Morgunblaðið - 27.06.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 27.06.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 27. júní 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 107.57 108.09 107.83 Sterlingspund 142.32 143.02 142.67 Kanadadalur 80.72 81.2 80.96 Dönsk króna 16.834 16.932 16.883 Norsk króna 13.233 13.311 13.272 Sænsk króna 12.125 12.197 12.161 Svissn. franki 108.67 109.27 108.97 Japanskt jen 0.9804 0.9862 0.9833 SDR 151.65 152.55 152.1 Evra 125.45 126.15 125.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 154.87 Hrávöruverð Gull 1269.8 ($/únsa) Ál 2165.5 ($/tonn) LME Hráolía 74.8 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Flest félög, að Sjóvá undanskildu, lækkuðu í Kauphöll Íslands í gær. Mest lækkaði gengi hlutabréfa í Arion banka, eða um tæplega 4% í lið- lega 250 milljóna króna viðskiptum. Gengi hlutabréfa bankans í lok dags stóð í 82,6 krónum á hlut. Hlutabréf í Eik fasteignafélagi lækk- uðu um 1,8% í 27 milljóna króna við- skiptum og gengi bréfa Eimskips lækk- aði um 1,4% í 127 milljóna króna viðskiptum. Mesta veltan var með bréf í Marel, fyrir 990 milljónir króna, og lækkaði gengi hlutabréfanna um 0,4%. Sjóvá var eina félagið sem hækkaði lít- illega og fór gengi hlutabréfa félagsins upp um 0,18% í gær. Hlutabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,65% í gær en hún hefur hækkað um 5,7% frá áramótum. Hlutabréf lækkuðu í Kauphöllinni í gær Markaður Hluta- bréf lækkuðu í gær. STUTT BAKSVIÐ Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is „Minna selst af útimálningu þessa dagana en í þurrara veðurfari, en við heyrum það líka frá okkar við- skiptavinum og málurum að það hefur verið erfitt hjá þeim. Það vantar nokkra þurra daga í röð svo hægt sé að fara í þessi stóru úti- málningarverkefni,“ segir Árni Stef- ánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar. Líkt og íbúar á höfuðborgar- svæðinu hafa tekið eftir stendur veðrið í byrjun sumars ekki undir væntingum. Þegar sumar er vætu- samt og sólarstundirnar fáar, þá hefur það óneitanlega áhrif á sölu á ýmsum varningi. Útimálning, garð- húsgögn og sumarblóm fá að víkja fyrir regnfatnaði og ýmsum útivist- arvörum. Árni segir að vissulega hafi rign- ing áhrif á sölu á garðhúsgögnum og að í maí hafi sala á sumarblóm- um verið minni en oft áður, en salan hafi í raun færst að mestu leyti yfir á júnímánuð. „Sumarið hefur nátt- úrlega farið hægar af stað í sölu á þessum vörum sem fólk notar í garðana sína almennt. En sala á sólblómum hefur aukist núna í júní, en Húsasmiðjan rekur einnig versl- anir Blómavals.“ Sigríður Unnur Jónsdóttir, vöru- og markaðsstjóri Bauhaus, tekur í svipaðan streng. „Það er helst málning og pallaolía sem selst illa hjá okkur. Fólk er náttúrlega ekki að bera á hjá sér eða mála í þessari vætutíð. Annars hefur gengið mjög vel almennt séð, við komum vel undirbúin í þetta sumar.“ Minni umferð í slæmu veðri „Því er ekki að neita að sumar- veðrið spilar inn í umferð í versl- unum okkar,“ segir Árni. „Þá daga sem sólin hefur látið sjá sig hafa búðirnar yfirleitt fyllst.“ Sigríður er á sama máli. „Við sjáum stundum smá sveiflur þegar það er alveg hundleiðinlegt veður, líkt og í lok maí. Þá er fólk ekkert að drífa sig út í búð. En heilt yfir hefur þetta verið nokkuð stöðug umferð hér hjá okkur.