Morgunblaðið - 02.07.2018, Side 14

Morgunblaðið - 02.07.2018, Side 14
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Það má finna margt jákvætt við þessa þróun og hefur hún t.d. gert vinnumarkaðinn sveigj- anlegri og leyft fyrirtækjum að bregðast við mjög mikilli mannaflsþörf sem hefði ekki verið nein leið til að fullnægja með innlendu vinnuafli. Hins vegar er ekki hægt að horfa fram hjá því að vinnumarkaðurinn virðist vera að þróast í þá átt að vera mjög skýrt tvískiptur.“ Þetta segir Gylfi Magn- ússon um áhrif erlendra starfsmannaleiga á íslensk- um vinnumarkaði en hann er einn af höfundum greinar í Stjórnmálum & stjórnsýslu þar sem farið er í saumana á þessum nýja áhrifavaldi á vinnumarkaðinum. „Algengt virðist að þeir erlendu starfsmenn sem koma til Ís- lands í gegnum starfs- mannaleigur beri minna úr býtum en Íslend- ingar í sömu störfum. Ekki nóg með það heldur eru ýmis útgjöld þyngri hjá þeim en hjá inn- fæddum og dæmi um að þessi hópur borgi meira fyrir húsnæði til að búa í og greiði alls konar þjónustugjöld til starfsmannaleiganna. Þá eru mjög skýrar vísbendingar um að ekki sé farið eftir þeim kjarasamningum sem gilda hér á landi. Vinnumarkaðurinn er því tvískiptur að því leyti að annars vegar er fólk sem býr við full réttindi og nýtur þeirrar verndar sem kjara- samningar og ýmsar hefðir og venjur tryggja þeim og hins vegar hópur fólks sem er jaðar- settur og ber skarðan hlut frá borði.“ Gylfi er dósent við Háskóla Íslands og skrif- aði greinina í samvinnu við Ingu Minelgaite, Erlu S. Kristjánsdóttur og Þóru H. Christian- sen. Hann segir að áhrif starfsmannaleiganna megi skoða frá ýmsum sjónarhornum. „Það er t.d. rétt að að mörgu leyti njóta heimamenn góðs af þessu fyrirkomulagi. Þökk sé því fólki sem fengið er til starfa í gegnum starfsmanna- leigur geta íslensk fyrirtæki vaxið hratt, greinar á borð við ferðaþjónustu skapað mikinn gjald- eyri og aukin umsvif skilað auknum skatt- tekjum í opinbera sjóði. Erlenda starfsfólkið gengur líka í störf sem heimamenn hafa lítinn áhuga á og t.d. sjaldgæft að Íslendingar vinni við það í dag að þrífa skrifstofubyggingar eða starfi á gólfinu í fiskvinnslunum. Undir vissum kringumstæðum mætti halda því fram að starfsmannaleigurnar hefðu þau áhrif að und- irbjóða eða hafa vinnu af heimamönnum, og þá helst ungu fólki og ófaglærðum, en það virðist samt ekki raunin í augnablikinu og virðast núna allir geta fengið vinnu sem vilja,“ segir hann. Margföldun á nokkrum árum Umsvif starfsmannaleiganna hafa aukist hratt. Þær voru fjórar talsins árið 2014 og með 22 starsfmenn á sínum vegum á Íslandi en voru orðnar 36 árið 2017 og starfsmennirnir þá orðn- ir 3.205. Um 200.000 manns eru á vinnumarkaði á Íslandi og þrátt fyrir að vera allstór og ört vaxandi hópur er útlit fyrir að þeir sem hér starfa á vegum starfsmannaleiga myndi innan við 2% af heildarvinnuafli í landinu. Starfs- mannaleigur voru einnig mjög virkar fyrir fjár- málahrun en þó með öðrum hætti en nú: „Greina má tvö tímabil: fyrst komu þensluárin fyrir hrun þar sem starfsmannaleigur voru einkum nýttar í kringum verklegar framkvæmdir og aðallega að starfsmennirnir væru karlkyns. Núna sjáum við starfsmannaleigur nýttar víðar og hlutfall kvenna að aukast. Er sérstaklega áberandi hvað ferðaþjónustugeirinn reiðir sig mikið á starfs- mannaleigur.