Morgunblaðið - 02.07.2018, Page 20

Morgunblaðið - 02.07.2018, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018 ✝ Sigurjón Val-geir Hafsteins- son fæddist á Sel- fossi 2. janúar 1983. Hann lést 20. maí 2018. Foreldrar: Erla Guðlaug Sigur- jónsdóttir f. 29.3. 1965, og Hafsteinn Jónsson, f. 16.2. 1960. Foreldrar Erlu eru Guðlaug Sigurðardóttir og Sigurjón Þór Erlingsson, foreldrar Hafsteins voru Guðrún Bjarnfinnsdóttir og Jón Valgeir Ólafsson. Systkini Sigurjóns Valgeirs eru Steinar, f. 16.3. 1989, eig- inkona hans er Kristrún Elsa Harðardóttir og dóttir þeirra er Anna Rakel, f. 2015; Guðlaug Stella, f. 18.11. 1994, unnusti hennar er Sigurjón Þór Widnes Friðriksson. Sigurjón Valgeir lauk hefð- erfitt þetta var honum og fjöl- skyldu hans. Hann aflaði sér kerfisstjóra- réttinda í tölvufræði og hafði hugsað sér að eiga þar aftur- kvæmt út í atvinnulífið. Sigurjón Valgeir var félagi í Rauða krossi Árnessýslu, var umsjónarmaður neyðarvarna í sýslunni, og sá um strákakaffi Rauða krossins á Selfossi. Í þessum erfiðu veikindum fór hann að vinna úr gleri. Hann hnýtti flugur fyrir stangveiði og liggur eftir hann safn sem for- eldrar hans varðveita. Ljós- myndun var einnig eitt af hans áhugamálum, einnig stjörnu- fræði. Fallegt steinasafn prýðir heimili foreldra Sigurjóns Val- geirs og er það afrakstur margra ára söfnunar hans er hann var í jarðfræðináminu. Eitt af hans stóru áhugamálum var stangveiði. Hann sat í stjórn Landssambands stangveiði- félaga. Hann spilaði einnig handbolta með UMF Selfossi í nokkur ár. Útför hans fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 2. júlí 2018, klukkan 14. bundinni skóla- göngu frá Grunn- skólanum á Selfossi og hóf nám í Fjöl- brautaskóla Suður- lands á Selfossi þar sem hann útskrif- aðist sem stúdent árið 2003. Hann hóf nám í Háskóla Ís- lands í jarðfræði og útskrifaðist með BS-gráðu árið 2007. Hann var trúlofaður Ásdísi Ólafsdóttur, foreldrar hennar eru Ólafur Börkur Þorvaldsson og Ragnheiður Einarsdóttir. Upp úr sambandi þeirra slitnaði eftir níu ára samband. Frá árinu 2007 og til dauða- dags glímdi Sigurjón Valgeir við illvíga flogaveiki sem tók stóran toll af honum en honum tókst að halda því til hliðar þannig að ekki allir vissu hve Í dag kveðjum við elsku Sig- urjón Valgeir okkar, ég veit að núna ertu búinn að fá lausn þinna veikinda, þú gast ekki meir og ætlum við að virða þessa ákvörðun þína. Þetta er búið að vera rúmlega 10 ára stríð hjá þér og aldrei heyrðist frá þér kvart eða kvein yfir ör- lögum þínum. Fyrir 10 árum hékk líf þitt á bláþræði en sem betur fer fengum við þig aftur og sögðum stundum við þig að þeir þarna upp vildu þig ekki strax því þú áttir eftir að skila af þér verkefnum hér á jörðu niðri, sem þú gerðir svo sannarlega. Nýútskrifaður sem jarðfræðing- ur veiktist þú og upp úr þeim veikindum fékkstu illvíga floga- veiki. Þú lést flogaveikina ekki stoppa þig í því sem þú varst að gera þó svo þú fengir mörg flog á dag, tókst bara flogið og hélst síðan áfram að gera það sem þú varst að gera ekkert væl og vol á þeim bænum. Það var alveg sama hvað þér datt í hug að gera, þú leystir þau verkefni með miklum sóma og gast bókstaflega allt, frá því að hekla, prjóna, hnýta veiðiflugur, veiða og glerlist og er til mikið af fallegu handverki eftir þig. En veiðimennska var þitt líf og yndi og þú varst mikil aflakló. Ég veit ekki hvernig ég kemst af án þín en okkar samband var mjög sérstakt, ég átti þig aðeins 17 ára gömul og hef alltaf sagt að þú hafir alið mig upp en ekki ég þig. Ein minning er frá ferð okkar norður til Heiðu