Morgunblaðið - 27.06.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 27.06.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Með því að skoða upptökur á vef Reykjavíkurborgar getur hver og einn fullvissað sig um þá staðreynd að ég ásaka aldrei starfsmenn Reykja- víkurborgar, hvorki einn né neinn í þessum efnum og nafngreini þá heldur ekki,“ segir Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, um minnisblað sem lagt var fram á fundi forsætis- nefndar á mánu- daginn og er undirritað af skrifstofustjóra borgar- stjórnar, Helgu Björk Laxdal. Marta ætlar að senda frá sér yfirlýsingu um málið í dag en hún hyggst taka málið upp aftur. „Ég sit í forsætisnefnd en málinu var frestað þar. Ég mun taka málið upp aftur í forsætisnefnd en ég á eftir að íhuga með hvaða hætti það verð- ur.“ Ólögmætar ásakanir Í minnisblaðinu kemur fram að skrifstofustjóri borgarstjórnar telji að ákvæði sveitarstjórnarlaga um réttindi og skyldur kjörinna fulltrúa hafi verið brotin á borgarstjórnar- fundi ásamt siðareglum kjörinna full- trúa hjá Reykjavíkurborg þegar borgarfulltrúar minnihlutans höfðu uppi ásakanir, án þess að leiðrétta þær síðar meir, „um að starfsmenn hefðu brotið trúnað, lekið trúnaðar- gögnum og/eða brotið starfsskyldur sínar á alvarlegan hátt. Borgar- fulltrúinn Hildur Björnsdóttir tók til máls á fundinum, hafði uppi ásakanir um leka á trúnaðargögnum og nafn- greindi undirritaða í ræðustól, vit- andi það að enginn maður utan borg- arstjórnar getur tekið til máls á borgarstjórnarfundi,“ segir í minnis- blaðinu. Fulltrúar virði verkaskiptingu Í siðareglunum sem um ræðir er mælst til þess að kjörnir fulltrúar gæti þess að „fara ekki út fyrir um- boð sitt í störfum sínum“. Einnig skulu kjörnir fulltrúar „virða verka- skiptingu í stjórnkerfi Reykjavíkur- borgar“ og „sýna störfum og réttind- um annarra kjörinna fulltrúa og starfsmanna Reykjavíkurborgar til- hlýðilega virðingu,“ eins og kemur fram í minnisblaðinu. Þar er einnig bent á það að Marta hafi verið fyrst til að fullyrða að „framlagning sameig- inlegs lista Sjálfstæðisflokksins, Sósíalistaflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins við hlutfallskosningu í þau ráð, nefndir og stjórnir sem voru á dagskrá borgarstjórnar væri trún- aðarmál og innihéldi trúnaðarupplýs- ingar sem aðrir borgarfulltrúar hefðu ekki átt að hafa aðgang að fyrir fund borgarstjórnar“. Samkvæmt minnis- blaðinu stenst sú staðhæfing ekki og „upplýsingar um nöfn þeirra aðila sem lagt er til að taki sæti þegar kosn- ingar nefnda, ráða og stjórna á vegum Reykjavíkurborgar eru teknar á dag- skrá borgarstjórnar, geta aldrei verið trúnaðarmál en um það atriði vísast til sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar“. Í niðurstöðum fyrstu greinar minnisblaðsins er lagt til að sérstöku námskeiði sé bætt við fyrir borgar- fulltrúa „þar sem sérstaklega er farið yfir muninn á opnum og lokuðum fundum, muninn á fundargögnum þeirra funda, hvaða gögn eru trún- aðarmerkt og hvers vegna ákvæði eru um það í samþykktum að fundar- gögn borgarstjórnar skuli vera að- gengileg öllum“. Óskað eftir áliti nefndar Í niðurstöðu annarrar greinar minnisblaðsins er óskað eftir því að forsætisnefnd grípi til viðeigandi ráð- stafana vegna málsins og leiti til siða- nefndar Sambands íslenskra sveitar- félaga en sambandið hefur skipað nefnd sem gefur álit á siðareglum og ætluðum brotum á þeim. Hyggst taka mál um brot á siðareglum upp að nýju  Segist aldrei hafa ásakað starfsfólk Reykjavíkurborgar um brot í