Morgunblaðið - 27.07.2018, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018
VINNINGASKRÁ
13. útdráttur 26. júlí 2018
424 8014 16970 25865 35222 42459 54339 66547
478 8119 17182 25890 35349 42658 55097 66878
593 8267 17685 26482 35725 42664 55563 67499
697 8338 17734 26956 35831 42990 55650 67619
735 8597 17742 27051 35861 43135 55680 68185
810 8618 18115 27127 36313 43676 55699 68290
815 8676 18654 27200 36562 44362 55853 68792
942 8990 19519 27270 36924 44736 57148 71222
1302 9031 19713 27424 37146 45275 57522 71350
2111 9059 19739 27467 37202 45289 57606 71946
2126 9641 19961 27544 37322 45920 57615 72256
2648 10010 20201 27743 37354 46128 57964 72790
2910 10235 20294 27916 37430 46181 58069 73318
3053 10260 20496 27984 37452 46276 58280 73770
3165 10300 20601 29416 37615 46628 58329 73879
3380 10539 20604 29452 37734 46829 58417 74264
3527 10722 20771 29477 37735 46926 58462 74558
3655 10740 20871 29862 37982 46944 58865 75148
3707 10781 20874 31039 38149 47262 59033 75215
4554 10791 20973 31338 38166 47328 59273 76623
4767 10952 21339 31511 38313 47965 59331 76963
5030 11703 21384 31568 38413 48367 59875 77003
5053 11915 21388 31813 38456 48389 60100 77152
5147 12145 21766 32142 38466 48590 60487 77734
5306 12204 22092 32223 38776 49019 60726 77778
5723 12526 22508 32326 39030 49107 61265 78128
6225 12584 22678 32502 39039 51199 61968 78694
6290 12869 23504 32923 39354 51597 62114 78942
6687 12897 23512 33556 39531 52367 62435 79100
6872 12920 24206 33966 39613 52485 62986 79642
7042 13181 24305 34029 39716 52610 63094 79968
7109 13890 24361 34454 39869 52623 63337
7329 14722 24369 34474 40295 52986 63380
7549 14948 24974 34592 40896 53215 63657
7735 15140 25260 34710 41064 53596 65501
7886 16041 25356 34749 41130 53598 65598
7984 16454 25548 35083 41912 54171 66360
5 7194 24031 32148 42707 57289 62110 72551
150 8468 24519 33623 44415 57918 65529 72751
319 10616 25110 34732 45407 59044 65795 73146
448 11844 25404 35067 45508 59164 66545 73828
632 14175 25508 35955 45602 59299 66997 74044
922 16203 26036 36129 49022 59315 67058 75017
2125 17391 27480 36889 49699 59752 67299 75248
5212 17624 28222 37433 49882 59817 67490 76365
5536 17702 28760 37916 50892 60213 69777 79834
5826 18262 28987 40683 51012 60786 69978
6013 21044 30074 41151 51556 60810 71081
6473 21717 31072 42009 55545 61141 71968
7085 23275 31681 42675 56135 61517 72435
Næsti útdráttur fer fram 2. ágúst 2018
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
15327 21207 23286 38999
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
6341 15344 39624 44383 62037 66441
6879 22416 40866 44858 63845 68775
11788 29776 41936 46837 64736 74426
12062 32848 43435 51830 65108 74639
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 7 3 1 1
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fyrsta breiðskífa hins skeggprúða
Teits Magnússonar, 27, sem hann
vann að þegar hann var 27 ára,
kom út árið 2014 og hlaut mikið lof
gagnrýnenda og almenna athygli,
enda Teitur einkar lunkinn laga-
og textasmiður og hljóðfæraval
óvenjulegt og frumlegt.
Og Teitur virðist hrifinn af töl-
unni 27 því önnur breiðskífa hans,
Orna, kemur út í dag, 27. júlí. Í
samtali við ofanritaðan í febrúar í
fyrra sagði Teitur m.a. að ef 27
væri vor- eða sumarplata (plötu-
umslagið er grasgrænt og mynd af
honum á því miðju, umvöfðum
gróðri) væri Orna meiri haust eða
vetur. Blaðamaður rifjar upp þessi
ummæli í samtali við Teit tæpu
einu og hálfi ári síðar og spyr
hvort hann sé enn á því að platan
sé haust- og vetrarlegri en sú
fyrsta. „Jú, að einhverju leyti,
kannski bara út af því að það er
meira um hljóðgervla og hún er
hæglátari að vissu leyti,“ svarar
hann.
