Morgunblaðið - 13.06.2018, Síða 29

Morgunblaðið - 13.06.2018, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 29 G-riðill TÚNIS G-riðill PANAMA Majed Achek Tunisie Foot www.tunisie-foot.com Nabil Maaloul tók við landsliðinu árið 2017 eftir að Wadee Jaree, formaður knattspyrnusambandsins þar í landi, hafði rekið Henryk Kasperczak. Hann hélt sig við leikkerfið 4-2-3-1 gegn Egyptum í undankeppni Afr- íkumótsins og vann 1:0 sigur. Síðan þá hefur Nabil spilað annaðhvort 4-2- 3-1 eða sóknarsinnað 4-3-3. Þjálfarinn er hins vegar hrifnastur af því að spila með þriggja manna varnarlínu og þá hefur hann haldið tryggð við þá leikmenn sem voru í hópnum þegar hann tók við. Ali Maaloui, Syam Ben Youssef, Yassine Meriah og Rami Bedoui eru allt leik- menn sem hann treystir. Í síðasta leik liðsins breytti hann út af vananum og notaðist við þá Dylan Bronn og Yoh- an Benalouane í staðinn fyrir þá Rami Bedoui og Syam. Fimm í vörn gegn Englend- ingum og Belgum Hann ákvað að spila með fimm varnarmenn gegn Kongó í umspili um laust sæti á HM í Rússlandi. Þeg- ar mikið er undir mun hann því lík- legast spila 5-3-2 og má leiða líkur að því að hann muni stilla upp í það kerfi gegn Belgum og Englandi. Hann mun hins vegar spila 4-2-3-1 gegn Pa- nama í riðlakeppninni. Það verður að teljast næsta víst að þeir Mohamed Amine Ben Amor og Ferjani Sassi muni spila á miðsvæð- inu. Hins vegar var Ellyes Skhiri kallaður inn í hópinn nýlega og hann gæti því breytt eitthvað til þar sem að Elleys og Mohamed Amine eru svip- aðir leikmenn. Maaloul gæti notast við hæfileika þessara tveggja leik- manna sem þýðir að Ghailane Chaa- lali gæti þurft að fá sér sæti á bekkn- um, þrátt fyrir að hafa spilað nánast alla leiki liðsins síðan þjálfarinn tók við. Naim Sliti mun svo spila vinstra megin og annaðhvort Saif-Eddine Khaoui eða Anice Badri verða úti hægra megin í fjarveru Youssef Msakni. Khazri lykilmaður í sókn Wahbi Khazri mun svo leiða sókn- arlínuna. Hann hefur staðið sig vel, bæði með félagsliði sínu Rennes þar sem hann spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður og með Túnis. Taha Yassine Khenissi er meiddur og því mun Khazri spila sem framherji í Rússlandi. Líklegt byrjunarlið: Mathlouthi – Maaloul, Youssef, Meriah, Bedoui – Sassi, Ben Amor – Skhiri, Sliti, Badri – Khazri. Markverðir: 6 Rami Bedoui Étoile du Sahel ’90 Sóknarmenn: 1 Farouk Ben Mustapha Al Shabab (S.Ar) ’89 11 Dylan Bronn Gent (Bel) ’95 7 Saif-Eddine Khaoui Troyes (Fra) ’95 16 Aymen Mathlouthi Al Batin (S.Ar) ’84 12 Ali Maaloul Al Ahly (Egy) ’90 8 Fakhreddine Ben Youssef Ittifaq (S.Ar) ’91 22 Mouez Hassen Chateauroux (Fra) ’95 21 Hamdi Naguez Zamalek (Egy) ’92 10 Wahbi Khazri Rennes (Fra) ’91 15 Ahmed Khalil Club Africain ’94 Varnarmenn: Miðjumenn: 18 Bassem Srarfi Nice (Fra) ’97 2 Syam Ben Youssef Kasimpasa (Tyr) ’89 9 Anice Badri Espérance ’90 19 Saber Khalifa Club Africain ’86 3 Yohan Benalouane Leicester (Eng) ’87 13 Ferjani Sassi Al Nassr (S.Ar) ’92 20 Ghaylen Chaaleli Espérance ’94 4 Yassine Meriah Sfaxien ’93 14 Mohamed Ben Amor Al Ahli (S.Ar) ’92 23 Naim Sliti Dijon (Fra) ’92 5 Oussama Haddadi Dijon (Fra) ’92 17 Ellyes Skhiri Montpellier (Fra) ’95 Lið Túnis Þjálfari: Nabil MaaloulTúnisbúar leggja áherslu á vörnina AFP Túnis Anice Badri reynir loftfimleika í leik gegn Tyrkjum á dögunum en hann er sókndjarfur framherji.  