Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 ✝ Guðríður Jón-asdóttir fædd- ist á Ísafirði 26. febrúar 1922. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu DAS í Hafnarfirði 19. júní 2018. Foreldrar henn- ar voru Hólmfríður Jóhannsdóttir, f. 10. mars 1890, d. 1. ágúst 1968, og Jón- as Jens Guðnason vélstjóri, f. 21. ágúst 1888, d. 26. janúar 1966. Hún giftist Magnúsi Guðmunds- syni húsgagnasmíðameistara 28. maí 1943. Foreldrar hans voru Þorgerður Bogadóttir, f. 22. október 1896, d. 9. apríl 1990, og Guðmundur Pétursson, kaup- maður á Ísafirði, f. 18. maí 1892, d. 7. júní 1990. Systkini Guðríðar voru: Jó- hanna, fyrri maður hennar var Björgvin Egill Pálsson. Hún gift- ist síðan Bjarna Stefánssyni. Einar, var ókvæntur. Kristján, fyrri kona hans var Helga Magnúsdóttir og seinni kona Sigurlaug Jónsdóttir. Árni, eiginkona hans var Guðlaug ur, sem var kennari, f. 10. sept- ember 1950, d. 2. október 1996, fyrri kona hans var Sigrún Þór- isdóttir en þau skildu barnlaus. Seinni kona hans var Hallfríður Hrólfsdóttir, f. 20. desember 1949, og eignuðust þau soninn Hrólf Erling, f. 14. júlí 1983, þau skildu. Bogi, fv. útibússtjóri, en hann kvæntist Sigrúnu Péturs- dóttur, f. 10. janúar 1950, d. 13. janúar 2006. Þau eignuðust tvö börn, Magnús, f. 13. nóvember 1974, og Guðríði Stellu, f. 7. des- ember 1981. Unnusti Guðríðar Stellu er Helgi Einar Karlsson, f. 22. nóvember 1980. Dóttir þeirra er Aníta Rún, f. 16. nóvember 2016. Skólagangan var hefðbundin en svo fór hún í Húsmæðraskól- ann á Ísafirði. Að skólagöngu lokinni starfaði hún hjá Kaup- félagi Ísafjarðar í fjögur ár en fór þá að vinna hjá Grími rakara á Ísafirði og hugðist stunda nám í rakaraiðn en ekkert varð úr því. Fyrsta póstútibúið í Reykja- vík var starfrækt í kjallaranum á Langholtsvegi 62 og hóf hún að starfa þar. Þegar það pláss varð of lítið fluttist útibúið en Guð- ríður fór þá að vinna á aðalpóst- húsinu og vann þar í 30 ár. Guðríður starfaði innan Thor- valdsensfélagsins til margra ára. Útförin fer fram frá Fossvogs- kapellu í dag, 27. júní 2018, klukkan 13. Björnsdóttir, og Rannveig, en hún var gift Arngrími Guðjónssyni, þau eru öll látin. Foreldrar Guð- ríðar og systkini fluttust suður. For- eldrar hennar sett- ust að í Hveragerði og þangað fluttu einnig Kristján, Árni og Einar, Jó- hanna bjó í Skerjafirði og Rann- veig í Kópavogi. Árið 1943 flytja þau Guðríður og Magnús til Reykjavíkur og byggja þeir feðgar Guðmundur, Magnús og bróðir hans Erlingur ásamt fleirum húseignina Brá- vallagötu 16, en þar búa þau fyrstu árin. Hinn 3. september 1944 eignast þau tvíburana Reyni og Boga en Bogi lést að- eins níu daga gamall. Reynir prentsmiður kvæntist Kolbrúnu Kristjánsdóttur, f. 17. júní 1933, en þau skildu barnlaus. Reynir lést 17. mars 2004. Þau byggja síðan hús á Lang- holtsvegi 62 í Reykjavík og þar fæddust tvíburarnir Guðmund- Elsku amma mín kvaddi þenn- an heim í síðustu viku. Hún amma Gurra eins og ég kallaði hana var alltaf í uppáhaldi hjá mér. Ég á henni mikið að þakka fyr- ir þátt hennar í þroska mínum á uppvaxtarárum. Amma Gurra og afi Maddi studdu foreldra mína í gegnum súrt og sætt. Þau ekki bara pössuðu mig þegar ég var lítill heldur höfðu þau líka gaman af og skemmtu mér svo að ég hlakkaði alltaf mikið til að koma í