Morgunblaðið - 27.07.2018, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
velja úr og þar koma Leifur og
Mike til sögunnar, hjálpa mér að
sigta úr hvað sé best að nota. Þeir
snúa kannski einhverju á haus sem
maður var búinn að festast í,“ út-
skýrir Teitur.
Leyfir laginu oft að breytast
En hvort kemur á undan hjá
Teiti, lag eða texti? Hann segir all-
an gang á því. „Yfirleitt þegar ég
er að semja textann sjálfur kemur
hann meðfram laginu eða aðeins á
eftir því en stundum hef ég samið
lag og fundið svo ljóð sem passar
við eða öfugt, fundið ljóð og samið
lag sem passar við það.“
–Finnst þér annað auðveldara en
hitt?
„Það getur verið auðveldara þeg-
ar þetta gerist samhliða því að ein-
hverju leyti er hægt að festast í
laglínunni og reyna að láta orðin
passa við hana en ég leyfi oft lag-
inu bara að breytast, er ekkert
endilega að festa mig það mikið í
laglínunni. Sumir eru mjög harðir
á þessu, að púsla þessu alveg en ég
læt það bara ráðast.“
Umbreytist og fær nýtt líf
–Ef þú lítur yfir textana þína
sérðu þá einhverja tilhneigingu hjá
þér að semja um eitthvert efni,
sérðu einhver einkenni á text-
anum?
„Já, það fer eftir því hvaða tíma-
bil maður er að upplifa í lífinu. Ég
get kannski verið að hugsa mikið
um ákveðna hluti og mig langar að
vera samkvæmur sjálfum mér, svo-
lítið sannur og miðla inn í lagið ná-
kvæmlega hvernig mér líður því
annað er eiginlega ekki hægt. Og
leyfa því svo að standa þótt ég sé
kannski ekki endilega í þessum
pælingum seinna meir, þegar ég er
að flytja lagið. Þá umbreytist það
og fær nýtt líf,“ svarar Teitur.
Hvað útgáfutónleika varðar seg-
ist Teitur enn vera að leita að
réttu dagsetningunni en dagsetn-
ing hlustunarteitinnar á Kaffi Ví-
nyl, sem er að Hverfisgötu 76,
liggur þegar fyrir. Teitin verður
haldin 1. ágúst kl. 20 og verður
Teitur gestgjafi og platan nýja
verður að sjálfsögðu bæði sett á
fóninn og til sölu, nema hvað.
Ljósmynd/Þórsteinn Sigurðsson
Fallegt Umslag Orna er fallega
hannað og innblásið af gömlum,
íslenskum frímerkjum.
Friðsæld Teitur slakar
á úti í náttúrunni.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Einn ástsælasti popptónlistarmaður
þjóðarinnar, Sturla Atlas, og tónlist-
arstjóri Íslensku óperunnar, Bjarni
Frímann sameina krafta sína annað
kvöld, laugardagskvöld, og halda
tónleika í Árneskirkju yngri í Tré-
kyllisvík. Þetta er í fyrsta skipti sem
Sturla og Bjarni flytja saman tónlist
á opnum tónleikum.
„Þetta er hugmynd frá Ólafi
Kjaran sem er sameiginlegur vinur
okkar Bjarna. Hann hefur áður
haldið tónleika þarna í Trékyllisvík
og hann stakk upp á þessu við mig.
Mér leist náttúrlega strax mjög vel
á þetta og Bjarni tók í sama streng
þannig að þetta var bara borðleggj-
andi,“ segir Sturla.
Tvennir tónleikar
Ólafur Kjaran hefur áður haldið
tónleika í Trékyllisvík en þá voru
það tónleikarnir Björnsson spilar
Bach. „Fyrir nokkrum árum hopp-
aði hann upp í bíl og bara keyrði
eitthvað. Hann ákvað að fara á stað
sem væri frekar fámennur og af-
skekktur og hann varð bara svolítið
hrifinn af Trékyllisvík og stemning-
unni þar. Fyrir tveimur árum lang-
aði hann að gera eitthvað fyrir
hreppinn og hélt klassíska tónleika
þar. Í þetta skiptið vildi hann gera
eitthvað sem væri kannski eitthvað
aðeins meira fyrir alla eða gera eitt-
hvað öðruvísi en síðast.“
Þrátt fyrir að þeir Bjarni og
Sturla komi nú fram saman í fyrsta
skipti verður ekki beinlínis nýtt efni
á tónleikunum. „Við munum
kannski taka tvö ný lög en ekkert
sem við höfum unnið saman. Við er-
um bara í fyrsta skipti núna í vik-
unni að fara yfir þetta og stilla sam-
an strengi.“ Tónlistin sem mun
heyrast er því aðallega lagasmíð
Sturlu með tvisti frá Bjarna. „Við
erum mestmegnis að fara að halda
okkur við rafmagnsorgel eða raf-
magnspíanó. Sum lögin sem við tök-
um verða bara með því undirspili en
önnur verða með einhverjum
trommu- og bassaelementum úr
upprunalegu lögunum og hann
svona spilar sitt inn í það.“
Enginn óperusöngur
Bjarni og Sturla kynntust í Ís-
lensku óperunni en Sturla fór með
hlutverk smaladrengs í uppfærslu
Íslensku óperunnar á Toscu. Að-
spurður hvort eitthvað verði um óp-
erusöng á tónleikunum í Trékyllis-
vík segir Sturla: „Nei, ekki svo
gott.“
Ólafur Kjaran, skipuleggjandi
tónleikanna, gerir ráð fyrir mann-
mergð á tónleikunum þar sem vel
hafi verið mætt á tónleikana sem
hann stóð fyrir árið 2016 í Trékyll-
isvík. „Þar var einmitt stappfullt af
fólki,“ segir Ólafur. Sturla vonar að
íbúar úr hreppnum láti sjá sig. „Ég
vona eiginlega bara fyrst og fremst
að allir úr hreppnum muni mæta.
Svo eru reyndar merkilega margir
sem ætla að koma úr bænum miðað
við hvað þetta er langt í burtu. Ég
veit alla vega um fimmtán til tutt-
ugu krakka sem ætla að koma.“
Tónleikarnir hefjast stundvíslega
klukkan átta og er frítt inn.
Mannmergð
í Trékyllisvík
Bjarni Frímann og Sturla Atlas
sameina krafta sína á tónleikum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Félagar Bjarni (t.v.) og Sturla gæddu sér á tælenskum mat þegar ljósmyndara bar að garði í gær.