starfi sínu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Borgarstjórnarfundur Það er varla hægt að segja að samstarf minnihlutans og meirihlutans hafi farið vel af stað. Marta Guðjónsdóttir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Einar Páll Svavarsson, fulltrúi íbúa í Mánatúni 7-17, segir íbúa munu leggja fram kæru vegna umdeildrar háhýsabyggðar í Borgartúni. Skipu- lagsstofnun gerði athugasemdir við skipulagið í apríl. „Það verður látið reyna á þetta mál alveg til loka. Við munum nýta okkur þau úrræði sem í boði eru, sem eru þau að kæra málið til úr- skurðarnefndar umhverfis- og auð- lindamála. Það ræðst af úrskurð- inum hvort málaferli séu næsta skref,“ segir hann. Allt að 65 íbúðir Fjárfestar áforma að byggja 65 íbúðir og atvinnuhúsnæði á jarðhæð Borgartúns 24. Miðað við verð nýrra íbúða á svæðinu er um milljarða uppbyggingu að ræða. Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti í febrúar breytt deiliskipulag lóðarinnar. Lögmaður húsfélags Mánatúns 7-17 hafði þá komið á framfæri mótmælum til skipulags- fulltrúa. Fyrirhugaðar skipulags- breytingar væru í andstöðu við lög og brytu gegn lögvörðum hags- munum íbúa Mánatúns. Skipulagsstofnun gerði í apríl sl. athugasemdir við breytingar á deili- skipulaginu. Næst dró til tíðinda í málinu þegar borgarráð samþykkti hið breytta deiliskipulag Borgartúns 24 fyrr í þessum mánuði. Skipulagsstofnun telur að með því hafi borgin uppfyllt lagaskyldu um að bregðast við athugasemdum stofnunarinnar. Málið sé úr hennar höndum. Borgin muni að óbreyttu geta veitt framkvæmdaleyfi. Teikning/Yrki arkitektar Drög Hluti fyrirhugaðrar uppbygg- ingar í Borgartúni 24 í Reykjavík. Munu kæra háhýsa- byggð í Borgartúni  Fulltrúi íbúa í Mánatúni segir málinu ekki lokið Íris Róberts- dóttir, bæjar- stjóri í Vest- mannaeyjum, hefur sagt sig úr stjórn Vinnslu- stöðvarinnar eft- ir nokkurra ára setu. Tilkynnti hún afsögn sína til stjórnar- formanns síðasta föstudag, segir Ír- is í samtali við Morgunblaðið. Mun varamaður í stjórn Vinnslustöðv- arinnar koma í hennar í stað. „Það kom ekki annað til greina. Ég var búin að láta vita af þessu en gerði það svo formlega þegar búið var að samþykkja ráðninguna í bæjarstjórn. Ég tók ekki við hlut- verki bæjarstjóra fyrr en 24. júní og var þá búin að segja mig frá stjórn Vinnslustöðvarinnar,“ segir Íris, en bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum síðasta fimmtudag að ráða Írisi sem bæjarstjóra. Er hún fyrsta konan sem gegnir því emb- ættti í Eyjum. Íris er oddviti H-list- ans, Fyrir Heimaey, sem myndaði nýjan meirihluta með Eyjalistanum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Íris fer úr stjórn VSV Íris Róbertsdóttir Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti um sjö manns grunaða um akstur undir áhrifum vímuefna undanfarna daga, þar af einn með rútu fulla af farþegum. Fjórir voru réttindalausir, þar af einn með fals- að ökuskírteini. Á annan tug manna voru ákærðir fyrir hraðakstur og tilkynnt var um fimm umferðarslys, þar sem einn keyrði út af, annar á ljósastaur eftir að hafa verið að fikta í útvarpinu, ökumaður vespu keyrði á bifreið, einn hafði ekki virt stöðvunar- skyldu og lenti þannig í árekstri við aðra bifreið og maður um tvítugt slasaði sig á krossara við malar- námu. Flytja þurfti þrjá á slysa- deild til aðhlynningar. Skráningar- númer voru fjarlægð af tíu bif- reiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar. Dagbók lögreglu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.