Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 10 B-riðill PORTÚGAL B-riðill SPÁNN Nuno Travassos Maisfutebol twitter.com/nunotravassos Portúgalar mæta til leiks á heims- meistaramótið sem ríkjandi Evr- ópumeistarar og því ljóst að það mun ekkert lið vanmeta þá á mótinu. Það þýðir hins vegar líka að leikmenn liðs- ins eru meðvitaðir um hvað þeir geta og það er sjálfstraust í liðinu. Fernando Santos, þjálfari Portú- gals, vill ekki meina að hans menn séu líklegir til þess að vinna HM en hann hefur hins vegar gefið það út að markmiðið sé að gera það sama og á Evrópumeistaramótinu í Frakklandi sumarið 2016. Tveimur árum eftir að liðið varð Evrópumeistari er liðið að glíma við vandamál í öftustu víglínu. Miðverð- irnir sem spiluðu í Frakklandi eru ekki á sama stað og þeir voru fyrir tveimur árum og það hefur reynst erfitt að finna arftaka þeirra. EM-hetja skilin eftir heima Santos greindi frá því á dögunum að hann væri opinn fyrir því að prófa sig áfram með leikmenn sem hafa aldrei spilað landsleik fyrir Portúgal. Hann kallaði Rúben Dias, varn- armann Benfica, inn í hópinn en hann spilaði aldrei vegna meiðsla. Portúgal er hins vegar með marga öfluga sóknarmenn innan sinna raða og Eder, hetjan frá úrslitaleiknum árið 2016, verður skilinn eftir heima. „Ég get skilið að þetta sé erfitt fyrir menn, tilfinningalega, en við skuldum honum ekki neitt. Ég kallaði hann á minn fund og útskýrði það fyrir hon- um af hverju ég myndi ekki velja hann,“ sagði Santos eftir að hann hafði valið hópinn sem fer til Rúss- lands. Leikmenn eins og Bernardo Silva, André Silva og Gelson Martins eru allt beittari sóknarmenn. Santos hef- ur hins vegar haldið sig við það leik- kerfi sem skilaði liðinu Evrópumeist- aratitlinum. Santos skilur ekki gagnrýnina Þrátt fyrir að liðið hafi orðið Evr- ópumeistari sumarið 2016 var það talsvert gagnrýnt fyrir sína frammi- stöðu á mótinu en Santos hefur ekki áhyggjur af gagnrýnisröddum. „Við erum hérna til þess að vinna og við spilum á styrkleikum liðsins. Þetta eru hlutirnir sem ég vil sjá frá leikmönnum mínum. Ég skil ekki fólk sem vill sjá frábæra frammistöðu en léleg úrslit. Ég verð ringlaður þegar að ég heyri þannig ummæli.“ Santos mun að öllum líkindum halda tryggð við 4-4-2 leikkerfið og nota 4-3-3 kerfið sem varaplan. Cris- tiano Ronaldo mun leiða framlínuna ásamt André Silva og liðið mun spila agaðan varnarleik og beita síðan skyndisóknum. Líklegt byrjunarlið: Rui Patrício – Cédric, Pepe, Bruno Alves, Raphaël Guerreiro – Bernardo Silva, Joao Moutinho, William Carvalho, Joao Mário – André Silva, Cristiano Ronaldo. Markverðir: 13 Rúben Dias Benfica ’97 14 William Carvalho Sporting ’92 1 Rui Patrício Sporting ’88 15 Ricardo Pereira Porto ’93 16 Bruno Fernandes Sporting ’94 12 Anthony Lopes Lyon (Fra) ’90 19 Mário Rui Napoli (Ít) ’91 23 Adrien Silva Leicester (Eng) ’89 22 Beto Göztepe (Tyr) ’82 21 Cédric Southampton (Eng) ’91 Sóknarmenn: Varnarmenn: Miðjumenn: 7 Cristiano Ronaldo Real Madrid (Ít) ’85 2 Bruno Alves Rangers (Skot) ’81 4 Manuel Fernandes Lok.Moskva (Rús) ’86 9 André Silva Milan (Ít) ’95 3 Pepe Besiktas (Tyr) ’83 8 Joao Moutinho Mónakó (Fra) ’86 17 Goncalo Guedes Valencia (Sp) ’96 5 Raphaël Guerreiro Dortmund (Þýs) ’93 10 Joao Mário West Ham (Eng) ’93 18 Gelson Martins Sporting ’95 6 José Fonte Dalian Yifang (Kína) ’83 11 Bernardo Silva Man.City (Eng) ’94 20 Ricardo Quaresma Besiktas (Tyr) ’83 Lið Portúgals Þjálfari: Fernando SantosÆtla að fylgja eftir árangrin- um á EM AFP Portúgal Cristiano Ronaldo og Joao Mario léttir í lund á landsliðsæfingu Portúgala. Ronaldo á bæði leikjamet og markamet portúgalska landsliðsins en hann hefur skorað 81 mark í 150 landsleikjum.  