Morgunblaðið - 27.06.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018
Renndu við hjá okkur
í Tangarhöfða 13
FAI varahlutir
Ódýrari kostur í varahlutum!
stýrishlutir
hafa verið leiðandi í yfir 10 ár.
Framleiddir undir ströngu
eftirliti til samræmis
við OE gæði.
Sími 577 1313
kistufell.com
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams í öllum stærðum
og útfærslum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvalá Niðri við ós fellur fossinn fram og er vatnsrennslið nærri 20 lítrar á sekúndu. Fyrir allmörgum árum var reist
göngubrú yfir ána á þessum slóðum, enda fara margir hér um, til dæmis göngufólk af Hornströndum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ó
snortin náttúran við
Ófeigsfjörð er
heillandi og hvergi hef
ég séð víðfeðmari
breiður af holtasóley,
íslenska þjóðarblóminu. Kraft-
urinn í Hvalá er mikill og ég skil
vel að menn vilji virkja. Sjálfur vil
ég samt þyrma þessu svæði, en
kom hingað til að kynna mér að-
stæður og mynda afstöðu byggða á
þekkingu og eigin reynslu,“ segir
Hlynur Steinsson, nemi í líffræði
við Háskóla Íslands.
Veifaði þumli
Við erum stödd á Ströndum og
komin í Ingólfsfjörð, þar sem
grýttur vegur liggur um fjöru-
steina. Þetta er leiðin í Ófeigsfjörð
og þangað fór Hlynur, sem veifaði
þumli og fékk far með blaðamanni
þegar hann sá að ekki yrði lengra
komist á Toyotu Yaris. Hlyni var
þó ekkert að vanbúnaði; var í
gönguskóm og lopapeysu og með
kíki og myndavél um hálsinn.
Steríótýpa af landkönnuði og hin-
um frjálsa förusveini.
Leiðin lá fyrir Seljanes og svo
inn Ófeigsfjörð, þar sem standa
reisuleg íbúðarhús enda dvelst fólk
þarna yfir sumarið. Og leiðin var
greið; frásagnir af því að landeig-
endur hefðu lokað veginum rangar.
Greiðfært var yfir vaðið á Húsá,
skammt frá Ófeigsfjarðarbænum,
en þaðan liggur slóði að Hvalá sem
niðri við ós fellur í miklum fossi.
Blákalt bergvatn
Ef Hvalá verður virkjuð er
ætlunin að miðla bláköldu berg-
vatni úr ám og vötnum uppi á heið-
um og veita í Hvalá um göng í
stöðvarhús sem byggt verður neð-
anjarðar, nærri ós. Virkjað rennsli
yrði um 20 metrar á sekúndu og
framleidd raforka 55 MW. Er
framkvæmd þessi talin þýðingar-
mikil fyrir raforkuöryggi Vest-
fjarða, enda er fólk í héraði al-
mennt áfram um þessar fram-
kvæmdir. Um verkefni af þessum
toga eru þó jafnan skiptar skoð-
anir og því eðlilegt að margir hafi
lagt leið sína á þessar slóðir til að
skoða staðhætti og heyra afstöðu
fólks.
Hef myndað mér skoðun
„Hvarvetna er ósnortin nátt-
úra á undanhaldi; það gerir friðun
á áhrifasvæði Hvalárvirkjunar á
Ströndum mikilvæga að mínu mati.
Ég kom hingað án þess að hafa
neina afgerandi afstöðu til fyrir-
hugaðra framkvæmda hér, en núna
hef ég myndað mér skoðun. Það
hlýtur að vera hægt að finna betri
lausn á orkumálum Vestfirðinga en
virkja Hvalá,“ segir Hlynur Steins-
son, sem er sumarstarfsmaður hjá
Landgræðslu ríkisins. Hefur þar
það hlutverk að aðstoða fræðimenn
við ýmsar rannsóknir á gróðri og
breytingum á landinu. Náttúruvís-
indafólk hefur til dæmis mikinn
áhuga á víðfeðmum birkiskógi sem
hefur á fáum áraum sprottið upp á
Skeiðarársandi og stækkar ört.
Stefnir í Þjórsárver
„Næst þarf ég að fara að
Hverfisfljóti á Síðu, en virkj-
unarframkvæmdir þar eru í bí-
gerð. Staðir sem eru í fréttum
vekja alltaf áhuga minn og félaga
minna, sem nú eru að undirbúa
leiðangur inn í Þjórsárver, þann
einstaka stað inni við Hofsjökul,“
segir Hlynur.
Förusveinn
í kynnisför
í Ófeigsfjörð
Hvalá í Ófeigsfirði er víða til umræðu um þessar
mundir, en áform eru uppi um að þar skuli virkjað.
Skoðanir eru heitar og skipta fólki í fylkingar. Norð-
anverðar Strandir eru áhugavert svæði og þangað fór
Hlynur Steinsson líf fræðinemi til að kynna sér að-
stæður og mynda sér skoðun á málinu.
Landkönnuður „Staðir sem eru í fréttum vekja alltaf áhuga minn,“ segir
Hlynur Steinsson, hér sitjandi á mosakletti við straumþunga ána.
Holtasóley Við Ófeigsfjörð eru miklar breiður af íslenska þjóðarblóminu
sem er fallegt og dafnar vel við hin hörðu skilyrði sem eru á Ströndum.
Dagskrá Humar-
hátíðar, sem er
bæjarhátíðin á
Höfn í Hornafirði,
hefst á morgun,
fimmtudag, og þá
verða m.a. ýmsir
viðburðir við hæfi
yngstu gestanna.
Á föstudag má
vænta þess að
fólk muni víða
malla humarsúpu heima við hús, í að-
draganda þess að farið verður í
skrúðgöngu á hátíðarsvæði í bænum
þar sem verður margvísleg skemmt-
an. Einnig verður bryddað upp á ýmsu
skemmtilegu á laugardag, svo sem
heimsmeistarakeppni í hornafjarðar-
manna, og um kvöldið verður dans-
leikur með hljómsveitinni Stjórninni
sem er þrjátíu ára um þessar mundir.
Bæjarhátíð á Hornafirði
Höfn Humarbær-
inn er góður.
Humar og
Stjórnarball