Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 6

Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Verð á nýjum bílum hækkar um 20-30% um áramót ef stjórnvöld bregðast ekki við breyttum að- ferðum við mælingu útblásturs bíla samkvæmt nýrri löggjöf Evr- ópusambandsins. Áhrifin hafa beinar afleiðingar á vörugjöld innfluttra bíla vegna uppsetn- ingar tollaflokka hér á landi. „Við höfum kallað eftir því að stjórn- völd endurskoði þessa reglu og óskað eftir fundum með ráðherr- um, en ekki fengið enn. Það er mjög brýnt að niðurstaða í þessu máli liggi fljótt fyrir,“ segir María Jóna Magnúsdóttir, nýr fram- kvæmdastjóri Bílgreina- sambandsins. Góð endurnýjun verði áfram tryggð „Við þetta bætist að reglur um mengun og útblástur hafa ver- ið hertar svo bílaframleiðendur hafa þurft að endurþróa vélar og annan búnað bíla. Kostnaði vegna þessa velta framleiðendur út í verðlagið og ekkert hægt að gera við því. Hinu má bregðast við og er nauðsyn. Þegar verð á bílum er hækkað um tugi prósenta kemur það illa við neytendur en einnig atvinnulífið þar sem fjöldinn allur af fólki hefur atvinnu sína af þjón- ustu og sölu á bílum. Bílar eru mjög verðteygin vara og hækk- anir sem þessar munu stöðva sölu. Í dag eru allir að berjast við að minnka mengun og væri það því glapræði hjá stjórnvöldum að tryggja ekki áfram þá góðu end- urnýjun sem hefur verið á bílum síðustu ár til að fá minna meng- andi og öruggari bíla á mark- aðinn, “ segir María ennfremur. Bílgreinasambandið eru sam- tök nærri 150 fyrirtækja sem selja bíla, gera við, þjónusta og svo framvegis. „Þetta er pólitík og barátta fyrir hagsmunum, sem eru auðvitað mismunandi og ólík- ir eins og fyrirtækin eru mörg. Rauði þráðurinn er samt sá að tryggja að regluverk í greininni sé sanngjarnt fyrir alla og svo að tryggja að menntunarmál séu í lagi. Í dag fara um það bil 50 krakkar á ári í nám á þessu sviði, það er bifvélavirkjun, rétting og sprautun. Þarna þyrftum við að fá fleiri í nám en það býður upp á marga skemmtilega möguleika, í greinum sem eru sífellt að þróast og breytast. “ Bílaáhugi vaknaði snemma Áhugi Maríu Jónu á bílum vaknaði snemma. Afi hennar rak bílaverkstæði á Akureyri, faðir hennar átti góða bíla og yndi ungrar stúlku var að fara með á rúntinn. „Ég undi mér ekki í framhaldsskóla, fór suður og hóf vinnu hjá Toyota á Íslandi. Vann þar meðal annars við fyrstu skref að opnun þjónustuvers sem í kringum aldamótin var nýmæli hjá bílaumboði,“ segir María Jóna,„Ég var seinna sölumaður hjá Toyota og í ýmsum fleiri störfum fram til 2010. Já, konur mættu vera miklu duglegri að hasla sér völl í bílgreininni sem er heillandi heimur. Bílar eru í hraðri þróun um þessar mundir, nýjar týpur og útgáfur eru að koma fram. Það er enginn iðn- aður sem hefur þróast jafn hratt á síðustu árum.“ Orkuskipti íslenska bílaflot- ans eru komin á fullt. Bílarnir eru betri og langdrægari en áður, tæknibúnaður þeirra betri. Á Ís- landi verða innviðir líka sífellt traustari og við vinnustaði, versl- anir, heimahús og víðar eru komnar orkustöðvar fyrir raf- magns- og vetnisbíla sem seljast vel. Gömlu bílunum mætti fækka hraðar „Á næstu þremur til fimm ár- um verður gjöbreyting og má bú- ast við að framleiðslu á að minnsta kosti minnstu dísilbíl- unum verði hætt. Í rafmagns- bílum eru færri snúningsfletir en þeim sem knúnir eru jarð- efnaeldsneyti sem þýðir að færra og minna þarf að gera við. Upp- færslur á tölvubúnaði, þá hugs- anlega með fjarvinnslu í gegnum netið gæti orðið viðgerðarmáti framtíðarinnar. Og með vísan til umhverfissjónarmiða eigum við að flýta fyrir endurnýjun bílaflot- ans sem er farinn að eldast nokk- uð,“ segir María Jóna og bætir við að lokum: „Fyrstu árin eftir hrun keypti almenningur sáralítið af nýjum bílum. Bílaleigurnar héldu markaðnum uppi og nú er tals- verð sala í nýlegum bílum sem þær eru að losa sig við. En gömlu bílunum mætti fækka hraðar og þar kæmi til dæmis til greina að hækka skilagjaldið sem í dag er 20 þúsund krónur og hefur ekki breyst í fjölda ára. Allt þetta þurf- um við að nálgast af raunsæi því þrátt fyrir fallegar hugsjónir reiðhjólafólks og annarra þá er og verður fjölskyldubíllinn Ís- lendingum mikilvægur aðstæðna vegna.“ Gagnrýnir breytingar á vörugjöldum bifreiða og kallar á aðgerðir stjórnvalda Morgunblaði/Arnþór Birkisson Bílar Enginn iðnaður hefur þróast jafn hratt á síðustu árum og bílgreinin hefur gert, segir María Jóna Magnúsdóttir hér í viðtalinu, Bílasala mun stöðvast  María Jóna Magnúsdóttir er fædd 1978, útskrifaðist með B.Sc. í viðskiptafræði frá HR árið 2005. Starfaði hjá Toyota 2000-2010, síðast sem yf- irmaður viðskiptatengsla. Nam ensku og stærðfræði í Banda- ríkjunum, útskrifaðist með M.Sc. í fjármálum og stefnu- mótun frá Copenhagen Busi- ness School árið 2012.  Starfaði um skeið hjá Arion banka m.a. við innleiðingu straumlínustjórnunar. Var síð- ast framkvæmdastjóri hjá Heklu hf. en tók við fram- kvæmdastjórn Bílgreina- sambandsins nú í júní. Hver er hún? Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Verkalýðsleiðtogar telja harða kjara- deilu framundan í vetur, m.a. vegna mikillar misskiptingar í launahækk- unum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að boðaðar hækkanir á vörum séu óskiljanlegar. „Við gerð- um kjarasamning við fyrirtækin árið 2015, það var gert við aðstæður sem reyndust fyrirtækjunum býsna vel og þau fengu ágætis afkomu í kjölfarið. