Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Úrskurður Karólínska jákvæður  Allir þurfa að halda vísindalega ráðvendni í heiðri  Heiðarleiki kjarninn í vísindum  Tómas og háskólinn hljóta að skoða stöðuna  Vikið frá viðurkenndum viðmiðum og reglum  Skorti á heilindi Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Frá sjónarhóli vísindasiðfræði þá finnst mér úrskurður rektors Karól- ínska sjúkrahússins mjög mikilvæg- ur og jákvæður í þeirri merkingu að hann er til þess fallinn að auka traust á vísindarannsóknum,“ segir Sólveig Anna Bóasdóttir, formaður vísinda- siðanefndar Háskóla Íslands sem jafnframt er prófessor í guðfræði- legri siðfræði við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild skólans. Hún segir úrskurðinn undirstrika það að í vísindarannsóknum sé farið eftir ófrávíkjanlegum reglum sem byggjast á ákveðnum gildum. Sól- veig Anna segir að vísindasiða- reglur í heiminum séu alþjóðlegar en ekki staðbundnar. Þær séu vel þekktar og viður- kenndar. Úr- skurðurinn í fyrradag ítreki að enginn geti snið- gengið reglurnar um vísindalega ráðvendni. „Úrskurðurinn fjallar ekki um að öllum geti orðið á heldur er þarna um að ræða að vikið er frá viður- kenndum viðmiðum og reglum vís- indarannsókna. Heilindi eða ráð- vendni er það sem á skortir,“ segir Sólveig Anna og bendir á að kjarninn í vísindum sé heiðarleiki. Samfélagið verði að geta treyst heiðarleika vís- indamanna, þolendurnir séu ekki bara sjúklingarnir í þessu tilviki, sem sé nógu slæmt út af fyrir sig, heldur samfélagið allt. Þarf að hugleiða stöðuna „Það hlýtur að vera gríðarlegt áfall fyrir Tómas Guðbjartsson að vera gerður ábyrgur fyrir vísinda- legu misferli. Hann er starfandi við Háskóla Íslands og skólinn hlýtur að þurfa að hugleiða stöðuna með hon- um. Vísindasiðanefnd Háskólans hefur ekkert umboð til þess að vera með dómsvald í slíkum málum. Við erum rektor til ráðuneytis og sinnum ákveðinni vinnu sem felst í að gefa umsögn um rannsóknaráætlanir,“ segir Sólveig Anna. Hún þekkir ekki til þess að fræðimenn á Íslandi hafi áður fengið úrskurð um vísindalegt misferli. Hins vegar hafi komið fram í málstofu um vísindasiðferði sem Háskóli Íslands hélt í júní sl. að mis- ferli í vísindum væri algengara en nokkurn hefði órað fyrir. „Háskóli Íslands hefur sett sér vísindasiðareglur sem mikilvægt er að kynna sem allra best innan há- skólasamfélagsins. Reglurnar leggja grunn að góðum rannsóknum,“ segir Sólveig Anna. Tómas ósáttur við úrskurðinn Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir setti færslu á fésbókarsíðu sína í gær þar sem hann lýsir yfir óánægju sinni með aðdraganda og niðurstöðu rektors Karólínska sjúkrahússins um að hann hafi ásamt sex öðrum vísvitandi haft rangt við í vísindagrein sem birtist í Lancet í nóvember 2011. Tómas segir að hann hafi farið sjálfviljugur í ítarleg viðtöl síðastliðin fimm ár til þess að varpa ljósi á málið en verið svikinn um að fá að hitta rannsakendur sænsku siða- nefndarinnar. Ekki hefur náðst í for- svarsmenn Landspítalans vegna málsins síðastliðna tvo daga. Sólveig Anna Bóasdóttir Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Það þarf að skoða það almennt hvort verið sé með sanngjarna nálgun, ég vil að tækifærin séu til staðar fyrir þá sem eru með iðn- og