Morgunblaðið - 02.07.2018, Page 11

Morgunblaðið - 02.07.2018, Page 11
11Landsmót hestamanna 2018 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018 GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3 Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Landsmót hestamanna hófst í blíð- skaparveðri á svæði hestamanna- félagsins Fáks í Víðidal í gær. Er þetta í þriðja sinn sem mótið er hald- ið í Reykjavík en áður hafa þar verið haldin mót árin 2000 og 2012. Móts- haldarar áætla að allt að tíu þúsund manns verði á mótinu þegar mest verður og töldu að um þrjú þúsund manns hefðu verið á svæðinu í Víði- dal í gær. Höfðu viðstaddir orð á því að það mætti teljast mikil mildi að ekki væri rigning og því margir sem nutu útiverunnar í brekkunni við völlinn. Mótið hófst á sérstakri for- keppni í barnaflokki og tók svo við keppni í unglingaflokki sem stóð yfir fram eftir degi. Milliriðlar í barna- og unglingaflokki fara fram á þriðju- dag og miðvikudag. Þá var boðið upp á skemmtidag- skrá fyrir unga sem aldna en frítt var inn á svæðið fyrir almenning. Síðdegis mætti Guðni Th. Jóhannes- son forseti og hélt stutta tölu þar sem hann lýsti yfir ánægju sinni með áhuga ungu kynslóðarinnar á hest- um og hestaíþróttinni. Þá veitti hann þátttakendum í barnaflokki svokall- aðar knapagjafir fyrir þátttöku sína á mótinu. Deginum lauk með barna- balli í reiðhöllinni (nú Mathöllinni) þar sem JóiPé og Króli ásamt Magna tróðu upp. Fjölbreytt fræðslu- og skemmti- dagskrá verður á mótinu nú í vik- unni. Í dag hefst keppni í B-flokki fyrir hádegi og ungmennaflokki (18- 21 árs) síðdegis. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Gleði Guðni Th. Jóhannesson forseti veitir þátttakendum í barnaflokki knapagjafir fyrir drengilega frammistöðu. Landsmót hafið í Víðidal  Landsmót hestamanna hófst í 23. sinn í gær á svæði Fáks  Skemmtidagskrá og keppni í yngri flokkum fyrsta daginn Blaðamaður Morgunblaðsins hitti fyrir ungan knapa sem var að keppa á sínu fyrsta landsmóti. Kristín Karlsdóttir er 11 ára Reyk- víkingur, búsett í Reykholti í Borg- arfirði. Hún æfir með Fáki og hefur verið lengi í kringum hesta. „Ég hef verið í hestum eiginlega allt mitt líf. Mamma mín og pabbi eru hestafólk svo ég hef verið í kringum þennan heim síðan ég man eftir mér.“ Hún segist oft hafa keppt áður á minni mótum en þetta er fyrsta lands- mótið þar sem hún tekur þátt í keppni. Hestur hennar heitir Há- varður og býr að mikilli reynslu. „Hann er mjög góður. Hann hefur unnið landsmót áður, árið 2006. Þá var knapinn Ragnar Bragi Sveins- son, frændi minn.“ En hvað snýst landsmót um í hennar augum? „Landsmótið snýst auðvitað mest um að hafa gaman og svo reyni ég að gera mitt besta. Ég reyni að komast í milliriðla núna á eftir. Þetta er mitt fyrsta landsmót og ekki það síðasta,“ segir Kristín, að vonum spennt yfir því að keppa í fyrsta sinn á svo stóru móti. ninag@mbl.is Ljósmynd/Nína Guðrún Geirsdóttir Ungur knapi Kristín var mjög spennt að fara á bak á sínu fyrsta landsmóti. Fyrsta landsmótið af mörgum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.