Morgunblaðið - 27.07.2018, Side 26

Morgunblaðið - 27.07.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Ítalskt nautsleður Stærð: 214 cm Verð frá 270.000 kr Stærð: 194 cm Verð frá 258.000 kr. Stærð: 172 cm Verð frá 235.000 kr. Roby sófar fyrir heimilið Sendum um land allt Aþena Örk Ómarsdóttir hjúkrunarfræðinemi á 20 ára afmæli ídag. Hún er búin með eitt ár, en hún útskrifaðist 17 ára gömulfrá Menntaskólanum í Hamrahlíð, tveimur árum á undan jafn- öldrum sínum og þá með tvöfalt stúdentspróf, þ.e. alþjóðlegt stúdents- próf úr IB námi og af listdansbraut hjá danslistarskóla JSB. Hún tók síðan hlé frá skóla í eitt ár og fór að vinna hjá Mjólkursam- sölunni og hefur verið að vinna þar með hjúkrunarfræðináminu og er þar núna einnig í sumar. „Ég vinn í afgreiðslunni og þetta er hálfgert þjónustuver. Mér líkar síðan mjög vel í hjúkrunarfræðináminu,“ segir Aþena aðspurð. „Ég var fyrst mjög óviss hvað ég vildi gera en ákvað að skella mér í hjúkr- unarfræðinámið því ég hef alltaf haft áhuga á heilbrigðisgeiranum og finnst námið spennandi.“ Aþena er ekki lengur að æfa dans en gæti vel hugsað sér fara aftur í dansnám síðar. Áhugamál hennar eru ferðalög, tónlist og að fara í leikhús. „Ég fer alltaf nokkrum sinnum í leikhús á ári.“ Aþena er lögð af stað í útilegu með pabba sínum og systur og eru þau stödd einhvers staðar á Norðurlandi. Hún heldur því upp á af- mælið seinna. Foreldrar Aþenu eru Inga Guðrún Birgisdóttir og Ómar Guð- mundsson. Systkini hennar eru Helena Sól, f. 1995, og Gabríel Máni, f. 2002. Hjúkrunarfræðinemi Aþena Örk er búin með eitt ár í náminu. Lögð af stað í útilegu um Norðurlandið Aþena Örk Ómarsdóttir er tvítug í dag Þ órður Skúlason fæddist á Hvammstanga 27.7. 1943 og ólst þar upp. Hann tók gagnfræðapróf frá Hér- aðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði 1960, var verslunar- og skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Vest- ur-Húnvetninga á Hvammstanga 1960-73 og sveitarstjóri á Hvamms- tanga 1973-1990. Árið 1990 varð Þórður fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og samstarfsstofnana þess sem þá voru Lánasjóður sveitar- félaga og Bjargráðasjóður: Þá flutti fjölskyldan frá Hvammstanga til Reykjavíkur. Þórður átti sæti í stjórnum ýmissa félaga og atvinnufyrirtækja á Hvammstanga, m.a. Steypuþjónust- unnar hf., Mjöls hf. og Prjóna- og saumastofunnar Drífu hf. á Hvamms- tanga, en þar var hann fram- kvæmdastjóri 1972-78 og stjórn- Þórður Skúlason, fyrrv. bæjar- og framkvæmdastjóri – 75 ára Hjónin Þórður með eiginkonu sinni, Elínu Þormóðsdóttur, á veitingahúsi á suðrænum slóðum fyrir nokkrum árum. Með hugann við hesta, horfin hús og bifreiðar Hestamaðurinn Þórður og hesturinn Strákur njóta sumarblíðu á Grund. Grindavík Agla Ýr Guð- björnsdóttir fæddist 14. október 2017 kl. 21.22. Hún vó 3.682 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Eva Katrín Jóhannsdóttir og Guðbjörn Ólafsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.