Morgunblaðið - 02.07.2018, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Að gera það besta úr því sem þú áttir
og hafðir var einhvern veginn auðveldara
þegar þú varst yngri. Settu þér takmark og
neitaðu að láta vaða yfir þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Metnaður þinn er vakinn og verður mik-
ill næstu sex vikurnar. Orka þín er mikil þessa
dagana og þú ættir að nýta hana.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú eigir bágt með að skilja
gjörðir vinar þíns er engin ástæða til þess að
leggja vináttuna á ís. Verðlaunaðu þig fyrir vel
unnin störf undanfarið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú gætir lent í erfiðum deilum við
makann. Leitaðu álits vina á því hvernig best
sé að taka á málum. Þú ert ekkert að missa
móðinn þó þú haldir það stundum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nágranni eða fjölskyldumeðlimur virðist
ætla að eyðileggja næðið sem þú metur svo
mikils. Hafðu hugfast að allt á sér sinn stað
og sína stund.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er einhver sem vill umfram allt
hafa undirtökin í sambandinu við þig. Farðu í
gönguferðir eða gerðu eitthvað annað sem
lyftir þér upp og hressir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Orðspor þitt er mikilvægara en peningar
í banka. Matur upp á gamla góðinn er þér að
skapi, bjóddu í mat þeim sem eru á sömu línu
og þú.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að fá aukið svigrúm svo
þú náir að einbeita þér að þeim verkefnum
sem fyrir liggja. Vendu þig á að sjá jákvæðu
hlutina í öllum aðstæðum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þú hafir í mörg horn að líta
máttu ekki láta það verða til þess að þú miss-
ir sjónar á markmiðum þínum. Batnandi fólki
er best að lifa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú nýtur þess að vera í hópi góðra
vina í dag. Lítil próf og litlar breytingar undir-
búa þig fyrir hið stóra tækifæri.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er yfir margan þröskuldinn að
fara til að ná því takmarki sem þú hefur sett
þér. Vinur úr fortíðinni birtist og raskar ró
þinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú kemst langt á kurteisinni. Þér vefst
tunga um tönn þegar þér er boðið í veislu.
Þar verður líklega aðili sem þig langar ekki að
hitta.
Ólafur Stefánsson skrifar:„Djásnin á Leir eru auðvitað
þessar fáu konur sem þar eru á
húsi, ef svo má segja. Þær eru svo
fáar að það ætti að vera vandalaust
að ljóða á þær.
Fyrst til Fíu:
Umkringd þessum öldnu jöxlum,
alltaf hress og glöð.
Fía ber á báðum öxlum
Boðnar- leir og mjöð.
Þá Sigurlín:
Veðurspá er varla fín,
viðsjált mjög að fara af stað.
Sómakonan Sigurlín,
sendir vísu fyrir það.
Að endingu er það Sigrún:
Sigrúnar úr safni braga
sendingu naumast finn.
Myndi ásýnd Leirsins laga
ef legði hún meira inn.“
„Bændavísur eru skemmtilegar,“
skrifar Skírnir Garðarsson í Leir-
inn, „enda bændur skemmtilegir,
þó líf þeirra sé eintómt basl frá A til
Ö“:
Þrotlaust basl frá A - Ö,
er einatt líf í sveitunum,
við hnegg og gól og me og mö,
og mögnuð hjóð í geitunum.
Tíðin slæm og tuggan rök,
traktorinn á verkstæði,
mætti gjarnan mála þök,
og mykju dreifa á túnstæði.
Kvennaskortur, kvótatal,
hvílíkt vesen alla tíð.
Við hænugagg og hanagal,
hokra menn þó ár og síð.
Á miðvikudaginn skrifaði Ing-
ólfur Ómar í Leirinn: „Það er bara
ágætisveður hér syðra í dag. Það
sást örla á smá sólarglætu:“
Andinn hressist ólund dvín
ekkert kæti grandar
þegar sól á sundin skín
og sunnangolan andar.
Eitt sinn kom Skarða-Gísli í
kaupstað og fékk staup af brenni-
víni og renndi því niður í einum
teig. Þetta sá Johnsen kaupmaður
og hafði orð um að sér þætti þessi
aðferð „svolaleg“. Þá kvað Gísli:
Hálsinn skola mér er mál
mín því hol er kverkin;
ég mun þola þessa skál,
það eru svolamerkin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mjaltakonurnar
þrjár og basl bænda
„ER ÞETTA AÐ VERÐA TIL? ÞAU ERU
ALVEG AÐ KOMA.“
„STÓRFÓTUR!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það kemur
bara ykkur við.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ORÐ DAGSINS ER
„DRÓMASÝKI“
NÚ ÆTLA ÉG AÐ NOTA
ÞAÐ Í SETNINGU
ÉG ER OF GAMALL
FYRIR ÞETTA! VITLEYSA!
NEI, Í ALVÖRU! ÉG TÓK LEIKFANGAKASSA
PRINSINS!
Á stórafmælum fólks og við andlátbirtast gjarnan í dagblöðum
greinar þar sem tíunduð eru helstu
æviatriði viðkomandi. Sjálfsagt er
auðvitað að segja þar frá fjölskyldu
og allra helstu störfum en annað til-
tekið er á stundum undarlegur
sparðatíningur. Þar á Víkverji við að
í sérstakar frásögur sé færandi
hvaða félagsstörfum viðkomandi
hafi gegnt, setið í nefndum og ráð-
um, stjórn íþróttafélags og lokið
prófgráðum hvaða ár. Hver fram-
gangur hafi verið í titlatogi og
deildaflakki innan fyrirtækis eða
stofnunar. Svona upptalning er ein-
faldlega hallærisleg en segir auðvit-
að talsvert um fólkið sem í hlut á svo
og kannski gildismat samfélagsins.
x x x
Kannski er allt hégómi og eft-irsókn eftir vindi,“ segir í Pré-
dikaranum. Sækir fólk virkilega
upphefð sína og fær lífsfyllingu með
því að veljast til forsvars? Vera í fé-
lagsstarfi; sinna skylduverkum við
að manna tiltekna pósta eða geta
verið í ráðsmannshlutverki? Geta
sagt öðrum fyrir verkum, komið með
hugmyndir, lagt línurnar og fengið
aðra til að fylgja sér? Ellegar að til-
taka sérstaklega alls konar heiðurs-
merki og viðurkenningar sem við-
komandi áskotnast, sem efalítið eru
verðskuldaðar. Hver veit? En eru
slíkir verðlaunapeningar mikils virði
þegar öllu er á botninn hvolft í reikn-
ingsskilum ævinnar?
x x x
Víkverji hefur jafnan forðast öll fé-lags- og trúnaðarstörf, sem
höfða ekki til hans. Er sjálfum sér
nægur í flestu; er í frábærri vinnu,
elskar að vera með fjölskyldu og vin-
um, ferðast heima og erlendis, lesa
góðar bækur, fara í gönguferðir og
æsir sig helst ekki yfir málefnum líð-
andi stundar. Þægilegt líf er mark-
mið Víkverja og eins að eiga sig
sjálfur. Vissulega þurfa alltaf ein-
hverjir að veljast í leiðtogahlutverk;
sjá til þess að verkefni dagsins gangi
upp og góð mál verði að veruleika.
Slíkt á þó jafnan að vera á lág-
stemmdum nótum og eins og hvert
annað skylduverk en aldrei frásagn-
arvert fínirí í afmælisgreinum.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Enginn er sem þú, Drottinn. Vold-
ugur ert þú og mikill er máttur
nafns þíns.
(Jeremía 10.6)