Morgunblaðið - 27.07.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Veiðisport Selfossi
Þjónustustöðvar N1 um allt land.
Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Að minnsta kosti 81 lét lífið í
skógareldum sem geisuðu í Grikk-
landi á mánudag og þriðjudag.
Margra er enn saknað og óttast
leitarteymin að tala látinna muni
hækka. Eldarnir eru með þeim
mannskæðustu sem hafa orðið í
sögu Grikklands.
Varnarmálaráðherra Grikklands,
Panos Kammenos, sagði í samtali
við BBC að ólöglegar byggingar
hafi stuðlað að hörmungunum.
„Þetta er glæpur frá fortíðinni,“
sagði hann. „Megnið af þessum
húsum við strendur Aþenu eru án
byggingarleyfis. Strandlengjan er
undirlögð, í leyfisleysi.“ Hann segir
að byggingar milli trjágróinna
svæða séu glæpur sem lokaði fyrir
flóttaleiðir. Neitar hann öllum ásök-
unum um að ríkisstjórnin hafi
brugðist Grikkjum í öryggismálum.
Hann heimsótti hörmungasvæðið í
bænum Mati, sem þurrkaðist nán-
ast út. Við honum tóku reiðir
heimamenn sem sökuðu varnar-
málaráðherrann um að hafa brugð-
ist þeim. „Þú skildir okkur eftir,“
heyrðist í einum sem gekk við hlið
bæjarstjóra Mati. BBC greinir frá
því að maður hafi haft samband við
slökkviliðið og beðið um hjálp, en
þá hefði það ekki verið upplýst um
eldinn.
Evangelos Bournous, bæjarstjóri
í Rafina, stærsta bænum á strand-
svæðinu, sagði að eitt af hverjum
fjórum húsum í Mati hafi eyðilagst
algerlega í eldsvoðanum. Helming-
ur allra húsanna hafi orðið fyrir
skemmdum.
Eldarnir geisuðu í héraðinu Raf-
ina, í nágrenni við Aþenu. Sterkir
vindar dreifðu eldinum í strand-
bænum Mati, þar sem margir fór-
ust.
Nokkur hundruð manns flúðu í
sjóinn og björguðust. „Sem betur
fer er sjórinn hérna og við stukkum
út í. Logarnir eltu okkur alla leið í
sjóinn,“ segir einn eftirlifenda, Kos-
tas Laganos. „Við brenndumst á
bakinu og stungum okkur í vatnið.
Um stórslys er að ræða í þessum
annars yndislega bæ.“
Grísk yfirvöld hafa óskað eftir
aðstoð frá öðrum Evrópulöndum,
s.s. þyrlum og slökkviliðsmönnum
til að takast á við eldinn.
Margra er enn saknað eftir
skógarelda í Grikklandi
Varnarmálaráðherrann segir ólöglegar byggingar hafa lokað flóttaleiðum
AFP
Rústir Bærinn Mati eyddist næstum í skógareldunum. Eitt af hverjum fjórum húsum brann til kaldra kola.
Breiddust hratt út
» Eldar kviknuðu í furu-
skógum og breiddust hratt út
til bæja í nágrenni við Aþenu.
» Heit og þurr sumur gera
skógarelda að viðvarandi
vandamáli á svæðinu.
Ákveðið hefur
verið að heimila
notkun kanna-
bisefna í lækn-
ingaskyni í Bret-
landi. Þá munu
yfirlæknar geta
ávísað lyfjum
sem verða fram-
leidd úr efninu.
Þetta tilkynnti
innanríkis-
ráðherra Bretlands, Sajid Javid.
Hann gagnrýnir núgildandi lög og
segir þau ófullnægjandi. Javid
segir: „Nýleg mál sem varða veik
börn vörpuðu ljósi á stöðu okkar í
þessum málum. Hún er óvið-
unandi.“
BRETLAND
Kannabis í lækn-
ingaskyni lögleitt
Lyf Bretar gera
stefnubreytingu.
Imran Khan hef-
ur lýst yfir sigri
flokks síns, PTI, í
þingkosningum í
Pakistan.
Fulltrúar ann-
arra flokka, s.s.
PML-N, segja
hins vegar brögð
vera í tafli um
niðurstöðu kosn-
inganna.
„Við náðum árangri og okkur
hefur verið gefið umboð,“ sagði
Khan í beinni útsendingu við heim-
ili sitt í Islamabad í gær. Hins vegar
hafði engin opinber staðfesting á
úrslitum kosninganna borist frá
kjörstjórn á meðan ræða Khans
stóð yfir. Khan sagði í útsending-
unni að kosningarnar hefðu verið
þær „gagnsæjustu“ í sögu Pakist-
ans og þá sór hann þess eið að berj-
ast gegn spillingu í landinu.
PAKISTAN
Khan lýsir yfir sigri
Imran Khan