og Ellerts, þá varst þú nýkominn með æfinga- akstur og ég lét þig keyra því ég treysti þér betur til þess en mér. Þrjóskur gastu verið og í einni ferðinni okkar til Reykjavíkur fannst gömlu þú keyra fullgreitt og bað þig um að hægja á þér. Við vorum stödd við Litlu kaffi- stofuna. Þú leist á mig og sagðir er ég eða þú að keyra, þú hægð- ir á þér og ég varð að gjöra svo vel að keyra heim með þér á 50 km hraða það sem eftir var ferð- ar. Þegar heim kom sagðir þú: ertu ánægð núna? Við pabbi þinn eigum svo margar góðar minningar því þú varst ekki bara sonur heldur okkar besti vinur og verða þess- ar minningar geymdar í hjörtum okkar alla ævi. Eitt sem þú gerðir var að kalla mig alltaf Erlu en ekki mömmu og skrítið sem það var þótti mér vænt um það. Þú fórst að vinna hjá Rauða krossinum í Árnessýslu sem sjálfboðaliði og settir þar af stað hóp sem heitir Strákakaffi og þar varst þú mikil fyrirmynd þessara ungu stráka. Einnig varst þú umsjónarmaður neyð- arvarna hér hjá Árnesingadeild. Sameiginlegt áhugamál okkar var að fara í ketilbjöllur. Pabbi þinn og þú áttuð sameiginlega veiðidellu og voruð þið miklir veiðimenn. Eldamennska var þitt líf og yndi enda snilldar- kokkur og þú sérhæfðir þig sér- staklega í taílenskum réttum. Einnig var veður, þá sérstaklega vont veður, eitt af því sem þú elskaðir og var farið í marga óveðursrúnta. En elsku drengurinn okkar, söknuðurinn og sorgin er svo sár. Við vitum að það hefur verið tekið vel á móti þér í sumarland- inu því yndislegri engil er ekki hægt að finna. Megi guð og góð- ir englar vaka yfir þér, elsku Sigurjón Valgeir okkar, minning þín lifir í hjörtum okkar. Mamma og pabbi. Nú kveð ég þig, elsku besti bróðir. Stundin þegar ég fékk fréttirnar að þú værir týndur var eins og atriði úr lélegri bíó- mynd. Svo óraunverulegt. Ég trúi ekki að ég hafi ekki fengið að kveðja þig almennilega. Ef ég hefði vitað það að Eurovison- kvöldið hefði verið síðasta kvöld- ið sem ég sá þig lifandi hefði ég ekki sleppt takinu á þér. Mesta eftirsjáin sem ég hef núna er að hafa ekki sagt oftar við þig hversu vænt mér þótti um þig og hvað ég elskaði þig mikið. Því miður fæ ég ekki tækifæri til að segja það við þig. Ég skrifa þetta með tárin í augunum og hugsa um allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Þú varst mér ekki bara stóri bróðir held- ur mikill vinur og veiðifélagi. Ekki veit ég hvernig verður að veiða án þín og ekki grunaði mig það í fyrra að veiðiferðin okkar í Baugstaðarós væri sú síðasta sem við færum saman. Kannski var það tilviljun eða örlög að í þessari síðustu veiðiferð var veiðin góð og saman veiddum við tíu fiska og alla yfir fimm pund. Ein besta veiði sem við bræður höfum átt var jafnframt sú síð- asta. Veiðin okkar er mér ofarlega í huga þar sem við áttum þar margar okkar bestu stundir. Það varst þú sem gafst mér fyrstu flugustöngina mína og kenndir mér á hana. Það voru margir dagar sem við vorum í Úlfljóts- vatni að æfa okkur saman. Eitt atvik þaðan er mér vel minnis- stætt en það var þegar þú hélst að þú hefðir týnt úrinu þínu. Við stóðum vel úti í vatninu og þá segir þú við mig að þú sért að fara að fá flog. Ég aðstoða þig upp á bakkann og svo færð þú gott flog. Eftir að þú varst búinn að jafna þig spurðir þú mig hvort ég væri með úrið þitt, en ég kannaðist ekki við það. Þá byrjuðum við að leita og stóð leitin í hátt á annan klukkutíma. Loks gáfumst við upp þó þú værir ekki glaður með það að hafa tapað úrinu þínu. En þegar við fórum svo klæða okkur úr veiðifötunum þá á tókst þú eftir því að úrið var búið að vera allan tímann