heimsókn til þeirra á Fornhag- anum í Vesturbænum. Amma var trúuð og lét mig þylja faðirvorið fyrir svefninn. Hún átti stóran þátt í að rækta hið góða innra með mér, hlýju og væntumþykju. Amma og afi áttu fallegt sam- band og ég leit upp til þeirra. Þau röbbuðu sín á milli um allt milli himins og jarðar og ég hlustaði á rökræður þeirra af aðdáun. Ein- hverjar fallegustu minningar mínar frá uppvaxtarárunum eru af samverustundunum okkar í bústaðnum í Kjós í Hvalfirði. Hann reisti afi Maddi með aðstoð sona sinna. Svo ræktaði amma garðinn fyrir utan þannig að mér fannst bústaðurinn okkar bera af öðrum bústöðum í nágrenninu. Við fjöl- skyldan nutum ómældrar ánægju af þessum vistarverum; lékum, spiluðum og gleymdum okkur í fallegri náttúrunni. Í þessi skipti sem við fórum í bústaðinn komum við oft við í Hvammsvíkinni í Hvalfirðinum og veiddum silung. Í einni minn- isstæðri ferð fengum við hátt í 20 fiska og þar með kviknaði hjá mér mikill veiðiáhugi sem hefur fylgt mér allar götur síðan. Tím- inn leið og ég byrjaði í Melaskóla skammt frá Fornhaganum þar sem afi og amma áttu ennþá heima. Ég fékk að koma í heimsókn eftir skóla og afi leyfði mér að nota skrifstofuna sína til að læra heima. Um þetta leyti hófst erfitt tímabil fyrir ömmu mína þegar afi veiktist og var lagður inn á spítala. Afi náði sér aldrei en amma hugsaði um hann og lét aldrei bil- bug á sér finna. Þetta var ekki allt því á innan við tíu árum þurfti amma að fylgja afa og tveimur sonum sínum til grafar. Oft þegar ég hugsa til ömmu þá fyllist hugur minn samúð til hennar blessaðrar ömmu minnar vegna þessa. Þrátt fyrir þessa miklu sorg hélt amma sínu striki og flutti í aðra íbúð á Grandavegi. Þangað bauð amma mér oft í kaffi til sín og við spjölluðum um heima og geima. Amma mín Gurra var alla tíð glaðlynd og vel liðin af vinum og samstarfsfólki á Póstinum þar sem hún vann. Það var mjög erf- itt að sjá veikindin ná yfirhönd- inni undir það síðasta en amma lifði lengst af góðu lífi. Ég er stoltur af hugrekki hennar og þrautseigju. Ég mun aldrei gleyma góðu stundunum okkar saman í fjöl- skylduboðum og yfir jólahátíðirn- ar. Elsku amma Gurra, hvíldu í friði. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hrólfur Erling Guðmundsson. Elsku hjartans Gurra frænka kvaddi þennan heim aðfaranótt 19. júní. Hún var systir hans pabba og frá upphafi bernsku minnar minnist ég gjafmildi hennar og Guðríður Jónasdóttir ✝ Arnar Guð-mundsson fæddist í Bolung- arvík 1. október 1931. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. júní 2018. Foreldrar hans voru hjónin Guðfinna Rannveig Gísladóttir, f. 8. janúar 1912, d. 30. nóvember 1981, og Guðmundur Ágúst Jakobsson, f. 26. febrúar 1912, d. 20. júní 1985. Systkini Arnars voru: Valgerður Bára, f. 20. febrúar 1936, d. 17. júlí 2006, Theódór Jakob, f. 2. ágúst 1944, Soffía, f. 15. október 1948, d. 11. nóv- ember 2010, og Gíslína, f. 25. september 1951. Arnar kvæntist Elsu Unni Guðmundsdóttur, f. 1934, d. 24. febrúar 2017, þau skildu. Þeirra börn eru: 1) Svanhildur, f. 1955, maki Peter Moldt, f. ian, f. 2014; Hafþór Breki, f. 1992, maki Ellen Iselin, f. 1987, sonur þeirra Loki, f. 2017. 