Ronaldo fremstur í öflugri sókn- arlínu en vörnin er vandamálið José Sámano El Pais Twitter.com/diegotorresro Leikmenn spænska landsliðsins eru byrjaðir að brosa á nýjan leik. Eftir vonbrigðin á HM 2014 og töpin á EM 2016 hafa Spánverjar snúið við taflinu. Liðið í dag minnir um margt á liðið sem vann þrjú stórmót í röð á árunum 2008 til 2012. Julen Lopetegui, sem tók við liðinu af Vicente del Bosque eftir EM 2016 hefur endurnýjað liðið að vissu leyti, án þess þó að hafa þurft að byggja það upp frá grunni. Það er ótrúlegt að liðinu hafi tekist að sýna sitt rétta andlit með nánast sömu hryggjarsúlu og var að spila þegar Spánverjar ollu einna mestu vonbrigðunum. Átta leikmenn sem spiluðu í tapinu gegn Ítalíu á EM í Frakklandi voru lyk- ilmenn í undankeppninni fyrir HM í Rússlandi (David de Gea, Sergio Ramos, Gerard Piqué, Jordi Alba, Sergio Busquets, Andrés Iniesta, David Silva og Álvaro Morata). Ef HM hæfist á morgun væri líklegt að sjö af þessum átta leik- mönnum myndu byrja fyrsta leik, aðeins Morata yrði fjarverandi en hann er ekki í lokahópnum sem fer til Rússlands. Leikmennirnir sem myndu fylla restina af leikstöð- unum væru Koke, Thiago Alcant- ara, Dani Carvajal, Isco og Diego Costa. Hryggjarsúla liðsins er því enn til staðar með þá Ramos, Iniesta og Silva sem hafa spilað sínar stöður með landsliðinu und- anfarin tíu ár, frá því að liðið varð Evrópumeistari í Vín 2008. Hafa bætt sig mikið sem lið Spánverjar hafa bætt sig mikið sem lið á undanförnu ári, þrátt fyr- ir að spila áfram sama fótboltann. Þrátt fyrir að Lopetegui hafi verið duglegur að breyta til þá leggur liðið áfram höfuðáherslu á það að halda boltanum innan liðsins. Sendingaleikur Spánverja hefur ekki breyst enda eru miðjumenn liðsins þeir Busquets, Thiago, Iniesta, Isco og Silva sem eru allir mjög góðir á boltanum. Einu leikmennirnir sem hafa horfið á braut spila í fremstu víg- línu. David Villa og Fernando Tor- res voru þeir framherjar sem áttu einna auðveldast með að spila í tiki-taka kerfinu sem Spánn vill spila. Liðið hefur oft á tíðum spilað það vel að enginn eiginlegur fram- herji hefur verið í byrjunarliðinu og hafa þeir notast við „falska níu“ með þá Cesc Fabregas eða Marco Asensio sem fremstu menn. Diego Costa mátti ekki spila með Atlético Madrid fyrr en í jan- úar og Álvaro Morata leysti því stöðu fremsta manns í fjarveru hans. Spilamennska Morata með Chelsea dalaði hins vegar mikið þegar leið á tímabilið. Costa hefur hins vegar aldrei fundið taktinn al- mennilega með landsliði Spánar. Hann á í vandræðum með að koma sér inn í spil spænska liðsins. Iago Aspas og Rodrigo henta því leikstíl spænska liðsins betur sem fremstu menn. Það er sóknarleikurinn sem Lopetegui á ennþá eftir að púsla saman. Það er auðvelt að átta sig á hinum leikstöðunum, þjálfarinn mun ekki breyta miklu frá árunum 2008 til 2012. Liðið er á réttri leið og réttum stað, spænska liðið er aftur spænska landsliðið í knatt- spyrnu. Liðið þarf bara að sýna það á stóra sviðinu í sumar. Líklegt byrjunarlið: De Gea – Carvajal, Piqué, Ramos, Jordi Alba – Busquets, Thiago – Silva, Isco, Iniesta – Diego Costa. Markverðir: 14 César Azpilicueta Chelsea (Eng) ’89 10 Thiago Bayern (Þýs) ’91 1 David De Gea Man.Utd (Eng) ’90 15 Sergio Ramos Real Madrid ’86 20 Marco Asensio Real Madrid ’96 13 Kepa Arrizabalaga Ath.Bilbao ’94 16 Nacho Monreal Arsenal (Eng) ’86 22 Isco Real Madrid ’92 23 Pepe Reina Napoli (Ít) ’82 18 Jordi Alba Barcelona (Sp) ’89 Sóknarmenn: Varnarmenn: Miðjumenn: 9 Rodrigo Moreno Valencia ’91 2 Dani Carvajal Real Madrid ’92 5 Sergio Busquets Barcelona ’88 11 Lucas Vázquez Real Madrid ’91 3 Gerard Piqué Barcelona ’87 6 Andrés Iniesta Barcelona ’84 17 Iago Aspas Celta Vigo ’87 4 Nacho Real Madrid ’90 7 Saúl Níguez Atlético Madrid ’94 19 Diego Costa Atlético Madrid ’88 12 Álvaro Odriozola Real Sociedad ’95 8 Koke Atlético Madrid ’92 21 David Silva Man.City (Eng) ’86 Lið Spánar Þjálfari: Julen LopeteguiEndurnýjaðir með nánast sama lið AFP Spánn Andrés Iniesta hefur spilað 127 landsleiki og var í spænska liðinu sem varð heimsmeistari 2010 og Evrópumeistari 2008 og 2012.  Spánverjar hafa fundið taktinn á ný eftir vonbrigði á tveimur stórmótum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.