Morgunblaðið - 02.07.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
taka er merki um samþykki“, sagði
hún sænsku fréttastofunni TT.
Refsing verður allt að sex ára
fangelsi og hámarksrefsing tíu ár
ef fórnarlambið er yngra en 18
ára.
Sænska lögfræðingafélagið og
landsréttarráðið eru á meðal
þeirra sem hafa gagnrýnt löggjöf-
ina fyrir að bjóða upp á víða túlkun
og geðþóttaákvarðanir, um það
hvort téð samþykki liggi fyrir eða
ekki, í nauðgunarmálum. Rík-
isstjórn Svíþjóðar, mynduð af jafn-
aðarmönnum og græningjum, hef-
ur aftur á móti varið löggjöfina.
Kynlíf án samþykkis nauðgun
Ný lög, sem leggja kynlíf án skýrs
samþykkis að jöfnu við nauðgun,
tóku gildi í Svíþjóð í gær, í fram-
haldi af #MeToo-byltingunni þar-
lendis.
Nýju lögin kveða á um að nauðg-
un eigi sér stað í kynferðislegri at-
höfn, sem aðili að henni hefur ekki
fúslega tekið þátt í.
„Til að verða ákærður fyrir
nauðgun er ekki lengur skilyrði að
ofbeldi eða ógnum hafi verið beitt
við athöfnina, eða að hafa nýtt sér
varnarleysi fórnarlambsins,“ að
sögn stjórnvalda. Dómstólar verði
nú að veita því sérstaka athygli
hvort samþykki hafi verið gefið
með orðum, bendingum eða á ann-
an hátt og dæma skv. lögunum.
Ekki þörf á formlegu samþykki
Dómarinn Anna Hannell, sem
hjálpaði við samningu laganna,
sagði að það væri „engin þörf á
formlegu samþykki, líkamleg þátt-
AFP
Lög Sænska ríkisstjórnin, undir forystu Stefans Löfvens, ver lögin.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Innanríkisráðherra Þýskalands,
Horst Seehofer, hótar að segja af sér
embætti ásamt formennsku í Kristi-
legum jafnaðarmönnum (CSU) í
Bæjaralandi, eftir margra vikna
deilur við Angelu Merkel, kanslara
Þýskalands og formann Kristilegra
demókrata (CDU), um móttökur
flóttamanna, skv. heimildum AFP
fréttastofunar.
Seehofer er sagður afar óánægður
með samkomulag sem kanslarinn
gerði, með leiðtogum ríkja Evrópu-
sambandsins (ESB) á föstudag, til að
draga úr flóttamannastraumi til
Evrópu. Það sé á skjön við hans eigin
fyrirætlanir um að skipa landa-
mæravörðum að senda flóttamenn í
burtu við landamærin og þykir hann
því ekki njóta stuðnings kanslarans.
Seehofer hafnar skýringum Merkel
um að samkomulagið gefi sömu nið-
urstöðu, en hún sagði áður en leið-
togarnir hittust, að málefni flótta-
manna gætu haft úrslitaáhrif um
framtíð ESB. Dýpkandi ágreiningur
er á milli systurflokkanna CDU og
CSU, sem saman mynda ríkisstjórn
með Jafnaðarmönnum (SDP) í
Þýskalandi, en CSU eyddi mörgum
vikum í að þrýsta á Merkel um að
herða stefnu í málefnum innflytj-
enda og flóttamanna, án árangurs.
Merkel vann orrustuna en gæti
tapað stríðinu, því að með afsögn
Seehofer gæti slitnað upp úr ríkis-
stjórnarsamstarfi flokkanna.
Leiðtogar CSU hittust í München
en Merkel og leiðtogar CDU í Berlín
í gær. Talsmaður CDU segir kansl-
arann hafa þéttan stuðning beggja
flokkanna að baki sér og þingflokks-
formaður CSU hefur neitað að taka
við afsögn Seehofer.
Ítalir loka höfnum í sumar
Innanríkisráðherra Ítalíu, Matteo
Salvini, kallaði eftir bandalagi
stjórnmálasamtaka í Evrópu gegn
fjölda-flóttamannastefnu, á tilfinn-
ingaþrunginni árlegri samkomu
harðlínu stjórnmálaflokks síns, Lega
Nord (LN) í gær, eftir að hafa lýst
yfir að hafnir landsis verði lokaðar í
sumar fyrir skipum samtaka sem
flytja flóttamenn til Evrópu, greinir
AFP frá.