Samdi „Kollgátuna“ á 28 ára
afmælisdeginum
Platan virðist við fyrstu hlustun
vera beint framhald af 27, lögin um
margt svipuð, að mati blaðamanns.
Teitur er spurður að því hvort á
plötunni megi finna lög sem hann
samdi um svipað leyti og lögin á
27. „Lagið „Kollgátuna“ samdi ég
rétt eftir að hin platan kom út,
mánuði síðar, á afmælisdegi mínum
þegar ég varð 28 ára. Þannig að
ferlið byrjar strax þar,“ segir
hann.
–Þú ert með eitt tökulag á Orna,
líkt og á 27, „Hringaná“. Hvers
vegna varð það góðkunna lag fyrir
valinu?
„Ég hef alltaf þekkt þetta lag,
söng það þegar ég var lítill og þeg-
ar ég var í kór og svo fékk ég
söngtíma í jólagjöf og kennarinn
benti mér á það. Ég var að fara að
syngja á Reykjavík Folk Festival
og úr varð þessi útsetning mín á
laginu sem endaði síðan á Orna.“
–Þurftirðu á söngtímum að halda
eða voru þeir bara til þess að betr-
umbæta sönginn hjá þér?
„Ég var nú ekkert viss um hvort
ég þyrfti á þeim að halda en svo
prófaði ég bara og þeir reyndust
mér rosalega vel,“ segir Teitur.
Söngkennarinn hafi kennt honum
söngtækni sem hafi nýst honum
vel.
En er söngurinn þá betri á þess-
ari plötu en þeirri fyrstu? „Ég veit
það ekki, það gæti verið. Ég var
náttúrulega tilnefndur til Íslensku
tónlistarverðlaunanna sem söngv-
ari ársins fyrir hina plötuna þannig
að kannski vinn ég verðlaunin
núna,“ segir Teitur kíminn og bæt-
ir við að hann geti ekki dæmt um
það sjálfur hvort honum hafi farið
fram sem söngvara.
Tók upp í skúr nágrannans
–Fyrri platan er dálítið hippaleg,
heilmikill leikur í henni. Ertu sam-
mála því og hefur þú haldið í þessa
stemningu á nýju plötunni?
„Já, vinnuferlið er kannski svip-
að en nær yfir lengra tímabil þann-
ig að það er öðruvísi. Hin var
kannski aðeins hrárri en það er
alltaf stutt í leikinn,“ svarar Teit-
ur.
–Var sama fólk að vinna með þér
að þessari plötu og 27?
„Já, nánast. Þetta var sami hóp-
ur en nokkrir bættust við. Upp-
tökustjórinn að síðustu plötu, Mike
Lindsay, flutti úr landi og ég flutti
í Vesturbæinn og kynntist Leifi
Björnssyni nágranna mínum og við
fórum að taka þessa plötu upp í
skúrnum hans, þetta byrjaði þann-
ig. Leifur og Mike eru gamlir sam-
starfsmenn og Leifur stjórnaði
upptökum hérna og svo fórum við
Arnljótur [Sigurðsson] með allar
rásirnar til London og kláruðum
plötuna þar með Mike,“ segir Teit-
ur.
Hjálpa til við að sigta úr
Tónlistarmennirnir sem leika eða
syngja með Teiti á plötunni eru
margreyndir, þau Ingibjörg Elsa
Turchi, Arnljótur Sigurðsson,
Magnús Trygvason Eliassen,
Steingrímur Karl Teague, Erling
Bang, Örn Eldjárn, Mike Lindsay,
Steinunn Harðardóttir, Sigurlaug
Gísladóttir, Þorgerður Gefjun
Sveinsdóttir og Samúel Jón Sam-
úelsson.
Teitur er spurður að því hversu
miklu máli það skipti hverjir séu
að vinna með honum, hversu mikil
áhrif hann telji samstarfsmennina
hafa á útkomuna. Hann svarar því
til að vissulega hafi samstarfsfólkið
allnokkur áhrif. „Ég fæ bara inn
spilara, þeir spila og svo hefur
lokaferlið oftast mest áhrif, að
Alltaf stutt í leikinn
Önnur breiðskífa Teits Magnússonar, Orna, kemur út í dag
Lengra vinnuferli og fleiri samstarfsmenn Fékk söng-
tíma í jólagjöf og tók fyrir „Hringaná“ sem rataði á plötuna
Eftirfarandi texti við lagið
„Skriftagang“ af plötu Teits er
nútímavædd útgáfa af texta við
lag Þursaflokksins en á plöt-
unni Orna hefur Teitur samið
nýtt lag við textann. Textinn er
að hluta til úr þjóðsögum og að
hluta saminn af Skarphéðni
Bergþórusyni og Teiti.