5) Arna Bára, f. 1964, maki Gunn- ar Thorberg, f. 1960, börn hennar Cesar Arnar, f. 1984, sonur hans Ólafur Garðar, f. 2010, Richard, f. 1987, Björn Árni, f. 1994, og Jóhann Krist- inn, f. 1996. Seinni kona Arnars var Sól- veig Guðrún Kristjánsdóttir, f. 12. desember 1947. Foreldrar Sólveigar voru Guðrún Hjör- leifsdóttir, f. 1904, d. 1991 og Kristján Erlendsson, f. 1896, d. 1973. Dóttir Arnars og Sólveig- ar er Linda Rós, f. 1983, maki Kjartan Fossberg Jónsson, f. 1986. Arnar hóf ungur sjómennsku í Bolungavík. Eftir að veikjast af berklum um tvítugt hætti hann á sjónum og upp frá því starfaði hann sem sendibílstjóri í Reykjavík. Lærði hann síðan prentun og starfaði við þá iðn um langa hríð. Um 30 ára skeið gáfu hjónin Arnar og Sólveig spil fyrir Bridgesamband Ís- lands. Útför Arnars fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag, 27. júní 2018, klukkan 12. 1959, dætur þeirra Anna Katrine, f. 1984, og Elisabeth, f. 1986, maki Stef- an Hausting. 2) Guðfinna, f. 1956, maki Bjarni Þór Tryggvason, f. 1955, börn þeirra Unnur Ása, f. 1988, og Jónas Þór, f. 1994. 3) Guðmund- ur, f. 1959, maki Sigurbjörg Gunnarsdóttir, f. 1963, börn þeirra Reynheiður Þóra, f. 1985, maki Svanur Þrastarson, f. 1981, börn þeirra Hafrós Lilja, f. 2013, og Hrafn Elís, f. 2015; Arnar Jakob, f. 1987, maki Þorgerður Egils- dóttir, f. 1979, dóttir þeirra er Sólveig Sigurbjörg, f. 2016. 4) Hrönn, f. 1961, maki Bergur Gunnarsson, f. 1959, synir þeirra Þórður Andri, f. 1983, maki Elisabeth Bergsson, f. 1979, sonur þeirra Kai Sebast- Frá er fallin ein sú litríkasta manneskja sem fetað hefur lífs- veginn. Arnar Guðmundsson hóf lífsgöngu sína í Bolungavík fyrir ríflega 86 árum. Starfs- ævin var löng, mjólkurpóstur, kúreki (í Bolungavík – þar sem ungi maðurinn rak kúna af stað en þegar úr augsýn var komið snerust leikar við og kýrin rak skelfdan piltinn umsvifalaust til baka), svo sjómennska að bol- vískum sið. Arnar veiktist af berklum um tvítugt og dvaldi um hríð á Vífilstöðum. Þar var hann um tíma hafður í einangrun þrátt fyrir að ekki væri hann lengur með smitandi berkla. Þegar honum ofbauð vistin skellti hann einangrunarskiltinu á sloppinn og rölti vel merktur um gangana, starfsfólki og öðr- um sjúklingum til mikillar skelfingar. Að þessari baráttu lokinni hóf hann störf sem sendibílsstjóri og fór svo í prentnám í Iðnskólanum og endaði sem meistari í þeirri iðn. Arnar og Sólveig hófu rekst- ur fornbókabúðar og ráku hana meðan heilsa Arnars leyfði. Um síðir kom í ljós að berklar höfðu komið sér fyrir í hryggnum. Við tóku meðferðir og skurðaðgerð- ir gegn þeim óboðna gesti og endaði Arnar í gifsi um allan bolinn. Þegar hann var orðinn þreyttur á gifshólknum skutust þau hjónin út í bílskúr, gripu hamar og meitil – og af fór gifs- ið! Bridgespilarinn Arnar fékk vinnu við spilagjöf hjá Bridge- sambandi Íslands. Við það starfaði gamli maðurinn síðustu 25 ár starfsævinnar er lauk við 83 ára aldur. Arnar hafði ímugust á spítöl- um og hjúkrunarstofnunum, fór aldrei þangað nema fjölskyldan gerði honum þann óleik að panta sjúkrabíl til að koma hon- um undir læknishendur þegar hjartað sló feilpúst. Hvergi vildi hann vera annars staðar en í sófanum sínum, heima með „Sölku“ sína í kallfæri. Hann veiktist hastarlega að morgni 18. júní og lauk baráttunni 20. júní á Borgarspítalanum. Pabbi saup marga fjöruna og sagði sjálfur að enginn hefði spáð sér langlífi – hann varð þó allra karla elstur í ættinni, kom- inn á 87. aldursár. Hann var alla tíð mikill bókaunnandi og krossgátur voru ráðnar af mikl- um móð – menn fóru ekki að tefla við páfann heldur réðu þeir saman krossgátu! Bridge var hið eina sanna spil, þótt Rósinni væru kennd öll þau spil sem spilaglaður maður hafði sankað að sér. Húmoristi var hann mikill. Útskýrði hann fyrir örverpinu sínu í hennar fyrstu flugferð fjögurra ára að fólk fengi Hvolsvöll í eyrun og var þeirri trú viðhaldið fram á unglingsár. Auðvelt reyndist honum að leysa úr vandanum sem hann stóð frammi fyrir þegar Rósin hans krafðist mömmu sinnar þegar hún var útivinnandi, hann sagðist vera mamma og lífið varð gott. Á tímabili kallaði því örverp- ið karl föður sinn „mömmu“ en móður sína „Óla“ – því ekki tókst að bera nafnið Sólveig betur fram en svo – og „mamma“ var pabbi. Mikill er og verður söknuður- inn, tómarúmið og missirinn. Pabbi var þó saddur lífdaga og tilbúinn að kveðja – sem er ör- lítil huggun harmi gegn. Eldrautt sólarlag og þú kveður. Djúpir litir regnbogans þig leiða þína leið. Kvöldsólin speglast rósrauð í sænum. Baráttan er lífsins, friðurinn þinn. (KFJ) Linda Rós Arnarsdóttir. Arnar Guðmundsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURÐAR BJÖRGVINS BJÖRGVINSSONAR, Eyravegi 5, Selfossi. Friðsemd Eiríksdóttir og fjölskylda Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem vottuðu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, afa og langafa, MAGNÚSAR GUÐJÓNSSONAR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild L4 á Landakotsspítala fyrir einstaka alúð og umhyggju. Þórunn Haraldsdóttir Bylgja Magnúsdóttir Þórunn Maggy Jonsdóttir Birta Sól Utley Rebekka Huld Utley Elskuleg móðir mín, tengdamamma og amma, INGIBJÖRG SIGURLAUGSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Túngötu 20, Ísafirði, lést þriðjudaginn 19. júní. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 30. júní klukkan 14. Sigurl. Birgir Ólafsson Þórdís Erla Þórðardóttir Karen Sigurlaugsdóttir Eysteinn Eiríksson Birna Sigurlaugsdóttir Jón Lárus Sigurðsson Hjörtur Leó Guðjónsson Inga Þórs Ingvadóttir Harpa Hlíf Guðjónsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ELLERT INGIBERG BENEDIKTSSON, Víðigrund 2, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi fimmtudaginn 21. júní. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 28. júní klukkan 13. Halldóra Guðbjartsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra JÓHANNA GUÐNÝ ÞÓRARINSDÓTTIR, húsfreyja á Frostastöðum, andaðist miðvikudaginn 20. júní. Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 30. júní kl. 13. Jarðsett verður að Flugumýri. Þeir sem vilja minnast hinnar látnu eru beðnir að láta Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki njóta þess. Gísli Magnússon Ólöf Arngrímsdóttir Þórarinn Magnússon Sara Regína Valdimarsdóttir Ólafur Magnússon Sigurlína Alexandersdóttir Guðrún Kristín Magnúsdóttir Gísli Salómonsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA MAGNÚSDÓTTIR, Dalbraut 16, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 15. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Brynja Bárðardóttir Rúnar Ásbergsson Ágústa Bárðardóttir Einar Jónsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.