„Ég er að hugsa um stofnun regn-
hlífarsamtaka frjálsra hreyfinga í
Evrópu sem vilja verja landamæri
sín og velferð barnanna sinna,“ sagði
Salvini á fimmtu ráðstefnu LN í Pon-
tida á Ítalíu. Um 50 þúsund manns
víða að frá Ítalíu sóttu viðburðinn,
eftir að Salvini gaf út slagorðið
„Ítalía fyrst,“ að því er ítalskir fjöl-
miðlar greindu frá, en afstaða Ítala
gegn flóttamönnum hefur harðnað,
þrátt fyrir að komur þeirra hafi
dregist saman um 96% frá metárinu
2015.
Salvini kvað flokk sinn hafa áunnið
sér titilinn mesti popúlistaflokkur
Evrópu, en hann tæki því sem hrósi.
„Ég mun ferðast til höfuðborga, og
ekki aðeins evrópskra, til að bjóða
kjósendum valkost gegn Evrópu
sem grundvallast á misnotkun skatt-
peninga og fjölda-flóttamanna-
stefnu.“
Í síðustu viku kallaði Emmanuel
Macron Frakklandsforseti á að fjár-
hagsleg viðurlög yrðu lögð á ESB-
ríki sem neita að taka við flótta-
mönnum.
Innanríkisráðherra
Þýskalands hótar afsögn
Innanríkisráðherra Ítalíu kallar eftir bandalagi harðlínuflokka í Evrópu
Kona greiðir atkvæði í kosningum til forseta,
þings og sveitarstjórna í Mexíkó í gær, en lands-
menn eru orðnir langþreyttir á spillingu og of-
beldi glæpahringja í landinu. Líklegt þykir að
hinn vinstrisinnaði Andreas Manuel Lopez Obra-
dor, 64 ára fyrrverandi borgarstjóri Mexíkó-
borgar, sigri í kosningunum, en hann hefur heit-
ið að berjast gegn spillingu og gæti komið
flokkum frá völdum sem hafa stjórnað í nær öld.
Þjóðin orðin langþreytt á spillingu og ofbeldi
AFP
Gengið var til forseta-, þing- og sveitarstjórnarkosninga í Mexíkó í gær eftir öldu ofbeldis í landinu
Stórri lögregluaðgerð hefur verið
hrundið af stað eftir að alræmdur
bankaræningi, Redoine Faid, strauk
með þyrlu úr fangelsi nálægt París í
Frakklandi í gær. Tveir vopnaðir
menn notuðu reyksprengjur og slípi-
rokka til að komast að honum í
heimsóknarherbergi fangelsisins
þar sem hann var að tala við bróður
sinn. Þyrlunni hafði verið stolið af
skelfingu lostnum þyrlukennara og
fannst hún 60 km frá fangelsinu, en
þaðan hafði Faid haldið með bifreið
sem hefur fundist brunnin við versl-
anamiðstöð.
Þetta er í annað sinn sem Faid
strýkur úr fangelsi, en árið 2013
sprengdi hann sér leið úr öðru fang-
elsi í Norður-Frakklandi með dýna-
míti.
AFP
Þyrlan Fannst um 60 km frá fang-
elsinu en fangans er nú leitað.
Ævintýra-
legur flótti
úr fangelsi
Komst undan
á stolinni þyrlu
Kafarar nálgast
nú staðinn í
ranghölum hellis
í Taílandi við
landamæri
Myanmar og La-
os, þar sem tólf
drengir og fót-
boltaþjálfarinn
þeirra hafa verið
fastir í meira en
viku vegna flóða
í kjölfar óveðurs samkvæmt AFP-
fréttaveitunni.
Óveðrinu slotaði í gær og með
hjálp vatnsdælna komust kafar-
arnir nær þeim stað þar sem dreng-
irnir eru taldir vera. Yfir þúsund
manns taka þátt í björgunaraðgerð-
inni, þar af sextíu taílenskir og er-
lendir kafarar.
Kafarar nálgast nú
drengina í hellinum
Hellirinn Björg-
unarstarf í gangi.
FASTIR Í MEIRA EN VIKU