á úlnliðnum á þér. Við höfum nú oft hlegið að þessari sögu saman. Þú varst einstakur bróðir, með stórt hjarta og alltaf til í að hjálpa þínu fólki. Ég veit ekki hversu oft ég náði að plata þig með mér á ruslahaugana þegar ég nennti ekki fara einn. Ég bjó alltaf til afsökun til að fá þig með. Þó svo að þú sæir alltaf í gegnum þær, enda lélegar með eindæmum, þá komstu alltaf með mér. Ekki þurfti ég að sannfæra þig mikið til að að- stoða mig við að byggja pall og pott eða skjólvegg þó launin væru sjaldnast góð hjá mér, einn til tveir bjórar. Næsta verkið okkar, Hraunhelluna, náum við því miður ekki að klára saman, elsku bróðir. Þessi tími frá því að þú fórst frá okkur hefur verið erfiður. Þá sérstaklega sá tími sem fór í að finna þig, en nú ertu kominn heim, elsku bróðir. Kæri bróðir. Ég mun sakna þín alla ævi. Lífið verður ekki eins án þín en minningin um þig og allar góðu stundirnar mun lifa með okkur fjölskyldunni. Það er huggun í því að geta fylgt þér síðasta spölinn. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Þinn bróðir, Steinar. Ég sit hér og bíð, með tár í augunum. Bíð þess að þú vaknir elsku bróðir minn. Ég kveiki á kerti og bið til æðri afla fyrir þér. Ég vona að englarnir hugsi vel um þig og verndi þig. Elsku besti bróðir, ég bið fyrir þér hvar og hvenær sem er. Láttu þér batna, Sigurjón Valgeir minn. Þetta ljóð samdi ég fyrir þig árið 2007 þegar ég missti þig í fyrsta sinn þegar þú fékkst heilabólguna. Ég syrgði þig svo sárt, því ég hefði getað misst stóra bróður minn. En þú slappst og fékkst í raun nýtt líf, en með þessu nýja lífi fylgdi flogaveiki. Eins og Fönix þá reistu upp úr öskunni og varst harðákveð- inn að þetta ætti ekki að stoppa þig. Þú barðist eins og hetja í 10 ár eða akkúrat 3.703 daga. Það er ótrúlegt, þú lifðir þannig séð með flogaveikinni eða reyndir það að minnsta kosti. En þann 20. maí 2018 þá gast þú ekki barist meira. Þeim degi mun ég aldrei gleyma, þá missti ég þig í annað sinn og núna endanlega. Elsku Sigurjón Valgeir, ég veit ekki alveg hvað ég á að segja varðandi hvað ég á eftir að sakna þín mikið. Þegar þú varst týndur í Ölfusá þá var þetta ekki raunverulegt. Hugsanir komu í kollinn á mér um litla von, kannski komst þú upp úr og ákvaðst að hefja nýtt líf einhvers staðar. En þegar ég fór og sótti dótið þitt þá molnaði ég. Ég komst varla út í bíl, ég grét svo sárt. En ég hélt svo fast í þessa litlu von, því það var það eina sem ég átti eftir svo þetta væri ekki raunverulegt. Ég gat ekki trúað því að ég væri búin að missa þig. Þann 23. júní 2018 komst þú heim, ætli þú hafir ekki þurft að skoða þig um í Ölf- usá. Enda varstu ekki þekktur fyrir það að stressa þig of mikið á hlutunum, það rann varla í þér blóðið. Ég vona að einn daginn munum við hittast á ný, þú tek- ur á móti mér bakvið ósýnilega vegginn. Þangað til þarf ég að halda minningunni þinni lifandi í hjarta mínu, þú átt part í því og munt alltaf eiga. Þó hjartað sé aumt núna þá eigum við samt fullt af minningum saman. Eins og þegar ég var sex ára og þú áttir hvítu Toyotuna þá leyfðir þú mér stundum að sitja í fang- inu á þér og „rúnta“. Þú hafðir þó vit á að stoppa mig áður en ég keyrði niður grindverk eða saklausan bæjarbúa. Svo varstu líka svo sérvitur og ég gerði í því að pirra þig með því, var svo voða saklaus þegar þú skamm- aðir mig fyrir það, ég biðst af- sökunar en þetta var of skemmtilegt. Ég færði hárburst- ann þinn og handklæðið svo þú hélst að einhver hefði notað það. Tók inniskóna þína og bollann þinn. Braut sófann þinn, reynd- ar óvart. Ég vonaðist til að ég