“ Gylfi undirstrikar að starfsmannaleigurnar sem slíkar séu ekki óæskilegar, og jákvætt að ís- lenski vinumarkaðurinn sé opinn fólki frá öðrum löndum EES. Þá hafi hlutur starfsmannaleiga haft þau áhrif í hruninu að hægt var að „tappa af“ íslenska vinnumarkaðinum mjög hratt þegar farandverkafólk flutti aftur til síns heima svo að atvinnuleysi mældist ekki jafnmikið og ella. Hann segir engu að síður eðlilegt að vera hugsi yfir því ef íslenskur vinnumarkaður verður í reynd tviskiptur, jafnvel þó að erlendu starfs- mennirnir búi við betri kjör á Íslandi en þeir myndu gera í heimalandi sínu. Gylfi segir jafn- framt ekki hægt að stóla á að hinn frjálsi mark- aður rétti hlut starfsfólks starfsmannaleiganna: Þekkja ekki rétt sinn „Reikna má með að þeir útlendingar sem hingað koma á vegum starfsmannaleiga til að vinna í skemmri eða lengri tíma kunni ekki vel á íslenskt samfélag og þekki ekki rétt sinn. Þetta fólk getur líka átt allt undir vinnuveitandanum og í þeirri óskemmtilegu stöðu að geta misst bæði vinnu, húsnæði og jafnvel eitthvað fleira ef það reynir að sækja rétt sinn. Það þarf ekki endilega meira regluverk, en betri dreifing upp- lýsinga gæti fengið þennan markað til að virka betur.“ Aðspurður hvort einhverjar reglubreytingar gætu hjálpað segir Gylfi að verkalýðshreyfingin hafi lagt til að leiða í lög svokallaða keðjuábyrgð. „Það þýðir að þeir sem fá undirverktaka til starfa fyrir sig geta ekki fríað sig ábyrgð ef und- irverktakinn t.d. greiðir ekki rétt laun, skilar ekki sköttum eða vanrækir að borga í lífeyris- sjóð. Væri mjög jákvætt skref að innleiða lög af því tagi um leið og leitað væri leiða til að gera markaðinn gegnsærri svo að starfsfólk starfs- mannaleiga geti tekið betur upplýstar ákvarð- anir.“ Vinnumarkaðurinn að verða tvískiptur Morgunblaðið/Ómar Þróun Fyrir hrun voru starfsmannaleigur einkum nýttar í kringum verklegar framkvæmdir. „Núna sjáum við starfsmannaleigur nýttar víðar og hlutfall kvenna að aukast,“ segir Gylfi.  Á síðasta ári störfuðu liðlega 3.200 manns hér á landi á vegum erlendra starfsmannaleiga  Hópur fræðimanna hefur áhyggjur af að þetta fólk geti orðið jaðarsett á vinnumarkaðinum Gylfi Magnússon 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Kínverska renminbíið veiktist um 3,3% gagnvart Bandaríkjadalnum í júní og er það mesta mánaðarlækk- un gjaldmiðilsins allt frá því að kín- verski gjaldeyrismarkaðurinn var settur á laggirnar árið 1994. Í síð- ustu viku nam lækkunin 1,9% og hef- ur renminbíið aðeins einu sinni lækkað jafn mikið á einni viku en það var árið 2015 þegar óvænt breyting í peningastefnu seðlabanka Kína hristi upp í mörkuðum og olli því að gjaldmiðillinn veiktist um 2,8% á einni viku. Á árunum 2005 til 2014 leituðust ráðamenn í Peking við að veikja kín- verska gjaldmiðilinn og voru gagn- rýndir fyrir að veita þarlendum út- flytjendum ósanngjarnt forskot. Á undanförnum árum hefur stefnan snúist við og stjórnvöld reynt að styrkja renminbíið til að forða fjár- magnsflótta. Að sögn FT óttast markaðsgrein- endur að veikingin í janúar sé til marks um að kínversk stjórnvöld séu reiðubúin að nota veikingu renmin- bísins sem vopn í harðnandi tolla- stríði við Bandaríkin. Veikingin kann þó líka að vera ósköp eðlileg leiðrétt- ing en renminbíið, sem er lauslega tengt körfu alþjóðlegra gjaldmiðla, hefur þótt haldast óvenju sterkt gagnvart gagnvart dalnum það sem af er þessu ári á meðan gjaldmiðlar á borð við evruna hafa verið að veikj- ast gagnvart gjaldmiðli Bandaríkj- anna. Einnig gæti veikingin í júlí verið merki þess að kínversk stjórn- völd séu reiðubúinn að láta markað- inn leika stærra hlutverk í því hvaða stefnu gengið tekur. ai@mbl.is Reuters Dýfa Veiking renminbísins í júní vekur spurningar um framhaldið. Veiking renminbís- ins veldur áhyggjum  Sérfræðingar óttast möguleikann á gjaldmiðlastríði milli BNA og Kína

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.