starfsmenntun,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra í samtali við Morgunblaðið, sem hafði samband við hana til að fá úr því skorið hvort stúd- entspróf hefði meira vægi en iðnnám við mat á umsóknum nemenda, eins og t.d. í lögregludeild Háskólans á Akureyri. Ráðherra kvaðst ekki geta tjáð sig um einstök mál, þar sem ráðuneyti hennar gæti þurft að úrskurða í kærumálum. Varðandi mat á prófgráðum og starfsreynslu umsækjenda, segir Lilja að skólarnir hafi ákveðið sjálf- stæði við að meta það, en þeir þurfi jafnframt að fara eftir lögum og reglum sem Al- þingi og framkvæmdavaldið setja. „Lög og reglur eiga að auðvelda fólki að finna sína fjöl í menntakerf- inu, ekki að hindra það,“ segir Lilja og bætir við að iðn- og verknám skipti mjög miklu máli upp á framtíðina. Undirbúningur menntastefnu til árs- ins 2030 taki mið af því. „Við erum á fleygiferð inn í framtíð þar sem eru að eiga sér stað miklar breytingar og þar er þörf fyrir fjöl- breytta menntun. Ef við þurfum að breyta reglum til að vera samkeppn- ishæf, þá gerum við það,“ segir Lilja, en Ísland skeri sig úr því einungis 32% nemenda á framhaldsskólastigi séu í iðnnámi á móti nálægt 50% í öðr- um Evrópuríkjum. „Ég fagna því að innritun nemenda í verk- og starfs- námsbrautir framhaldsskólanna hef- ur aukist um 33% frá í fyrra, en verið er að bæta aðgengi og styrkja um- gjörð þesskonar náms.“ Lilja vill að tækifærin séu til staðar fyrir iðnmenntaða  Lög og reglur eigi ekki að hindra fólk í að mennta sig Lilja Dögg Alfreðsdóttir 23 ljósmæður hafa sagt upp störfum hjá Landspítalanum síðan kjaradeila þeirra við ríkið hófst og miklar líkur eru á að ljósmæður fari í verkfall um miðjan júlí. Ljósmæður funduðu í gær með forsætisráðherra og sagði Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar ljósmæðra, í sam- tali við RÚV að þar hefði komið fram mikill vilji félagsfólks til að boða yfir- vinnuverkfall. Fyrr í kjaradeilunni hafði Vísir eftir Áslaugu Valsdóttur, formanni Ljósmæðrafélags Íslands, að verkfall væri í raun gagnslaust vopn í höndum ljósmæðra þar sem það væri alltaf neyðarmönnun til staðar og því fyndi enginn fyrir verk- fallinu nema ljósmæðurnar sjálfar. Verkfall lausn á kjaradeilu? Þeir borgarbúar sem áttu leið um Austurvöll í gær ráku margir hverjir upp stór augu þegar þeir sáu hvítar verur á ferli framan við Alþingishúsið. Þar var á ferðinni götuleikhús Hins hússins sem stóð fyrir gjörningi undir stjórn listamannsins Mushimaru Fujieda. Hann er japanskur dansari, leikstjóri, rithöf- undur og danshöfundur og þekktur butoh- dansari. Hvítar verur á Austurvelli Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hæstiréttur hefur staðfest dóm Hér- aðsdóms Reykjavíkur í máli tveggja manna gegn 365 miðlum ehf. og fjór- um fréttamönnum þeirra vegna um- fjöllunar um Hlíðamálið svokallaða. Málið varðar umfjöllun fréttamiðla 365 um ætluð kynferðisbrot mann- anna tveggja gegn tveimur konum sem áttu að hafa verið framin í októ- ber 2015. Mál mannanna voru rann- sökuð en þau síðan felld niður. Fréttamennirnir sem um ræðir eru þau Nadine Guðrún Yaghi, Heimir Már Pétursson, Stefán Rafn Sigur- björnsson og Þórhildur Þorkels- dóttir. Öll voru þau dæmd í héraðs- dómi til að greiða mönnunum bætur. Staðfesti dóm í Hlíðamálinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.