Morgunblaðið - 27.07.2018, Page 11

Morgunblaðið - 27.07.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í nýju fiskiðjuveri Lenin-samvinnu- félagsins í Petropavlosk (Lenin Kolkhoz) á Kamtsjatka-skaganum í Austur-Rússlandi verður jöfnum höndum unninn botnfiskur og upp- sjávarfiskur. Verksmiðjan verður búin lausn til að stærðarflokka, vinna og frysta tegundir eins og alaska-ufsa, nokkrar tegundir villts lax, kyrrahafsþorsk, uppsjávarfisk og smokkfisk. Skrifað var undir samninga Skagans 3X og Kælismiðj- unnar Frosts um heildarlausn í nýja húsið og rússneska fyrirtækisins við hátíðlega athöfn í íslenska sendi- ráðinu í Moskvu á miðvikudag. Haft er eftir Sergey Borisovich Tarusov, forstjóra Lenin Kolkhoz, í fréttatilkynningu að með þekkingu og venjum um vinnslu í Austur- Rússlandi í bland við framleiðslu- tækni frá Íslandi verði til framúr- skarandi leið til að auka nýtingu og verðmæti auðlindarinnar. Verksmiðjan verður meðal annars búin sjálfvirkum plötufrystum frá Skaganum 3X, einnig mun fyrirtæk- ið afhenda nýja tegund sjálfvirkra frysta til að frysta afurðir sem eru ætlaðar í sögunarverksmiðjur, sem framleiða fiskbita og þurfa því að standast stífar kröfur um lögun og fleiri þætti. Þessu til viðbótar verður verk- smiðjan búin lausfrystum sem geta tekið margs konar afurðir, allt frá smáum smokkfiski upp í heilan lax. Í heildina er verksmiðjan hönnuð til að geta fryst yfir 500 tonn á sólarhring með möguleika á aukningu seinna. Fullkomið kerfi frá Frost Kælismiðjan Frost mun sjá um allt kælikerfið í verksmiðjunni. Kæli- kerfið verður af fullkomnustu gerð og stenst allar nútímakröfur um orkunýtingu og umhverfismál. Samlegðaráhrif samvinnu Skag- ans 3X og Frosts kristallast í fyr- irtækinu Knarr Rússland, sem er endursöluaðili fyrir íslensk tækni- fyrirtæki inn á rússneskan markað, segir í fréttatilkynningu. „Knarr Rus hafa í raun virkað eins og brú fyrir okkur inn á þennan markað. Þar er fólk sem skilur tungumál og menningu beggja landa, það væri í raun ómögulegt að vinna sér sess þarna inn án þeirra aðkomu,“ er haft eftir Guðmundi Hannessyni, sölu- og markaðsstjóra Kælismiðjunnar Frosts. Tækifæri til að sanna sig „Verkefnið er mikilvægt skref fyr- ir okkur og tækifæri til að sanna enn frekar getu okkar í Rússlandi, nánar tiltekið í Austur-Rússlandi en þar er annars konar vinnsla en tíðkast Evr- ópumegin,“ er haft eftir Jóni Birgi Gunnarssyn, markaðs- og sölustjóra hjá Skaganum 3X, „Við erum nú þegar á fullu í öðru stóru verkefni fyrir Gidrostroy þannig að við erum virkilega að ná fótfestu á þessum markaði.“ Verkefnið fyrir Gidrostroy er bygging frystihúss á Shikotan, sem er ein Kúrileyja, austast í Rússlandi, en þær eru sunnan Kamtsjatka- skagans. Ingólfur Árnason, framkvæmda- stjóri Skagans 3X, segir jákvætt fyr- ir fyrirtækin að taka þátt í að koma vinnslu þarna upp á annað og hærra stig. Tólf tímabelti Í fréttatilkynningu er bent á að á milli Skipaskaga, þar sem Skaginn 3X er með höfuðstöðvar, og Kamts- jatka séu 12 tímabelti. Flutningar á milli þessara tveggja heimshluta taka því sinn tíma og þannig var áætlað að það tæki um og yfir 70 daga að koma 90 gámum af tækjum og tólum til Shikotan frá Íslandi. Mikilvægt skref á Kamtsjatka  Skaginn 3X og Kælismiðjan Frost gera samninga um frystiverksmiðju í Petropavlosk í A-Rússlandi Margt líkt » Á Kamtsjatka búa álíka margir og á Íslandi og þar af um 200 þúsund í Petropav- losk. » Eldfjöll setja svip á lands- lagið og sjávarútvegur er burð- arás í atvinnulífi. » Fyrirtækin Lenin Kolkhoz og Gidrostroy eru meðal þeirra stærstu í sjávarútvegi í Austur- Rússlandi. Petropavlosk Tölvumynd af nýju tíu þúsund fermetra fiskiðjuveri og skrifstofum Lenin Kolk- hoz á Kamtsjatka. Bæði verður unninn bolfiskur og uppsjávarafli og sjálfvirkni verður mikil. Risaverkefni austast í Rússlandi Petropavlovsk-Kamcatskij Okotskhaf Kyrrahaf J A P A N KAMTSJATKA- SKAGI K Í N A Vladivostok Shikotan K Ú RI LE YJ AR Íslendingar eru einnig með verksmiðju í byggingu fyrir rússneska útgerðarfélagið Gidrostroy á Shikotan sem er ein Kúrileyja Skaginn 3X og Frost hf. hafa gert samning við Lenin Kolkhoz um smíði fiskiðjuvers í Petropavlovsk á Kamtsjatka Verksmiðjan verður búin lausn til að stærðarflokka, vinna og frysta m.a. alaskaufsa, villtan lax, kyrrahafsþorsk, uppsjávarfisk og smokkfisk Tólf tíma- belti eru á milli Íslands og Kamtsjatka R Ú S S L A N D Shikotan Búnaður hefur verið fluttur um langan veg frá Íslandi til Kúrileyja. Fyrstu íslensku starfsmennirnir eru komnir á staðinn og uppsetning búnaðar er fram undan á næstu mánuðum. Færeyjar Byrjað verður að frysta uppsjávarfisk í hátæknihúsi Varðans á Þvereyri eftir mánuð. Afkastagetan verður um 1.200 tonn á sólarhring. Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt Nýjar vörur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.