Morgunblaðið - 02.07.2018, Side 26

Morgunblaðið - 02.07.2018, Side 26
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Stjúpfjölskyldur eru ekki minni- hlutahópur að stærð en virðast hafa minnihlutastöðu í samfélaginu. Við fögnum margbreytileikanum og er- um meðvituð um réttindi alls kyns hópa en þegar kemur að stjúp- fjölskyldum vill það gerast að þær verði ósýnilegar í kerfinu.“ Þetta segir Valgerður Halldórs- dóttir, höfundur bókarinnar Hver er í fjölskyldunni? – Skilnaðir og stjúp- tengsl. Valgerður er félags- og fjöl- skylduráðgjafi, heldur úti vefsíð- unni www.stjup- tengsl.is og er formaður félags stjúpfjölskyldna. Hver er í fjöl- skyldunni? kom fyrst út árið 2012 en bókin var ný- lega endur- útgefin. Að sögn Valgerðar er það ánægjuefni að bókin hafi selst svo vel að kalli á endurútgáfu, en ein ástæða fyrir áhuganum á verkinu er að Hver er í fjölskyldunni? er notuð sem kennslubók í háskólanám- skeiðum. „Fagstéttir eru bless- unarlega farnar að gefa hlutskipti stjúpfjölskyldna gætur en fólk sem er sjálft í stjúpfjölskyldum er líka þakklátt fyrir að hafa rit sem getur leiðbeint þeim í gegnum þau vanda- mál sem algengt er að þannig fjöl- skyldur reki sig á.“ Vandamál koma upp þrátt fyrir góðan ásetning Ósýnileiki stjúpfjölskyldna er m.a. greinilegur í dægurmenningunni og erfitt að finna uppbyggilegar fyrir- myndir í kvikmyndum eða sjón- varpsþáttum sem stjúpfjölskyldur geta samsamað sig við og reynt að nota sem fordæmi um hvernig má best leysa úr þeim vandamálum sem komið geta upp innan fjölskyld- unnar. Nokkurs konar leiðarvísir fyrir þetta fjölskylduform komi í góðar þarfir. Valgerður segir vandamálin geta blossað upp jafnvel þótt allir séu af vilja gerðir að láta hlutina ganga: „Gefum okkur t.d. stjúpfjölskylduna Jón og Gunnu þar sem Gunna á barn úr fyrra sambandi við Sigurð og þau skiptast á að hafa barnið hjá sér. Nú hringir Sigurður og spyr Gunnu hvort barnið geti verið hjá henni í næstu viku svo hann geti skotist úr bænum, og Gunna svarar strax ját- andi og þykir ekkert mál. Þetta myndi kallast góð foreldrasamvinna, nema hvað Jón, nýi makinn, getur upplifað þetta þannig að verið sé að taka ákvarðanir um hans tíma án þess að haft sé við hann samráð. Smám saman getur hann fengið það á tilfinninguna að komið sé fram við hann eins og hann skipti engu máli og leiðir á endanum til ágreinings sem hefði verið auðvelt að fyrir- byggja,“ útskýrir Valgerður og bæt- ir við að oft á tíðum sé fólk ómeð- vitað að skapa vandamál þar sem það vantar þekkingu á sérstöðu stjúpfjölskyldna og dýnamík henn- ar. „Lausnin getur verið ósköp ein- föld: að haft sé samráð við núverandi maka um breytingar áður en ákvörðun er tekin. Ef þetta samráð vantar er hætta á að það leiði til ágreingins sem hefur áhrif á maka- sambandið og aðlögun barnins að stjúpfjölskyldunni.“ Erfitt að taka góðar ákvarðanir í skilnaðarkrísu Þá fer fólk stundum inn í nýtt samband með alls konar farangur úr fyrra sambandi. „Bæði fyrrverandi maki og börn upplifa iðulega að hlut- irnir gerist mjög hratt. Stundum á eftir að greiða úr ýmsum málum frá fyrra sambandi, s.s. peningahliðinni og umgengni, og koma á viðeigandi samskiptum milli fyrrverandi maka. Allt getur þetta litað nýja sam- bandið. Annar aðilinn er ef til vill tilbúinn að horfa fram á við og tilbú- inn að stofna heimili en hinn er með augun á baksýnisspeglinum og þykir ýmislegt óklárað. Það er margt sem fólk áttar sig ekki alltaf á við skilnað og þegar farið er í nýtt samband get- ur verið óljóst hver verkefnin eru varðandi börnin. Stundum er fólk heldur ekki almennilega í stakk búið til að taka góðar ákvarðanir í skiln- aðarkrísunni,“ segir Valgerður. „Ég myndi segja að það væri hollt að gera ráð fyrir því eftir skilnað að foreldrar tækju reglulega stöðuna, s.s. á 6-12 mánaða fresti, og gerðu með sér það sem ég kalla foreldra- samning sem snýst ekki bara um hvar börnin eru stödd á ákveðnum tímum eða dögum heldur hvernig foreldrar barnsins taka t.d. ákvarð- anir um breytingar og tímamót í lífi barnsins, tryggja tengsl við báðar fjölskyldur og aðkomu stjúpfor- eldra,“ útskýrir Valgerður. „Það er ekki alltaf sniðugt að ætla að útkljá og útfæra hvert einasta atriði strax eftir skilnaðinn enda skilnaðurinn erfiður tími og fólk veit ekki í upp- hafi þeirrar vegferðar hvaða mál geta komið upp og hvaða nýju skyld- ur það kann að hafa þurft að taka á sig.