Morgunblaðið - 27.07.2018, Page 6

Morgunblaðið - 27.07.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI æli- & frystiklefar í öllum stærðum K Hættuástand á þjóðvegunum  Vegakerfi landsins er í molum, segir stjórnarformaður Gray Line  Víða má finna ónýtar eða illa farnar vegaxlir  Hjólreiðamenn hjóla oft samhliða á vegum og taka ekki tillit til vélknúinna ökutækja Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is „Vegakerfið er í molum og öryggis- stuðull veganna hefur lækkað veru- lega,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line á Ís- landi, í samtali við Morgunblaðið. Þórir segir ástandið mikið áhyggju- efni sem hafi farið stigvaxandi und- anfarin ár. Þjóðvegir landsins hafa verið í deiglunni undanfarið, m.a. vegna slysa sem orðið hafa í umferðinni. Þórir segir dæmin sýna vel ástand veganna. „Það fer t.a.m. bíll út af á Mosfellsheiðinni og þar verður al- varlegt slys. Á svipuðum tíma fer bíll út af á Hellisheiðinni og þar verður ekki slys á fólki. Vegurinn á Hellisheiðinni uppfyllir þessa örygg- isstaðla sem gerðir eru til þjóðvega en ekki vegurinn á Mosfellsheið- inni.“ Þórir telur að axlir á mörgum vegum séu orðnar ónýtar og hafi einfaldlega gefið sig. „Þegar stórir bílar fara út á þessar axlir þá gefa þær sig. Á slíkum vegum er erfitt fyrir bifreiðar að mæta t.d. hjól- reiðafólki sem skapar mikla hættu.“ Í Morgunblaðinu í gær birtist við- tal við rútubílstjóra sem sagði hjól- reiðafólk skapa mestu hættuna í umferðinni í dag. Þórir segir fjölda hjólreiðamanna í umferðinni hafa aukist mjög að undanförnu. „Það er ákveðið vanda- mál að komast fram úr hjól- reiðafólki. Því miður hefur borið mikið á því að það hjólar samhliða bifreiðum og tek- ur ekki tillit til umferðarinnar fyrir aftan sig. Það þarf að auka verulega kynningu til þessa hóps og stuðla að því að hann verði ekki að lestarstjóra á vegun- um,“ segir Þórir. Guðmundur Baldursson, hjá Snæ- land Travel, hefur starfað sem rútu- bílstjóri undanfarin 5 ár. Hann segir þörf á að upplýsa hjólreiðamenn um umferðina hér á landi. „Til dæmis þurfa þeir að vera í áberandi klæðn- aði, sumir eru mjög dökkklæddir og það væri mjög skynsamlegt að vera með vesti til sölu í Leifsstöð og al- mennar leiðbeiningar þar.“ Þá segir hann sérstaklega þörf á að setja svo- nefndum racer-hjólreiðamönnum þröngar skorður. Mikið álag á rútubílstjórum Guðmundur segir starf rútubíl- stjóra hafa breyst mjög undanfarin þrjú ár. „Bílaleigutraffík hefur auk- ist gífurlega og álag á rútubílstjór- um samhliða því. Margir á þessum bílum hafa litla reynslu af akstri. Það mætti spyrja sig að því hvort það sé eðlilegt að bílaleigubílum geti fjölgað endalaust? Við rútubílstjóar þekkjum vel þessa hættu með bíla- leigubíla því þeir geta átt það til að snögghemla og fikta í leiðsögutækj- um. Hættan hefur því aukist mikið.“ Þá telur hann að blikur séu á lofti varðandi endurbætur á vegunum. „Vegagerðin hefur tekið gríðarlegan kipp í sumar, sérstaklega í Gullna hringnum, sem er mjög fínt. En veg- urinn austan Seljalands og suður- ströndin eins og hún leggur sig eru víða stórhættuleg því þar eru engar axlir og gríðarleg umferð.“ Þórir Garðarsson Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Að einangra útveggi utan frá er að færast í aukana,“ segir Hannes Örn Jónsson, byggingatæknifræðingur hjá verkfræðistofunni VSB. Vísar hann í máli sínu til fréttar sem birtist í Morgunblaðinu í gær þar sem rætt var við Jóhann Björn Jóhannsson, sem nýverið lauk meistaraprófi í byggingarverkfræði frá KTH-há- skólanum í Stokkhólmi. Í meistara- verkefni Jóhanns kom fram að nið- urstöður rannsókna hans bentu til þess að meiri líkur væru á myglu í húsum hér á landi en erlendis. Komi það til af því að útveggir hér á landi séu einangraðir að innan en ekki að utan líkt og tíðkast annars staðar. Hannes segir að ýmsar vangavelt- ur hafi verið uppi um hvers vegna mygla í húsum hérlendis er tíðari en í öðrum lönd- um. „Menn hafa auðvitað spáð í hvaða ástæða geti legið þar að baki. Óháð því hvernig útveggir eru ein- angraðir þá snýst þetta um að loft- ræsting sé í lagi þannig að raki myndist ekki,“ segir Hannes og bætir við að það hafi færst í aukana síðustu ár að útveggir hér á landi séu einangraðir utan frá. Þá sé það talsverð breyting frá byggingarstílnum undanfarin ár. „Gamla byggingarhefðin er að gera þetta innan frá. Það er t.d. miklu al- gengara í dag að fjölbýlishús séu ein- angruð utan frá. Aðferðin sem notuð er þegar einangrað er innan frá er í raun hverfandi. Mér finnst eins og þróunin sé í þá átt að hús verði í framtíðinni einangruð utan frá,“ seg- ir Hannes. Heitir veggir