Nabil Maaloul tók við liði Túnis þegar Henryk Kasperczak var rekinn José M. Domínguez TVN Panama twitter.com/JoseMiguelDomi Hernán Darío Gómez, þjálfari Pan- ama, ákvað að breyta til í vináttu- leikjum í mars og prófa sig áfram með 5-4-1-leikkerfið. Liðið mætti Danmörku og Sviss en í undankeppninni spilaði Panama 4- 4-2 nánast undantekningarlaust. Þjálfarinn ákvað hins vegar að prófa nýtt kerfi sem hefur verið vinsælt hjá stærstu liðum Evrópu á und- anförnum árum. Naumt tap í Kaupmannahöfn Panama sýndi góða spilamennsku gegn Dönum í fyrri vináttuleiknum í Kaupmannahöfn. Þeir byrjuðu leik- inn af miklum krafti þar sem þeir voru nær því að spila 3-4-3 í sókn- arleiknum en fóru svo í 5-4-1 þegar þeir vörðust og liðið leit mjög vel út. Þeir voru skipulagðir, héldu stöðum vel, voru skapandi á miðsvæðinu, sterkir líkamlega og þéttir varnar- lega. Ósigurinn, 1:0, var ekkert til að skammast sín fyrir og formúlan fyrir sumarið virtist vera klár. Það sama var hins vegar ekki upp á teningnum gegn Sviss. Gómez breytti liðinu mikið og það tapaði illa, 6:0. Það var fátt jákvætt í leik Pa- nama gegn Sviss. Þrátt fyrir tvo mjög misjafna leiki í mars mun þjálf- arinn notast við 5-4-1 þegar liðið mætir sterkari andstæðingum líkt og Englandi og Belgíu í riðlakeppni HM. Leikmennirnir voru fljótir að að- lagast kerfinu, þrátt fyrir að hafa æft það lítið. Édgar Yoel Bárcenas var einn af þeim leikmönnum sem þóttu standa upp úr gegn Dönum þar sem hann spilaði sem hægri vængbak- vörður. Jákvætt að breyta um kerfi „Það var jákvætt að breyta um leikkerfi,“ sagði Bárcenas eftir leik- inn gegn Danmörku. „Það var gott að venja menn við nýtt leikkerfi. Við vorum agaðir og einbeittir á löngum köflum og það er jákvætt upp á fram- haldið.“ Bárcenas sagði svo eftir leikinn gegn Sviss að liðið væri á réttri leið, þrátt fyrir slæmt tap. „Við héldum leikskipulaginu allan tímann. Þetta var erfiðari leikur en gegn Dönum. Við þurfum að halda einbeitingu bet- ur og hlusta meira á þjálfarann.“ Luis Ovalle, liðsfélagi hans og bak- vörður Olimpia í Hondúras, tók í sama streng. „Þjálfarinn lét okkur spila með fimm manna miðju. Mark- miðið var að halda boltanum og sækja hratt á þá. Halda góðri einbeitingu í vörninni og vinna saman sem lið.“ Það þarf allt að smella hjá Panama ef liðið ætlar sér að gera eitthvað á HM en nýtt leikkerfi gæti bætt upp það sem hefur vantað hjá liðinu und- anfarin ár. Líklegt byrjunarlið: Penedo – Ovalle, Escobar, Román Torres, Machado, Murillo – Godoy, Gómez, Quintero, Bárcenas – Gabriel Torres. Markverðir: 13 Adolfo Machado Houston (Ban) ’85 19 Alberto Quintero Univ.Lima (Perú) ’87 1 Jaime Penedo D.Búkarest (Rúm) ’81 15 Erick Davis Dunajska Streda (Slóvak) ’91 20 Aníbal Godoy San Jose (Ban) ’90 12 José Calderon Chorillo ’85 17 Luis Ovalle Olimpia (Hond) ’88 21 José Luis Rodríguez Gent (Bel) ’98 22 Alex Rodriguez San Francisco ’90 23 Felipe Baloy Municipal (Guat) ’81 Sóknarmenn: Varnarmenn: Miðjumenn: 7 Blas Pérez Municipal (Guat) ’81 2 Michael Murillo NY Red Bulls (Ban) ’96 6 Gabriel Gómez Bucaramanga (Kól) ’84 9 Gabriel Torres Huachipato (Síle) ’88 3 Harold Cummings San Jose (Ban) ’92 8 Édgar Barcenas Tapachula (Mex) ’93 10 Ismael Díaz La Coruna (Sp) ’97 4 Fidel Escobar NY Red Bulls (Ban) ’95 11 Armando Cooper Universidad (Síle) ’87 16 Abdiel Arroyo Alajuelense (Kost) ’93 5 Román Torres Seattle (Ban) ’86 14 Valentín Pimentel Plaza Amador ’91 18 Luis Tejada Sport Boys (Perú) ’82 Lið Panama Þjálfari: Hernán Daríó Gómez KólumbíuAllt þarf að smella hjá nýliðunum AFP Panama Román Torres, Felipe Baloy og Gabriel Gómez ræða málin en Gómez er leikjahæstur með 144 landsleiki.  Panama leikur í fyrsta sinn á HM og mætir bæði Englandi og Belgíu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.