Morgunblaðið - 27.07.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Arndís Jóhannsdóttir Helga Mogensen
Kristin Sigfríður GarðarsdóttirTinna Bjarnadóttir
ásta créative clothes Hulda B. Ágústsdóttir
Ólöf Erla Bjarnadóttir Guðrún Borghildur
Margrét Guðnadóttir
Valdís Harrysdóttir
Sunna Sigfríðardóttir
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Seinni leiðangurinn af tveimur
kláraðist á sunnudaginn. Báðir leið-
anangranir gengu vel og nú er unn-
ið úr niðurstöðunum,“ segir Þórdís
V. Bragadóttir, umsjónarmaður fyr-
ir friðlandið Surtsey sem samþykkt
var á heimsminjaskrá Sameinuðu
þjóðanna árið 2008.
„Ég nýtti tímann í Surtsey til
þess að tína rusl á tanganum sem
safnast hafði fyrir yfir veturinn,“
segir Þórdís sem tíndi upp talsvert
magn af plastflöskum, netakúlum og
netabelgjum auk þess sem stígvél
og fótbolti fundust í fjörunni. Að
sögn Þórdísar er ruslið í svipuðum
mæli og fyrir ári.
„Það er einstakt að dvelja í kyrrð-
inni í Surtsey. Þar eru engin um-
hverfsihljóð nema sjávarniðurinn.
Það er alltaf eitthvað nýtt að sjá og
gaman að fylgjast með því hvernig
nyrsti tanginn á Surtsey breytist
vegna ágangs sjávar. Hann færist
eftir vindáttinni, en í fyrra sneri tot-
an að mig minnir í vestur þegar við
hófum leiðangurinn en hafði snúist
til austurs þegar honum lauk,“ segir
Þórdís sem segir að enginn fari í
Surtsey nema með skriflegu leyfi og
í vísindalegum tilgangi.
„Í ár fóru vísindamenn frá Nátt-
úrufræðistofnun, Landbúnaðarhá-
skólanum, Jarðvísindastofnun, Mat-
ís og Ísor auk meistara- og
doktorsnema, tveggja erlendra vís-
indamanna og ljósmyndara.
„Veðurstofan sendi menn til þess
að yfirfara veðurstöðina og vef-
myndavélina í Surtsey,“ segir Þór-
dís og bendir á að mynd frá Surtsey
birtist á klukkustundar fresti á vef
Veðurstofunar. Þar megi oft sjá
Vestmannaeyjaklasann eða fugl á
steini. Einnig sé að hægt að kynnast
Surtsey í gestastofunni sem staðsett
er í Eldheimum í Eyjum.
Samfélag örvera í 80 gráðum
„Ég var í seinni leiðangrinum
sem var jarðfræði- og örveruleið-
angur og í honum var m.a. skoðað
hvernig samfélag örvera verður til
og þróast í berginu langt undir yf-
irborði jarðar við háan hita allt að
80 gráðum. Við mældum einnig bor-
holur sem boraðar voru í fyrra til
þess að að skoða breytingar á berg-
inu í Surtsey,“ segir Magnús Tumi
Guðmundsson jarðeðlisfræðingur
og bætir við að í fyrra hafi verið
boraðar holur skáhallt undir aðal-
gíginn í gegnum gosrásina til þess
að kanna hvernig breytingar á eyj-
unni hafa þróast.
„Við mældum þær holur nú og
fengum athyglisverðar niðurstöður
sem verið er að vinna úr. Þetta var
bein sönnun þess hvernig gosrásin
undir eyjunni var og það kom okkur
á óvart að hún væri enn 60 gráðu
heit,“ segir Magnús Tumi og bætir
við að tvisvar hafi verið borað í
Surtsey, árið 1979 og aftur í fyrra.
„Við höfum fleiri en eina borholu
til samanburðar og mældum dálítið
hærri hita en áður með því að bora
skáhallt. Hitinn var allt að 140 gráð-
ur mest á 120 metra dýpi sem er um
60 metra undir sjávarmáli í berginu.
Mælingin staðfestir að töluverður
hiti er enn í berginu,“ segir Magnús
Tumi sem segir hitann hjálpa vís-
indamönnum að skilja hvernig
Surtsey hafi myndast og móbergið
sem þekur hana og ver eyjuna og
aðrar eyjar í Vestmannaeyjaklasan-
um gegn ágangi sjávar.
Magnús Tumi segir að rannsóknir
í Surtsey hjálpi til við rannsóknir á
því hvernig önnur móbergsfjöll á Ís-
landi hafi myndast og ummyndun
þeirra hafi þróast undanfarin 50 ár.
„Rannsóknir þar sem fylgst er
með breytingum á nýju eldfjalli
hafa ekki verði gerðar nema í Surts-
ey,“ segir Magnús Tumi.
Næg rannsóknarefni eru í Surtsey
Allt að 140 gráðu hiti á 120 metra dýpi
Nyrsti tanginn sveiflast eftir áttum
Ljósmynd/Magnús Tumi Guðmundsson
Rannsóknir Vísindamenn við mælingar og rannsóknir á borholum í Surtsey í árlegum vísindarannsóknarleiðangri.
Ferðalag Það er að mörgu að hyggja þegar komast þarf úr og í Surtsey.