Morgunblaðið - 27.07.2018, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 7. J Ú L Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 175. tölublað 106. árgangur
ALLTAF STUTT Í
LEIKINN Á NÝJU
PLÖTUNNI
MÓTORHJÓLA-
SKÓGUR DAFNAR
GERA RÁÐ FYRIR
MANNMERGÐ Í
TRÉKYLLISVÍK
UPPGRÆÐSLUSTARF 12 TÓNLEIKAR Í ÁRNESKIRKJU 31TEITUR MAGNÚSSON 30
Miklar hækkanir að baki
Framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Festis spáir minni hækkun á íbúðaverði
Horfir til þess við hönnun Héðinsreitar Launahækkanir gætu þrýst á verðið
Róbert Aron segir Festi munu
taka mið af verðþróuninni við hönn-
un um 200 íbúða á Héðinsreit. Mark-
aður fyrir dýrar íbúðir sé lítill. Ef
margar slíkar komi á markaðinn geti
svo farið að þær seljist ekki.
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, tekur undir að
skeið mikilla hækkana sé að baki.
Hins vegar kunni launahækkanir á
næsta ári að ýta enn frekar undir
fasteignaverðið. Laun og fasteigna-
verð fylgist enda að þegar til lengri
tíma er litið. Vegna verðbólguáhrifa
slíkra launahækkana sé þó ekki víst
að raunverðið hækki mikið.
Þrátt fyrir að almennt muni hægja
á hækkunum geti einstakir eigna-
flokkar átt inni hækkanir. Til dæmis
geti lægri vextir ýtt undir verð
stærri eigna. Nú sé orðinn lítill mun-
ur á verði íbúða og sérbýlis.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tímabil mikilla verðhækkana á nýj-
um og vel staðsettum fasteignum á
höfuðborgarsvæðinu er að baki.
Fram undan er skeið þar sem fast-
eignir hækka í takt við verðlag.
Þetta er mat Róberts Arons Ró-
bertssonar, framkvæmdastjóra fast-
eignaþróunarfélagsins Festis, sem
stýrt hefur stórum íbúðaverkefnum.
Nýr risi á markaði
» Kaldalón byggingar hf.
keypti lóðir Festis í Vogabyggð.
» Aðaleigendur Festis eru
hjónin Ólafur Ólafsson, gjarn-
an kenndur við Samskip, og
Ingibjörg Kristjánsdóttir.
MSpái nú minni … »14
Þór, bátur Björgunarfélags Vestmannaeyja, flyt-
ur jarðfræðivísindamenn í Surtsey og sækir í
sömu ferð líffræðivísindamenn sem stundað hafa
fjölbreyttar rannsóknir í Surtsey. Þyrla
Landhelgisgæslunnar sótti jarðvísindamennina
að loknum leiðangri sem heppnaðist mjög vel, að
sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar jarðeðlis-
fræðings. Hann segir að 140 gráðu heitt vatn úr
borholu hafi komið á óvart. Magnús Tumi segir
landtöku í Surtsey ekki auðvelda. Þangað sé að-
eins fært þyrlum og gúmmíbátum sem geta lent
á ströndinni norðan til þegar sjór er kyrr. Surts-
ey, sem er friðlýst og lokuð almenningi, komst á
heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna árið 2008.
»10
Ljósmynd/Magnús Tumi Guðmundsson
Vísindaleiðangrar ferjaðir til og frá friðlandinu Surtsey
Náttúruperla á heimsminjaskrá
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður
Gray Line á Íslandi, segir vegakerfi
landsins „í molum“ og að öryggis-
stuðull veganna hafi lækkað „veru-
lega“. Ástandið segir hann mikið
áhyggjuefni sem hafi farið stigvax-
andi undanfarin ár.
Mjög hefur verið fjallað um
ástand vega að undanförnu, meðal
annars í kjölfar alvarlegra umferð-
arslysa. Þórir segir slysin sýna vel
ástand vegakerfisins hér á landi.
