Morgunblaðið - 27.07.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.07.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018 Fyrir rúmum mánuði boðaði fjár-málaráðherra Grikklands „endalok grísku krísunnar … sögu- lega stund“. Þá hafði ESB náð að taka landið enn einn snúning og í ágúst skyldi takið losað og Grikkland komast út úr greiðslustöðv- uninni sem segja má að landið hafi verið í frá því að evran sigldi það í kaf.    Grikkland er þó fjarri því sloppið,það er enn með evruna, það er enn með himinháar skuldir og það er með um fjórðungi minni landsfram- leiðslu en þegar kreppan skall á.    En það er fleira en evran semplagar efnahag Grikklands. The Wall Street Journal fjallaði um það í gær að þó að landið hefði upp- fyllt ströng skilyrði annarra evru- ríkja og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefði það gert það „með því að hækka skatta svo mikið að þeir eru að kæfa litlu fyrirtækin sem mynda grunn efnahagslífsins“.    Íslendingar áttu á hættu að lenda ísömu stöðu og Grikkir. Ef vinstri- stjórninni hefði á árunum 2009-2013 tekist að hengja Icesave-skuldir á landsmenn væri ástandið annað hér en nú er og ef þráhyggjumönnum samfylkingarflokkanna hefði tekist að koma okkur undir evruna væri staðan enn líkari gríska harm- leiknum.    En staðan er þó lík að því leyti aðvið eins og Grikkir sitjum enn uppi með skattahækkanir frá þessum árum. Þær skattahækkanir eru ekki síður böl hér en þar, en munurinn er sá að hér höfum við haft sjálfdæmi um að lækka skatta á meðan Grikkir hafa lotið stjórn annarra. Hér er engin skylda að hafa háa skatta STAKSTEINAR Veður víða um heim 26.7., kl. 18.00 Reykjavík 14 alskýjað Bolungarvík 9 alskýjað Akureyri 11 rigning Nuuk 10 skýjað Þórshöfn 16 léttskýjað Ósló 25 heiðskírt Kaupmannahöfn 29 heiðskírt Stokkhólmur 31 heiðskírt Helsinki 27 léttskýjað Lúxemborg 29 léttskýjað Brussel 34 heiðskírt Dublin 24 léttskýjað Glasgow 26 heiðskírt London 32 heiðskírt París 34 heiðskírt Amsterdam 32 heiðskírt Hamborg 32 heiðskírt Berlín 31 heiðskírt Vín 23 skúrir Moskva 24 heiðskírt Algarve 23 heiðskírt Madríd 33 heiðskírt Barcelona 31 heiðskírt Mallorca 30 heiðskírt Róm 30 léttskýjað Aþena 25 þrumuveður Winnipeg 18 skýjað Montreal 24 alskýjað New York 26 skýjað Chicago 22 léttskýjað Orlando 31 þrumuveður Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:20 22:50 ÍSAFJÖRÐUR 3:59 23:20 SIGLUFJÖRÐUR 3:41 23:04 DJÚPIVOGUR 3:43 22:26 Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað tvo nýja skólameistara á framhaldsskólastigi. Steinn Jóhanns- son mun taka við embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð frá og með 1. ágúst næstkomandi. Hann hefur frá árinu 2017 gegnt embætti konrektors við skólann. Áður var hann skólameistari Fjölbrautaskól- ans við Ármúla 2012-2017. Magnús Ingvason mun frá og með 1. ágúst taka við stöðu skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla. Síð- astliðin fimm ár hefur hann gegnt starfi aðstoðarskólameistara við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti. Hann hef- ur 26 ára kennslu- og stjórnunar- reynslu að baki við skólann. Tveir nýir skóla- meistarar  Taka við keflinu í Ármúla og Hamrahlíð Steinn Jóhannsson Framkvæmdir á lóð Grunnskóla Ön- undarfjarðar á Flateyri hefjast um helgina. Framkvæmdin er liður í uppbyggingu skólalóðarinnar, en til stendur að bæta við leiktækjum á lóðina. Þórhallur Snædal, eigandi Heiðarfells efh. sem sér um fram- kvæmd verksins, segir að búa eigi til svokallaðan sælureit á skólalóðinni. „Það er verið að breyta aðeins til á grunnskólalóðinni með því m.a. að bæta við leiktækjum. Þess utan á að gróðursetja í beðin og fríkka aðeins upp á útlit lóðarinnar. Þetta er ekki mjög mikil framkvæmd en tilgang- urinn er að búa til sælureit þar sem börnin geta verið,“ segir Þórhallur. Þar sem sælureiturinn á að koma er nú möl en til hliðar við hana er sparkvöllur sem gerður var fyrir nokkrum árum. Þórhallur segir að það hafi verið kominn tími á að klára skólalóðina. „Það hefur verið spark- völlur á lóðinni og nú er verið að klára dæmið. Þetta verður flottur reitur þar sem börnin geta leikið sér,“ segir Þórhallur. Spurður hvenær hann geri ráð fyrir að ljúka verkinu segist Þórhall- ur ekki vilja gefa það upp. Það verð- ur þó fyrr en síðar. „Við ætlum að gera þetta eins hratt og hægt er. Vonandi klárast þetta fljótt.“ Ljósmynd/Ísafjarðarbær Skólinn Grunnskóli Önundarfjarðar. Sælureitur í bígerð í Önundarfirði  Hefjast handa við framkvæmdir á lóð Grunnskóla Önundarfjarðar um helgina Magnús Ingvason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.