Morgunblaðið - 27.07.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2018
Eftir að hafa greint 6.147 kvik-
myndahandrit hafa breskir vís-
indamenn fundið formúlu að kvik-
myndum sem afla mestra tekna.
Breska dagblaðið The Guardian
greinir frá þessu.
Vísindamennirnir flokkuðu
myndirnar í sex mismunandi til-
finningalegar þyrpingar en flokk-
unin hefur áður verið nýtt til að
flokka skáldsögur. Í kjölfarið gátu
þeir kortlagt þær þyrpingar sem
voru hvað farsælastar, óháð kvik-
myndategund.
Þyrpingin sem aflaði mestra
tekna var sú sem vísindamennirnir
kalla „mann í holu“. Slíkar myndir
hefjast á einhvers konar falli en að
lokum verður ris og allt endar vel.
Samkvæmt vísindamönnunum lík-
aði fólki ekki best við þessar mynd-
ir en það var mest talað um þær.
Dæmi um slíka mynd er Guðfað-
irinn, eða The Godfather, mafíu-
drama með Marlon Brando í aðal-
hlutverki. Myndir sem féllu undir
„maður í holu“-þyrpinguna kostuðu
að meðaltali 40,5 milljónir banda-
ríkjadala, eða rúma 4,2 milljarða ís-
lenskra króna, og öfluðu að með-
altali tæpra 60 milljóna bandaríkja-
dala í tekjur, eða rúmra 6,3 millj-
arða íslenskra króna.
Aðrar þyrpingar voru til dæmis
„tötrar til ríkidæmis“ og „ríkidæmi
til tötra“. Undir fyrrnefndu þyrp-
inguna falla myndir með samfelldu
tilfinningalegu risi út í gegnum
myndina en myndir sem falla undir
síðari þyrpinguna fela í sér þver-
öfugan söguþráð, allt byrjar vel en
smám saman fer allt í hundana.
Þrátt fyrir að „maður í holu“-
þyrpingin hafi komið best út yfir
allt þá voru „tötrar til ríkidæmis“
sú þyrping sem aflaði mestra tekna
fyrir ævisögulegar kvikmyndir.
Þyrpingin kom talsvert verr út í
samhengi við sakamálamyndir og
hrollvekjur. Gamanmyndir sem
falla undir þyrpinguna „ríkidæmi
til tötra“ voru þær sem gekk að
meðaltali verst og öfluðu minnstra
tekna.
Ganna Pogrebna, prófessor í at-
ferlishagfræði, leiddi rannsókn-
arteymið. Hún sagði í viðtali við
The Guardian að vísindamennirnir
séu ekki að hvetja til þess að ein-
ungis kvikmyndir sem falli undir
„maður í holu“-þyrpinguna séu
framleiddar. „Við erum ekki að
reyna að drepa kvikmyndaiðn-
aðinn, við erum bara að reyna að
sjá hvað er fengsælt.“
ragnhildur@mbl.is
Guðfaðirinn Myndin er dæmi um ,,maður í holu“-formúluna sem vísinda-
menn segja afla mestra tekna, að því er fram kemur í grein The Guardian.
Formúla fundin að far-
sælum kvikmyndum
Jason Spencer, þingmaður í
Georgíu, hefur sagt af sér eftir að
hafa berað sig og brúkað rasískt
orðbragð í þætti grínistans Sacha
Baron Cohen. Breska dagblaðið
The Guardian greinir frá þessu.
Þátturinn er hluti af nýrri seríu
Cohens sem ber heitið Who Is Am-
erica? Cohen var í gervi ísraelsks
hersérfræðings þegar þátturinn
var tekinn upp og var Spencer
mættur í þáttinn til þess að læra að
fæla frá og berjast við íslamska
hryðjuverkamenn.
Ein af aðferðum ísraelska her-
sérfræðingsins var að bera á sér
þjóhnappana og ota þeim að
hryðjuverkamönnum. Það gerði
Spencer án þess að hika og öskraði
um leið „Ameríka“ og „USA“.
Sömuleiðis brúkaði Spencer ras-
ískt orðbragð til að draga að sér
athygli, sýndi af sér afar rasíska
hegðun með því að leika Kínverja
og tók mynd upp undir búrku hjá
konu til að athuga hvort hún væri
nokkuð karlmaður, og þar af leið-
andi hryðjuverkamaður, eins og ýj-
að er að í þættinum.
Spencer er ekki sá fyrsti til að
láta blekkjast af Cohen en Cohen
er þekktur fyrir að bregða sér í
gervi ýmissa persóna og fá fólk til
að gera hluti sem það síðar sér eft-
ir. Nýlega fékk Cohen Sarah Palin,
bandaríska stjórnmálakonu, til að
koma í viðtal til sín en þá þóttist
hann vera fatlaður fyrrverandi
hermaður.
Í yfirlýsingu sem Spencer sendi
frá sér á mánudag baðst hann af-
sökunar á framkomu sinni en neit-
aði að segja af sér. Nú hefur tals-
maður Georgíuríkis samt sem áður
staðfest að Spencer muni segja af
sér. Í þættinum sem Spencer kem-
ur fram í er farið yfir eitt og ann-
að um hann. Þar er til dæmis
minnst á það að hann hefur sett
fram frumvarp sem bannar fólki
að hylja andlit sín meðal almenn-
ings. Ef slíkt frumvarp væri sam-
þykkt þá myndi það þýða að fólk
mætti ekki ganga um í búrkum.
ragnhildur@mbl.is
Skammarlegt Spencer lét Cohen ekki að-
eins plata sig úr buxunum heldur líka nær-
buxunum. Hér má sjá stillu úr þættinum
skömmu áður en nærbuxurnar fuku.