þýða minni raki Spurður um hvers vegna meiri lík- ur séu á myglu þegar einangrað er innan frá segir Hannes það vera vegna mismunandi hitastigs innan útveggjarins. „Þegar þú einangrar innan frá þá eltir hitastig veggjarins hitann sem er úti. Ef veggurinn er hins vegar einangraður utan frá þá eltir hann hitastigið innanhúss og er hlýrri en veggir sem einangraðir eru að innan. Heitir veggir eru auðvitað þurrari þannig að þá eru minni líkur á raka. Það gildir þó alltaf að hreyf- ing verður að vera á lofti og loftræst- ing í lagi,“ segir Hannes. Einangra á veggi að utan  Aðferð sem dregur úr líkum á myglu og raka í húsum Hannes Örn Jónsson Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti í gær að ráða Kristján Sturluson, sér- fræðing í dóms- málaráðuneyt- inu, sem næsta sveitarstjóra. Alls sóttu þrett- án um starfið. Kristján, sem er Dalamaður að uppruna, hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum á ýmsum stöðum. Hann var sviðs- stjóri stjórnsýslusviðs Hafnarfjarð- arbæjar frá 2013 til 2016, gegndi starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi um átta ára skeið og þar áður var hann framkvæmda- stjóri mannauðs- og umhverfismála Norðuráls á Grundartanga. Hann hefur einnig sinnt kennslu, en hann er félagsráðgjafi og sálfræðingur að mennt og hefur einnig lokið MBA-prófi frá Háskóla Íslands. Kristján kemur til starfa hjá Dalabyggð 1. september næstkom- andi. Í dag búa 667 manns í Dala- byggð, sem afmarkast af Bröttu- brekku, miðri Skógarströnd, Lax- árdalsheiði og Gilsfirði. Þéttbýli er í Búðardal og ferðaþjónusta og landbúnaður undirstöðugreinar á svæðinu. Kristján er nýr sveit- arstjóri Kristján Sturluson  Til starfa í Dala- byggð 1. september Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umhverfisstofnun (UST) synjaði umsókn Hauks Sigurðssonar hjá Fjólubláu húfunni ehf. á Ísafirði, fyrir hönd Vestfjarðastofu; um leyfi til að taka kvikmyndir við tófugreni og fuglabjarg í friðland- inu á Hornströndum. Stofnunin tel- ur að myndatakan myndi hafa verulega truflandi áhrif á dýralíf innan friðlandsins. Refir eru alfrið- aðir þar. Titill verkefnisins sem snerist um myndatöku af yrðlingum á greni er Yrðlingar í 360 gráðum. Gert var ráð fyrir einum starfs- manni og ætlaði sá að gista í tjaldi á opinberu tjaldstæði. Hann ætlaði að fara tvisvar að tófugreni og koma þar upp lítilli 360 gráða myndavél. Tveimur klukkustundum síðar yrði myndavélin sótt. Einnig var leitað leyfis til að fljúga flygildi við Hornbjarg og þar í kring. UST leitaði eftir umsögn Nátt- úrufræðistofnunar Íslands (NÍ) í ljósi þess að Hornstrandir eru frið- land og NÍ stundar þar refarann- sóknir. NÍ taldi að ekki væri hægt að réttlæta þá truflun og hættu sem drónaflug geti skapað við fuglabjörg á þeim tíma sem varp er í hámarki þegar tilgangurinn er myndataka í auglýsinga- eða kynn- ingarskyni. Í svari UST sagði m.a. að ef myndatakan væri hugsuð í markaðssetningarskyni, til að fjölga ferðamönnum á svæðinu og þeim sem vilja leita uppi greni og yrðlinga, þá væri það andstætt þeirri stefnu að vernda viðkvæmt dýralíf og refi innan friðlandsins. „Mikilvægt er að allar leiðir séu notaðar til að upplýsa ferðmenn um friðhelgi tófunnar á grenjum og að myndatökur við greni séu ekki heimilar,“ sagði í svarinu. Þá sagði UST að í sumar hefði verið mikið álag á grenjum á Hornbjargi og væru refir nú mun meira á ferðinni milli grenja en áður hefði sést. Vildi komast nálægt refunum Haukur kvaðst í samtali við Morgunblaðið hafa framleitt kynn- ingarefni fyrir Vestfjarðastofu og ferðaskrifstofur á Ísafirði sem selja ferðir á Hornstrandir og víðar. Hann hefur tekið mikið af myndum á Hornströndum og víðar um Vest- firði. Haukur kvaðst hafa fengið hug- myndina að yrðlingamyndunum frá manni sem setti 360° myndavél á meðal ljóna og tók mjög skemmti- legar myndir. „Ég hugsaði með mér að það væri hægt að gera þetta við refi, þegar yrðlingarnir fara að fara úr greninu og gefa áhorfendum upplifun af nálægð við refina,“ sagði Haukur. Hann sagði sig hafa langað að taka myndirnar við Hornbjarg vegna þess hve þar er fallegt. Haukur kvaðst hafa velt því fyrir sér að finna greni annars staðar til að mynda yrðlinga. Hann taldi ólík- legt að það yrði bannað því grenja- skyttur fái að fara á grenin til að veiða refina og yrðlingana. „Ég geri ekki ráð fyrir að þurfa að sækja um leyfi til myndatöku ann- ars staðar. Ástæða þess að ég sótti um leyfi til UST var friðlandið. Það er mikið álag á refina í Hornvík og því þótti mér réttara að sækja um leyfi,“ sagði Haukur. Mátti ekki mynda yrðlingana Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.