„Það fer til að mynda bíll út af á
Mosfellsheiðinni og þar verður al-
varlegt slys. Á svipuðum tíma fer bíll
út af á Hellisheiðinni og þar verður
ekki slys á fólki. Vegurinn á Hellis-
heiði uppfyllir þessa öryggisstaðla
sem gerðir eru til þjóðvega en ekki
vegurinn á Mosfellsheiðinni,“ segir
Þórir í samtali við Morgunblaðið.
Taka lítið tillit til umferðar
Þá segir Þórir ákveðin vandamál
fylgja fjölda hjólreiðamanna í um-
ferðinni og að erfitt sé fyrir öku-
menn að komast framhjá þeim. „Því
miður hefur borið mikið á því að þeir
hjóli samhliða bifreiðum og taki ekk-
ert tillit til umferðarinnar“. »6
Vegakerfi
landsins í
molum
Umferðarslysin
endurspegla ástand
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Örtröð Mikil umferð er við fjölsótta
staði og þar eru vegir víða í ólestri.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Skammt er stórra verkefna á milli
hjá íslenskum tæknifyrirtækjum
austast í Rússlandi. Í fyrradag var
skrifað undir samninga Skagans 3X
og Kælismiðjunnar Frosts um heild-
arlausn og frystikerfi í nýja verk-
smiðju fyrirtækis sem kennt er við
Lenin í Petropavlosk á Kamtsjatka.
Á sama tíma eru íslenskir starfs-
menn að hefja sína vinnu við upp-
sjávarfrystihús á Shikotan, sem er
ein Kúrileyja, og eru um 20 íslenskir
starfsmenn komnir þangað. Ekki
fæst uppgefið hvert samningsverðið
er, en áætla má að það sé 6-7 millj-
arðar króna fyrir bæði verkefnin.
Ætlunin er að verksmiðjan á
Kúrileyjum verði komin í gagnið í
vetur. Næsta vor verði tæki og tól ís-
lensku fyrirtækjanna flutt norður til
Petropavlosk þar sem ráðgert er að
hefja uppsetningu búnaðar næsta
sumar. Gangsetja á verksmiðjuna
þar í ársbyrjun 2020.
Ingólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri Skagans, segir að íslensku
fyrirtækin hafi nú samið við tvö risa-
fyrirtæki í sjávarútvegi í Austur-
Rússlandi. Unnið var að samnings-
gerð undir hatti fyrirtækisins Knarr
Rússland og segist Ingólfur bjart-
sýnn á framhaldið. Ýmislegt fleira sé
í gangi og þessir samningar séu von-
andi bara byrjunin á verkefnum í
Rússlandi.
Lokahnykkurinn í Færeyjum
Eftir um mánuð verður byrjað að
frysta uppsjávarfisk í nýju frystihúsi
Varðans á Þvereyri í Færeyjum.
Það hús kemur í stað frystihúss sem
eyðilagðist í eldi sumarið 2017. Nýja
frystihúsið afkastar um 1.200 tonn-
um af uppsjávarfiski á sólarhring og
mun verða stærsta uppsjávarfrysti-
hús í heimi. Auk Skagans og Frosts
koma Rafeyri og fleiri íslensk fyrir-
tæki að því verkefni, sem kosta mun
um fimm milljarða króna. »11
Undirritun Sergey Tarusov, forstjóri
Lenin Kolkhoz (t.v.), og Ingólfur Árna-
son, framkvæmdastjóri Skagans 3X.
Milljarðaverkefni í Austur-Rússlandi
Frá Kúrileyjum til Kamtsjatka
Ýmislegt fleira í gangi í Rússlandi
Dómsmála-
ráðherra hefur
samþykkt 135
beiðnir útlendra
aðila um leyfi til
að eignast fast-
eign á Íslandi frá
árinu 2008 þar til
nú. Þrjár bíða af-
greiðslu.
Frá 2008 til
2011 voru sam-
þykktar innan við tíu undan-
þágubeiðnir á ári. Frá 2012 til 2015
bárust á annan tug beiðna hvert ár
og 2016 og 2017 voru þær á þriðja
tug hvort ár. Það sem af er þessu
ári eru undanþágubeiðnirnar orðn-
ar 15 talsins. »13
Æ fleiri útlendingar
vilja kaupa fasteign
Fasteignir Vaxandi
áhugi útlendinga.