Varð sér til skammar og sagði af sér
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Við erum búnir að starfa saman í
mörg ár,“ segir söngvarinn Geir
Ólafsson um samband sitt við tón-
listarmanninn Þóri Baldursson en
þeir félagar vinna nú að útgáfu
nýrrar hljómplötu þar sem Geir
syngur og Þórir spilar undir á píanó.
Platan heitir Þú ert yndið mitt
yngsta og besta og er túlkun Geirs
og Þóris á ýmsum sígildum íslensk-
um dægurlögum. Þórir hefur unnið
með ýmsum heimsfrægum tónlistar-
stjörnum á borð við Elton John og
Grace Jones, sér í lagi á níunda ára-
tugnum.
„Þórir hefur útsett allt fyrir mig í
samstarfi mínu við hinar og þessar
hljómsveitir og er að útsetja fyrir
mig jólatónleikana mína, Las Vegas
Christmas Show. Okkar samstarf
hefur alltaf verið afskaplega farsælt
og gott. Það hafa margir komið til
mín og biðlað til mín að gera plötu
með íslenskum lögum. Ég fór að
hugsa að það væri gaman að gera
það, en ég hafði áhuga á að gera það
á annan hátt en maður hefur yf-
irleitt heyrt. Það hafa margir tekið
íslenskar perlur og mér hefur oft
fundist vera svipað andrúmsloftið í
útfærslunum. Falleg lög og nátt-
úrlega frábærir flytjendur en mig
langaði til að gera þetta aðeins öðru-
vísi. Ég fór að hugsa hvernig ég
gæti fundið nýja nálgun á þessar
gömlu perlur.“
„Ótrúlegur heiður“
„Ég fékk þá hugmynd að við Þór-
ir gætum gert þessa plötu, bara við
tveir, með þessum gömlu lögum,
þannig að það væri bara píanó og
söngur. Þórir hefur áður útsett og
spilað fyrir mig á plötur en þetta er í
fyrsta skipti sem við gerum plötu
tveir saman. Þetta er ótrúlegur
heiður og gaman að vinna með Þóri,
sem er náttúrulega goðsögn í ís-
lenskri tónlistarsögu. Það hefur ver-
ið unaðslegt að kynnast og vinna
með honum. Mér finnst það stórt
skref fyrir mig og minn feril,“ segir
Geir.
„Þetta eru lög eins og „Bíddu
pabbi“, „Þú átt mig ein“ og „Vetr-
arsól“ eftir Gunnar Þórðar. Inn-
blásturinn fékk ég fyrst og fremst af
útsetningunum hans Þóris. Á plöt-
unni okkar túlkum við lögin ein-
göngu með píanóleik og söng, sem
ég hef ekki heyrt áður. Við tökum
sönginn minn og píanóleikinn hans
Þóris upp beint. Það er gaman að
gera hlutina þannig að þeir verði
ekki sterílir. Það er annar blær á
þeim og önnur nálgun. Yfirleitt þeg-
ar maður heyrir þessi lög heyrir
maður, hvort sem það er á tón-
leikum eða á hljómplötum, að það
eru heilar hljómsveitir sem spila
undir þau. Það er náttúrlega tölu-
vert öðruvísi að hlusta á lögin án
hljómsveitanna. Þessi nálgun okkar
er öðruvísi og þess vegna hafði ég
áhuga á að gera þetta.“
Lá beint við að syngja
lög Villa Vill
„Þegar það er sungið eingöngu
með píanóundirleik reynir meira á
söngvarann og túlkun hans því það
er ekkert annað á bak við sem felur
sönginn. Söngvarinn kemst ekki upp
með nein mistök. Túlkunin þarf að
vera skýr og tær. Ég er að vona að
með þessari plötu nái ég til hlust-
andans því það er náttúrulega það
sem þetta snýst um, að ná til áheyr-
andans í von um að honum líki það
sem maður er að gera. Þessar út-
setningar hjá Þóri eru náttúrulega
frábærar og vinnslan okkar á lög-
unum gekk rosalega vel. Nálgunin
sem slík og túlkunin myndi ég segja
að hafi heppnast hjá okkur. En auð-
vitað verða aðrir að dæma um það.“
„Ég var búinn að skrifa niður fullt
af lögum, skoða þau og fór síðan að
reyna að átta mig á hvaða lög ættu
best við mig. Ég er náttúrlega lýr-
ískur tenór þannig að það lá beint
við að ég myndi syngja lögin hans
Villa Vill. Ég reyni þó að túlka þetta
út frá mér. Ég hef verið í klassísku
söngnámi og ég hef mikið sungið
klassískt söngefni bara með píanó-
leikara. Þetta er ekki klassískt efni í
þeim skilningi en þetta eru klassísk
popplög sem hafa í gegnum tíðina
yljað hjörtum landsmanna.“
„Túlkunin þarf
að vera skýr og tær“
Félagar Geir Ólafsson og Þórir Baldursson hafa oft unnið saman að ýmsum
verkefnum en þetta er í fyrsta sinn sem þeir gefa einir út hljómplötu.
Geir Ólafsson og Þórir Baldursson vinna að hljómplötu
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
VELDU ÚR MEÐ SÁL
Frisland 1941 með blárri skífu
www.gilbert.is
ICQC 2018-20