu fálkarnir yfirleitt 4-3-3, þar sem þeir sátu til baka gegn betri liðunum og reyndu að beita hröðum skyndisóknum þegar þeir unnu boltann. Pizzi hefur verið að reyna að fá leikmenn liðsins til þess að spila meira út úr vörninni. Það hef- ur virkað upp að vissu marki. Í sig- urleikjum gegn Alsír og Grikklandi spilaði liðið ljómandi vel og sýndi miklar framfarir frá 4:0 ósigri gegn Belgum. Liðið hefur haldið boltanum betur og fært hann hratt milli manna. Liðið getur einnig hægt á leikjum, stöðvað flæði andstæðingsins og ver- ið almennt pirrandi lið að spila á móti. Pizzi, fyrrverandi þjálfari Síle, mun líklega tefla fram þéttu 4-2-3-1 kerfi í Rússlandi þar sem fremstu þrír eru tilbúnir að færa sig aftar á völlinn til þess að tryggja að það sé nóg af leik- mönnum á miðsvæðinu. Þar sem markaskorun gæti reynst vandamál munu Grænu fálkarnir ein- beita sér að því að vera þéttir. Þeir hafa reynslu í varnarlínunni en hún er mögulega á kostnað hraða auk þess að leikmennirnir hafa lítið reynt sig gegn heimsklassa framherjum. Osama Hawsawi, sem er stór og sterkur, er leiðtogi þeirra í vörninni. Hann er hægari en áður en Omar Ot- hman sem spilar við hlið hans hefur staðið sig frábærlega á þessari leik- tíð. Það eru nokkrir ágætis mögu- leikar í bakvarðarstöðunum með mönnum á borð við Yasir Al-Sharani, sem er fljótur að koma upp völlinn og getur spilað bæði hægra og vinstra megin. Hinn reynslumikli Taisser Al- Jassam mun spila með hinum van- metna Abdullah Otayf á miðjunni. Þeir eru báðir öruggir með boltann þó að Otayf muni sennilega ekki fá eins mörg tækifæri til að koma upp völlinn eins og hann vildi. Sóknarmennirnir þrír standa upp úr. Salem Al-Dawsari, Yahia Al- Shehri og Fahad Al-Muwallad eru skapandi leikmenn og hafa hæfileik- ana til að opna varnir asískra liða. Hvort þeim takist það á stóra sviðinu verður að koma í ljós. Tríóið eyddi seinni hluta síðasta tímabils að láni hjá spænskum félögum þar sem þeir fengu aðeins tvo leiki samtals. Hversu beittir þeir verða í Rússlandi gæti gert útslagið um hveru vel liðinu gengur. Kantmennirnir eru færir um að komast á bak við varnir andstæð- inganna og ef Al-Shehri getur fundið sér pláss fyrir aftan framherjann gætu Grænu fálkarnir skapað vand- ræði. Nawaf Al-Abeb, sem var mik- ilvægur í undankeppninni, er annar leikmaður sem getur búið til hluti fyr- ir liðið en hann hefur átt við meiðsli að stríða og missir af mótinu. Markaskorun er vandamál. Mo- hammad Al-Sahlawi er líklegur til að vera fremstur en það eru fleiri kostir eins og til dæmis Muhannad Asiri sem er sterkur í loftinu og getur hald- ið boltanum betur. Líklegt byrjunarlið: Almosailem – Al-Burayk, Omar, Osama, Yasir – Otayf, Taiseer – Fahah, Yahaia, Salem – Al-Sahlawi. Markverðir: 6 Mohammed Al-Burayk Al Hilal ’92 14 Abdullah Otayf Al Hilal ’92 1 Abdullah Al-Mayouf Al Hilal ’87 13 Yasir Al-Sharani Al Hilal ’92 15 Abdullah Al-Khaibari Al Shabab ’96 21 Yasser Al Mosailem Al Ahli ’84 23 Motaz Hawsawi Al Ahli ’92 16 Hussain Al-Moqahwi Al Ahli ’88 22 Mohammed Al-Owais Al Ahli ’91 17 Taiseer Al-Jassam Al Ahli ’84 Miðjumenn: 18 Salem Al-Dawsari Villarreal (Sp) ’91 Varnarmenn: 7 Salman Al-Faraj Al Hilal ’89 2 Mansour Al-Harbi Al Ahli ’87 8 Yahia Al-Shehri Leganés (Sp) ’90 Sóknarmenn: 3 Osama Hawsawi Al Hilal ’84 9 Hatan Bahbir Al Shabab ’92 10 Mohammed Al-Sahlawi Al Nassr ’87 4 Ali Al Bulayhi Al Hilal ’89 11 Abdulmalek Al-Khaibri Al Hilal ’86 19 Fahad Al-Muwallad Levante (Sp) ’94 5 Omar Othman Al Nassr ’85 12 Mohamed Kanno Al Hilal ’94 20 Muhannad Asiri Al Ahli ’86 Lið Sádi-Arabíu Þjálfari: Juan Antonio Pizzi ArgentínuSkapandi leik- menn í fram- línu Sádanna AFP Sádi-Arabía Mohammad Al-Sahlawi er aðal markaskorari Sádi-Araba með 28 mörk í 40 landsleikjum, m.a. fimm í einum leik í undankeppninni.  Nýi þjálfarinn stýrir liðinu í fyrsta mótsleik gegn Rússum í Moskvu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.