myndi aldrei þurfa að klára ljóðið sem ég samdi fyrir þig árið 2007 en núna klára ég það. Núna ertu farinn, farinn frá okkur. Hvar sem þú ert, þá veit ég að þú vakir yfir okkur. Nú bíð ég eftir því að þú komir heim, komdu heim. Ég elska þig og mun alltaf gera. Ég sakna þín og mun alltaf gera. Minning þín lifir og mun alltaf gera. Hvíldu í friði, Sigurjón Valgeir minn. Elsku Sigurjón, ég vona að þér líði vel hvar sem þú ert núna. Ég veit við sjáumst ein- hvern tímann seinna en ég veit ekki hvenær. Ég elska þig. Kveðja, prinsessan á heimilinu, Guðlaug Stella. Þegar Sigurjón Valgeir, dótt- ursonur minn, er fallinn í valinn 35 ára gamall eftir tíu ára erfiða glímu við ólæknandi kvalafullan sjúkdóm þá reikar hugurinn víða og spyr hvers vegna hann hlaut svo grimm örlög, þessi fallegi og glæsilegi piltur sem fékk að blómstra í 25 ár þar til hann varð fyrir óbærilegu höggi. Hann ólst upp í foreldrahús- Sigurjón Valgeir Hafsteinsson ✝ Guðrún ErnaNarfadóttir fæddist 9. júní 1936 í Reykjavík. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Eir 26. júní 2018. Hún var dóttir hjónanna Narfa Þórðarsonar húsa- smíðameistara og Sigurlaugar Jóns- dóttur húsfreyju. Hinn 4. júní 1960 giftist Guðrún Erna Jóni Sturlu Ásmundssyni rafvirkjameistara, f. 17. júlí 1934, og eignuðust þau þrjár dætur, þær eru: Sigurlaug, f. 1959, hennar dætur eru Guðrún, Guðrún Erna var alin upp í Vesturbænum og gekk í Kvenna- skólann í Reykjavík og síðar í Húsmæðraskólann á Laugar- vatni. Sem ung kona vann hún í Stjórnarráði Íslands sem ritari. Eftir að dæturnar fæddust dreif hún sig í nám, árið 1972 tók hún sjúkraliðaprófið og starfaði eftir það sem sjúkraliði á Borgarspít- alanum og á Grensásdeild. Hún sinnti trúnaðarstörfum fyrir Sjúkraliðafélagið og Starfs- mannafélag Reykjavíkur á ár- unum 1974-1984. Guðrún Erna og Jón Sturla bjuggu lengst af í Stóragerði 24 þar sem dæturnar slitu barns- skónum. Síðar byggðu þau hús með fallegum garði í Starrahól- um 10. Síðasta hálfa árið dvaldi Guðrún Erna á Hjúkrunarheim- ilinu Eir. Útför hennar fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 2. júlí 2018, klukkan 15. f. 1992, d. 1992, Guðrún Ísafold, f. 1997, og Þórunn Hekla, f. 2000. Fað- ir þeirra er Hilmar Sigurðsson. Svava, f. 1960, eiginmaður hennar er Egill Rafn Sigurgeirsson, börn þeirra eru Silja Björk, f. 1985, Lydía Dögg, f. 1988, og Atli Örn, f. 1990. Erna Björk, f. 1967, eig- inmaður hennar er Magnús Birgisson, börn þeirra eru Sturla Freyr, f. 1991, Birgir Bragi, f. 1997, og Heiðrún Dís, f. 1999. Í garðinum á bak við Nýlendu- götu 23 stóðu lengi vel þrjú greni- tré. Trén voru gróðursett á 6. og 7. áratug síðustu aldar, eitt tré fyrir hvert barnabarn húsráð- enda. Húsráðendur voru þau Narfi Þórðarson og Sigurlaug Jónsdóttir, foreldrar Guðrúnar Ernu, tengdamóður minnar. Guðrún Erna var einkabarn foreldra sinna og það var í skjóli þeirra í litla húsinu á Nýlendu- götu sem henni voru kennd þau lífsgildi sem hún svo lifði í sam- ræmi við alla ævi. Og lífinu var svo sannarlega ekki lifað í eftirsókn eftir vindi. Lífið fólst fyrst og fremst í því að hugsa um velferð annarra. Eig- inmanns og þriggja dætra. For- eldranna sem áttu langa ævi og háa elli í skjóli Guðrúnar. Barna- barna og barnabarnabarna. Og þá má ekki gleyma skjólstæðingum hennar á Borgarspítalanum en þar átti hún sína starfsævi sem sjúkraliði í 21 ár, allan tímann á Grensás, í þjónustu við þá sem áttu um sárt að binda og erfiða ævi í kjölfar áfalla í lífinu. Hvort lífinu sé lifað til gagns mælist ekki í fjárhæðum, fer- metrum, titlum eða öðrum