“ Vilja ekki kveðja börnin ósátt Fyrir mestu er að gætt sé að hagsmunum barnanna sem stundum þýðir að það þarf að sýna þeim aga og aðhald – en það getur verið hæg- ara sagt en gert. „Ég hef rekið mig á það í starfi mínu að margir foreldrar eiga erfitt með að setja börnum sín- um heilbrigð mörk þegar þau eru kannski bara viku í senn hjá hvoru foreldri. Ein mamman sagðist til að mynda ekki vilja að börnin færu ósátt frá henni, því það gæfist svo Að skapa stjúpfjölskyldu þar sem allt gengur að óskum  Bókin Hver er í fjölskyldunni? var nýlega endurútgefin  Íslenskar stjúp- fjölskyldur reka sig á ýmsar krefjandi áskoranir og hafa fátt til að styðjast við 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2018 Miðasala á stórmyndina Ocean’s 8 hefur gengið stórvel vestanhafs en hún hefur þénað samtals 171 milljón í heild á heimsvísu. Myndin er sjálf- stæð en þó byggð á á grunni hinna Ocean’s-myndanna sem fjalla um teymi karla (nú kvenna) sem taka höndum saman og gerast þjófar. Í Ocean’s 8 eru konur í aðalhlutverki og ákveða þær að ræna verðmætum á Met Gala og skipta gróðanum á milli sín. Framleiðendur Ocean’s 8 gerðu myndina í þeim tilgangi að fjölga stórmyndum með konum í að- alhlutverki. Bendir allt til þess að bíógestir séu því sammála en mynd- in endar líklegast sem önnur sölu- hæsta Ocean’s-myndin á eftir upp- runalegu Ocean’s 11-myndinni sem út kom 2001. Má þó benda á að kon- urnar eru í hlutverkum sem áður voru skipuð körlum og mætti því spyrja sig hvort framleiðendur treysti ekki kvennamyndunum nægilega mikið til að þær fái eigin söguþráð. Svipað var upp á ten- ingnum þegar farið var í gerð kven- útgáfu Ghostbuster-myndanna sem kom út árið 2016, en hún gekk einnig mjög vel ytra. Glæpakvendi Úr Ocean’s 8, sem hefur fengið fína aðsókn í Bandaríkjunum. Glæpakvendin í Ocean’s 8 vinsæl ytra Flestir foreldrar hafa áhyggur af börnum sínum við skilnað. Valgerður segir börnin flest jafna sig á skiln- aði fyrr eða síðar og að í sumum tilvikum sé skilnaður- inn jafnvel léttir fyrir börn. Hún mælir með því að foreldrarnir upplýsi barnið í sameiningu um skilnaðinn, hvað tekur við og hver áhrifin verða á líf barnsins. „Skilnaðurinn getur skapað mikla óvissu fyrir barnið, sem vill t.d. fá að vita hvort það getur áfram gengið í sama skóla eða hvenær það verður hjá öðru foreldrinu og hvenær hjá hinu.“ Valgerður segir það á ábyrgð foreldranna að ákveða að skilja og það sé ákvörðun sem barnið eigi aldrei að taka þátt í. „Börn hafa líka tilhneigingu til að kenna sjálfum sér um hlutina og því mikilvægt að þau fái skýr skilaboð um að svo sé ekki,“ segir hún. „Það ætti líka aldrei að gerast að börnin séu sett í það hlutverk að flytja skilaboð á milli foreldra sinna. Ef það er eitthvað sem foreldrarnir þurfa að ræða gera þau það beint sín á milli eða með aðstoð fagfólks, ekki í gegnum barn- ið.“ Er líka brýnt, þegar skilnaður er afstaðinn, að for- eldrar gæti þess að tala ekki illa hvort um annað við barnið eða láti það hlusta á neikvæða umræðu. „Það getur setið eftir alls kyns gremja og særindi, en það eru þá hlutir til að ræða við aðstandendur eða fagfólk en ekki börnin.“ Hvernig á að búa barn undir skilnað? BÖRNUM HÆTTIR TIL AÐ KENNA SJÁLFUM SÉR UM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.