Morgunblaðið - 02.07.2018, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018
Sjálfseignarstofnunin Sigfúsar-
sjóður er meðal þeirra sem leigja
Alþingi húsnæði í Austurstræti
10a í Reykjavík. Þetta kemur fram
í svari forseta Alþingis við fyr-
irspurn frá Birni Leví Gunnars-
syni, þingmanni Pírata, um hús-
næðismál þingsins.
Sjóðurinn er eigandi 2. hæðar
hússins þar sem þingið er með
skrifstofur. Sigfúsarsjóður hefur
um langt árabil verið fjárhagsleg-
ur bakhjarl flokka íslenskra sósíal-
ista og er einn eigenda að húsnæði
Samfylkingarinnar á Hallveigar-
stíg 1. Fermetraverð leigunnar var
í fyrra rúmlega 31 þúsund krónur,
en heildarupphæð kemur ekki
fram í svarinu enda ekki um það
spurt.
Meðal annarra leigusala Alþing-
is eru Arion banki, Íbúðalánasjóð-
ur, Reitir ehf., LMK fasteignir
ehf. og Félagshúsið ehf.
Eitt hús á Ólafsfirði
Fram kemur að heildarstærð
húsnæðis í eigu Alþingis er rúm-
lega 11 þúsund fermetrar. Stærst
er Alþingishúsið sjálft og Skálinn,
tæplega 2.700 fermetrar.
Allt húsnæðið er í miðbæ
Reykjavíkur nema 60 fermetra
eign á Ólafsfirði þar sem skönnun
Alþingistíðinda fer fram. Leigu-
húsnæði þingsins er einnig allt í
miðbænum nema húsnæði í Ár-
múla 7 og á Ólafsfirði.
Starfsmenn Alþingis voru í fyrra
107, en að auki voru þar 6 starfs-
menn þingflokka og formanna
flokka í stjórnarandstöðu.
Alþingi leigir af Sigfúsarsjóði
Starfsemi Alþingis á 11.000 fermetrum Margir leigusalar
Eva B. Helgadóttir, lögmaður H-
Foss, sem stóð fyrir gjaldtöku á bíla-
stæðum við Hraunfoss í vetur, segir
að engin svör hafi borist frá umhverf-
isráðuneytinu vegna kæru sem félag-
ið sendi til ráðuneytisins eftir að lög-
regla stöðvaði gjaldtökuna í október í
fyrra. Lagðar voru dagsektir á H-
Fossa í maí vegna endurtekinnar
gjaldtöku félagsins, en Umhverfis-
stofnun féll frá þeim í maí eftir að
gjaldtökunni var hætt.
„Við erum ennþá að bíða eftir um-
hverfisráðuneytinu,“ sagði Eva í sam-
tali við mbl.is. Hún telur að ekki séu
svo miklar lögfræðilegar flækjur fyr-
ir hendi í málinu að það útskýri seina-
gang ráðuneytisins til svara.
Spurð um framhaldið, verði niður-
staða ráðuneytisins óhagfelld félag-
inu, segir Eva að félagið muni þá fara
með málið fyrir dómstóla. Afstaða fé-
lagsins sé að það hafi rétt til að njóta
arðs af leigurétti sínum. „Framhaldið
væri þá bara að fara í dómsmál, eftir
atvikum, og það er í vinnslu að kæra
ákvarðanir og aðgerðir lögreglunnar í
málinu,“ sagði Eva.
Framhaldið yrði dóms-
mál, segir lögmaður
Í dag mega landsmenn búast við
svipuðu veðri og verið hefur und-
anfarna tvo til þrjá mánuði, en veð-
urhorfur á landinu í dag, samkvæmt
vef Veðurstofu Íslands, eru suðvest-
an fimm til 13 metrar á sekúndu
sunnan- og vestantil.
Rigning eða súld verður með köfl-
um um landið vestanvert, mest um
hádegisbilið vestanlands, á Vest-
fjörðum og í innsveitum á Suður-
landi en styttir þó eitthvað upp er
líður á daginn. Þurrt verður austan-
til og léttir til með sól um landið að
austan- og suðaustanverðu er líður á
daginn. Hitastigið verður fimm til 13
stig um landið vestanvert en 12 til 20
stig norðaustan- og austanlands. Á
þriðjudag verður breytileg átt og á
miðvikudag snýst í austlæga og síð-
an norðaustlæga átt, á fimmtudag
verður norðvestlæg átt og á föstu-
dag er búist við suðlægri eða breyti-
legri átt þar sem gæti létt til á köfl-
um.
Rigning
sunnan og
vestan til
Þurrt og léttir til
fyrir austan í kvöld
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veður vott Rigningasumarið ætlar
engan endi að taka á SV-landinu.
Opið er fyrir umsóknir úr Menning-
arsjóði vestfirskar æsku, en úr hon-
um eru veittir styrkir til framhalds-
náms sem vestfirsk ungmenni geta
ekki stundað í heimabyggð sinni. Í
fyrra voru veittir styrkir að upphæð
450 þúsund krónur úr sjóðnum.
Ungmenni sem hafa misst fyrir-
vinnu, föður eða móður, njóta for-
gangs um styrk ásamt einstæðum
mæðrum og konum á meðan fullt
launajafnrétti er ekki í raun, eins og
segir í tilkynningu frá sjóðnum.
Þar segir ennfremur að ef engar
umsóknir berist frá Vestfjörðum
komi umsóknir Vestfirðinga, sem
búsettir eru annars staðar, til
greina.
Senda skal umsóknir fyrir lok
þessa mánaðar til Menningarsjóðs
vestfirskrar æsku, c/o Haukur
Hannibalsson, Digranesheiði 34, 200
Kópavogur, og skal umsögn fylgja
frá skólastjóra og/eða öðrum sem
þekkja viðkomandi nemanda, efni
hans og aðstæður.
Einnig má senda umsóknir á
netfangið:
haukurhannibalsson@simnet.is
Opið fyrir umsóknir
úr Menningarsjóði
vestfirskrar æsku