for- gengilegum hlutum. Það sem fyrst og fremst ræður hvort líf manns er farsælt er hvort þau gildi sem maður sjálfur heldur í heiðri og góð eru talin lifa af á milli kynslóðanna. Það er ekki að sjá annað en að það hafi tekist í tilfelli Guðrúnar. Einkabarnið úr Vesturbænum á núna 16 afkomendur, þrjár dæt- ur, átta barnabörn og fimm barnabarnabörn. Og eitt á leið- inni. Og þegar hún sjálf á síðustu misserum ævinnar þurfti á stuðningi og aðstoð að halda var enginn skortur á. Jón Sturla hélt þeim heimili í Grafarholtinu og með aðstoð systranna sá hann um allar þarfir eiginkonu sinnar, lengur en nokkur gæti trúað. Síðustu mánuðina bjó hún á Eir og naut umönnunar starfsfólks þar. Nærvera ættingja og vina síðustu mánuðina sem hún var á Eir var nánast samfelld og ég hugsa að þær hafi ekki verið margar vökustundirnar sem hún var ein. Það er því með sanni hægt að segja að Guðrún hafi uppskorið eins og hún sáði. Samvera, um- hyggja og natni er það sem hún sýndi öðru fólki alla ævi. Sam- vera, umhyggja og natni er það sem hún fékk. Við Erna Björk hófum okkar sambúð í kjallaranum á Nýló eins og húsið var gjarnan kallað. Eða öllu heldur, við höfðum þar að- stöðu, eins og Guðrún orðaði það. Sú aðstaða var heimili okkar í tvo vetur og það var yndislegt. Og æ síðan höfum við alltaf getið gengið að aðstoð og stuðningi vísum og það hefur verið ómetanlegt. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Magnús Birgisson. Í dag kveð ég elskulega mág- konu mína, Guðrúnu Narfadótt- ur. Gunna var alltaf sérstök í mín- um augum. Hún var fyrsta tengdadóttir foreldra minna og þegar Sturla, bróðir minn, kynnti mig fyrir þessari glæsilegu stúlku eignaðist ég ekki bara mágkonu, heldur trausta og góða vinkonu. Það var alltaf gleði sem fylgdi nærveru Gunnu og gaman að njóta samverustunda með henni. Gunnu fylgdi alltaf mikil reisn og glæsileiki. Minningarnar eru margar og ljúfar: Fjölskylduboð, ferðalög, útilegur og eldhúsdagsumræður. Utanlandsferðirnar skemmti- legu, Gunna mín, voru margar og eftirminnilegar. Til dæmis á Kan- aríeyjum, þegar við týndum Giss- uri mínum og þú varst sannfærð um að hann hefði dottið ofan í kaktusabeð í garðinum sem við vorum að skoða. Allt fór vel og við skemmtum okkur konunglega og hlógum mikið. Einnig minnist ég ferðar okkar á síðustu öld til Júgóslavíu, en þar hlógum við út í eitt og skáluðum oft í rúsínuvíni. Já, Gunna mín, minningarnar eru margar og dýrmætar, ég þakka fyrir samfylgdina í ferða- lagi lífsins. Elsku Sturla bróðir og fjöl- skylda, megi góði Guð og englarn- ir styrkja ykkur í sorginni. Þín systir, Hrefna Ásmundsdóttir. Í dag fer fram útför Guðrúnar Ernu Narfadóttur frænku minn- ar. Mér þykir ákaflega miður að geta ekki fylgt frænku minni síð- asta spölinn. Gunna Narfa, eins og hún var gjarnan kölluð, var meira eins og systir mömmu en frænka. En þær voru systradætur. Alla tíð var mikill vinskapur milli foreldra minna og Gunnu og Sturlu. Margs er að minnast frá gamalli tíð, t.d. má nefna útilegur á Laug- arvatni þar sem eldaðar voru heilu máltíðirnar á prímus. Þar voru mamma og Sturla í aðalhlut- verki í eldamennskunni en pabbi og Gunna meira að hafa það huggulegt. Ég veit að pabba þótti Gunna alltaf mjög skemmtileg eins og okkur öllum. Mín fyrsta minning frá Reykjavík sem barn var í Stóragerðinu hjá Gunnu frænku, þar var alltaf pláss fyrir stóra fjölskyldu úr Borgarnesi hvort sem það var í mat eða gist- ingu. Einnig kemur Nýlendugat- an, æskuheimili Gunnu, upp í hugann sem órjúfanlegur partur Guðrún Erna Narfadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.