Morgunblaðið - 02.07.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 02.07.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018 Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50 tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi mannslíkamans ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is . Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum. Arctic Star Sæbjúgnahylki Sæbjúgu eru þekkt fyrir: • Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu líkamans gegn ýmsum sjúkdómum • Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa • Að koma í veg fyrir æðakölkun • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húðpróteins og insúlíns 200 mílur á mbl.is ræddu ígær við Gunnar Gíslason, viðskiptastjóra hjá Arion banka, um rekstrar- umhverfið í sjávarútvegi. Hann sagði lítil og með- alstór fyrir- tæki glíma við erfitt rekstrar- umhverfi, ekki síst eftir að ekki rættist úr frumvarpi atvinnuvega- nefndar um endurútreikning veiði- gjalda.    Gunnar segir að veiðigjöldinkomi „virkilega illa við“ litlu og meðalstóru útgerðirnar og að margir hafi orðið fyrir vonbrigðum með að Alþingi skyldi ekki afgreiða frumvarp um endurútreikning veiðigjaldanna áður en þing- störfum lauk. Afleiðing þessa verk- leysis þingsins er að veiðigjöldin verða allt of há út þetta ár að minnsta kosti og Gunnar segir að þetta verði „þungt ár í rekstri fram undan fyrir marga“.    Hann nefnir að þeir sem getifjárfest í aukinni tækni til að hagræða í rekstrinum geri það, en hann nefnir líka að greinin sé al- þjóðleg og að vinnslan geti í aukn- um mæli flust héðan og til Póllands, þar sem laun séu um þriðjungur af því sem þau séu hér á landi.    Gunnar segir ljóst að ekki muniallir ráða við að greiða yfir- vofandi veiðigjöld og vonar að lausn finnist á þessu. Hann segir að það sé „auðvitað stórskrýtið að reyna að reka sjávarútvegsfyr- irtæki á Íslandi, þú veist aldrei hvað stjórnvöld ætla að gera næst. Það er ekki ýkja gott rekstrar- umhverfi“.    Vonandi hlusta stjórnvöld á slíkvarnaðarorð þeirra sem fylgj- ast með afkomunni í greininni. Þungt fram undan STAKSTEINAR Veður víða um heim 1.7., kl. 18.00 Reykjavík 9 rigning Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 14 skýjað Nuuk 5 skýjað Þórshöfn 9 skúrir Ósló 25 heiðskírt Kaupmannahöfn 20 heiðskírt Stokkhólmur 17 heiðskírt Helsinki 20 heiðskírt Lúxemborg 25 heiðskírt Brussel 27 heiðskírt Dublin 22 heiðskírt Glasgow 21 heiðskírt London 27 léttskýjað París 30 heiðskírt Amsterdam 25 heiðskírt Hamborg 21 heiðskírt Berlín 20 heiðskírt Vín 20 heiðskírt Moskva 24 skúrir Algarve 22 léttskýjað Madríd 26 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Róm 28 heiðskírt Aþena 29 léttskýjað Winnipeg 24 léttskýjað Montreal 29 léttskýjað New York 33 heiðskírt Chicago 30 léttskýjað Orlando 29 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:09 23:56 ÍSAFJÖRÐUR 1:55 25:20 SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20 DJÚPIVOGUR 2:25 23:39 Sídðegis í gær var björgunar- sveitin á Akra- nesi kölluð út vegna slasaðrar konu við fossinn Glym í Hvalfirði. Hópur björgun- arsveitarfólks ásamt sjúkra- flutningamönn- um á Akranesi náði í konuna, sem er af erlendu bergi brotin. Fór hópurinn gangandi og á sexhjólum upp að fossinum til að flýta fyrir björguninni og flutti hana niður á börum þar sem sjúkra- bíll beið niðri við veg. Fyrr um dag- inn aðstoðaði björgunarsveit Vest- mannaeyja erlendan mann sem kominn var í sjálfheldu í Dalfjalli, en hann hafði misst sjónar á gönguleið- inni og tapað staf sínum. Honum varð ekki meint af. Þá fór björg- unarsveitin á Snæfellsnesi í útkall vegna hestaslyss við Ingjaldshól í Snæfellsbæ. Sveitin aðstoðaði sjúkrabíl sem þegar var kominn á vettvang við að koma hinum slasaða í bíl. Annríki hjá björgunar- sveitunum  Þrjú útköll í gær vegna slysa Hásumar Mikið um bjarganir í sumar. Stjórn Gæðingadómarafélags Ís- lands gagnrýndi á dögunum afskipti stjórnar Landsmóts hestamanna af vali dómara og yfirdómara á Lands- móti 2018. Sagði stjórnin í yfirlýs- ingu að mikil óánægja væri innan fé- lagsins vegna skipunar yfirdómara mótsins og að ekki væru fordæmi fyrir því að stjórn LH skipti sér af slíku vali. Stjórn gæðingadómara- félagsins velur þann hóp gæðinga- dómara sem dæmir á landsmótum. Í nýrri yfirlýsingu sem stjórn félags- ins sendi frá sér í gærmorgun segir þó að fyrri yfirlýsing hafi ekki verið send með samþykki meirihluta stjórnar félagsins. Segir þar jafn- framt að málið teljist leyst og að far- ið hafi verið eftir öllum settum lög- um og reglum um val dómara. Gæðingadómarar gagnrýna afskipti Ljósmynd/Landsmót Sátt Gæðingadómarar gagnrýndu stjórn LH en hafa nú tekið það til baka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.