“ Aðspurður hvaða vörur séu að seljast vel í sumar segir Árni að vinnufatnaður hafi selst mjög vel, þá sérstaklega regnfatnaður. „Reyndar hefur einnig verið mjög góð sala á tjöldum og útivistarvör- um, en þar eru margar vörur sem eru langt komnar í birgðum hjá okkur.“ HM-áhrif í grillsölu Árni segir að grillsala Húsa- smiðjunnar hafi verið frábær í sum- ar og að margar tegundir grilla hjá þeim séu uppseldar. „Ég velti fyrir mér hvort þetta sé stemningin fyrir HM eða slíkt, en það hefur verið frábær sala á grillum hjá okkur. Við vorum að fá aukasendingu af grillum að utan sem við þurftum að bæta við hjá okkur.“ Sigríður hjá Bauhaus segir grill- sölu hjá þeim einnig hafa gengið mjög vel en þau fengu grillin afhent fyrr en venjulega. „Sala frá páskum hefur verið rosalega góð og fólk hefur ekki látið veðrið stoppa sig í því að grilla. Það eru alveg pottþétt einhver HM-áhrif þar líka.“ Rysjótt veðurfar í sumar hefur áhrif á vörusölu Morgunblaðið/Eggert Sumar Sundföt hafa vikið fyrir regnfötum, en Húsasmiðjan hefur selt mikið af ýmsum hlífðarfatnaði í sumar. Sól og sumar » Bæði Bauhaus og Húsa- smiðjan segja að vont veður hafi töluverð áhrif á umferð í verslununum. » Mikið er að gera á góðviðris- dögum, segir Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar. » Tjöld og útivistarvörur selj- ast vel í Húsasmiðjunni, sem kemur forstjóranum á óvart.  Útimálning og sumarblóm seljast illa í sumarbyrjun, en grill rokseljast Vísitala leiguverðs á höfuðborgar- svæðinu hafði nú í maí síðastliðnum hækkað um 7,2% frá maí 2017, að því er fram kemur í Hagsjá Hagfræði- deildar Landsbankans. Á sama tíma hefur, eins og segir í Hagsjánni, verð fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu einungis hækkað um 2,9%. Í Hagsjánni er litið nokkur ár aft- ur í tímann og segir að breytingar á leigu- og kaupverði fjölbýlis á höfuð- borgarsvæðinu hafi fylgst nokkuð náið að allt frá árinu 2011 þegar far- ið var að birta vísitölu leiguverðs. „Um mitt sumar 2015 mældist tölu- verð lækkun á húsaleigu þannig að vísitala leiguverðs dróst töluvert aft- ur úr vísitölu kaupverðs. Upp frá því dró heldur í sundur með þróun kaup- og leiguverðs allt þar til í júní í fyrra þegar verulega dró úr hækk- unum kaupverðs,“ segir í Hagsjánni. Síðan hefur dregið saman með þessum stærðum og leiguverð hækkað töluvert meira en kaupverð íbúða. Hæsta leiguverð í Reykjavík Einnig segir í Hagsjánni að hæsta leiguverðið fyrir 2ja herbergja íbúð- ir á landinu sé í austurhluta Reykja- víkur og hæsta verðið fyrir 3ja her- bergja íbúðir sé í vesturhluta Reykjavíkur. „Mesta breyting á leiguverði á þessum tíma er 26% hækkun 4-5ja herbergja íbúða í vest- urhluta Reykjavíkur og þar á eftir koma 3ja herbergja íbúðir í austur- hluta Reykjavíkur. Minnstu breyt- ingarnar eru 7% lækkun á stærstu íbúðunum í Garðabæ og Hafnarfirði og um 5% hækkun á 3ja herbergja íbúðum í Breiðholti.“ tobj@mbl.is Leiga Það kostar sitt að leigja íbúð í vesturhluta Reykjavíkurborgar. Leiga hækkar um 7,3% milli ára  Kaupverð hækk- ar mun minna Morgunblaðið/Ómar Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is silestone.com Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.