Prestur með pokarass
Áttu ekki dropa vatns
að selja mér til sunnudags
Ég hef stolið mör úr ám
bæði svörtum og grám
ég hef stolið mókollóttum hrúti
svo er þessi skriftargangur úti
Ég hef sögu að segja þér
segðu hana ekki eftir mér
syndir mínar segi ég þér
segðu þær ekki eftir mér
Pusher með pokarass
áttu ekki hluta gramms
að kríta á mig til mánudags
ég hef stolið flatskjám úr gám
bæði hvítum og blám
ég fann eitt sinn lögg á kúti
sumarið sem ég lá úti
Prestur með
pokarass
SKRIFTAGANGUR
Kvikmyndin Hotel Artemis verður frumsýnd í Háskóla-
bíói í dag. Sögusvið hennar er Los Angeles í ekki svo
fjarlægri framtíð og hafa blóðug og mannskæð uppþot
og óeirðir sett daglegt líf fólks úr skorðum, eins og segir
á vefnum kvikmyndir.is. Ein vin er til staðar mitt í
glundroðanum, Hotel Artemis, sem er í raun leynilegt
sjúkrahús fyrir glæpamenn. Leikstjóri myndarinnar er
Drew Pearce og meðal aðalleikara eru Sofia Boutella,
Dave Bautista, Jodie Foster og Jeff Goldblum. Kvik-
myndin hlýtur meðaleinkunnina 52 af 100 á Metacritic.
Hótel sem er í raun sjúkrahús
Sofia Boutella
Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borg-
arfirði eystri stendur sem hæst, en
hún er nú haldin 14. árið í röð.
Hápunktur hátíðarinnar er stórtón-
leikar annað kvöld. Þá stíga á svið í
Bræðslunni, eitt af öðru frá kl.
19.30: Atomstation, Between
Mountains, Daði Freyr, Stjórnin,
Emmsjé Gauti og Agent Fresco.
Bein útsending er frá tónleikunum
á Rás 2 og streymi á ruv.is.
Í kvöld er boðið upp á tvo föstu-
dagsforleiki. Annars vegar tónleika
með Amabdama, Mugison og JóaP
& Króla kl. 20 í Fjarðarborg og hins
vegar tónleika með sömu tónlist-
armönnum kl. 23.30 á sama stað.
Fyrri tónleikarnir eru sitjandi og
börn velkomin, en þeir seinni stand-
andi fyrir dansþyrsta. Í millitíðinni
eða kl. 21 verða tónleikar með þeim
Sigríði Thorlacius, Sigurði Guð-
mundssyni og Guðmundi Óskar, í
Álfakaffi.
Þess má svo geta að Afréttarinn
2018 verður kl. 21 á sunnudaginn í
Fjarðaborg, en þá verður tískusýn-
ing óskilamuna og uppskeruhátíð
aðstandenda Bræðslunnar. Nánari
upplýsingar á braedslan.is
Morgunblaðið/Hanna
Með bros á vör Daði Freyr og fleiri valinkunnir tónlistarmenn troða upp á
fjórtándu Bræðsluhátíðinni í Borgarfirði eystri um helgina.
Fjórtánda Bræðslan
Bræðurnir,
leikstjór-
arnir og
óskarsverð-
launahaf-
arnir Joel
og Ethan
Coen hafa
löngum þótt
ólíkindatól. Öllum að óvörum ætla
þeir að tefla The Ballad of Buster
Scruggs fram sem kvikmynd í fullri
lengd upp á 132 mínútur á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum í lok
ágúst að því er hermt er í Variety og
víðar. Upphaflega stóð til að Ball-
aðan um Buster Scruggs yrði sex
þáttaröð á Netflix með jafnmörgum
sögum af villta vestrinu frá sjón-
arhóli Scruggs. Kvikmyndin verður
því fyrst tekin til sýninga í kvik-
myndahúsum áður en fólk fær hana
heim í stofu í boði Netflix. Coen-
bræður bæði skrifa handrit mynd-
arinnar og leikstýra. Menn gera því
skóna að ákvörðun þeirra helgist af
því að þeir hefðu ekkert á móti því
að hampa Óskarnum eina ferðina
enn. Og lái þeim hver sem vill. Tim
Blake Nelson, sem lék í kvikmynd
bræðaranna frá 2007, No Country
for Old Men, fer með hlutverk Bus-
ter Scruggs.
Ballaðan
um Buster
Ethan og Joel Coen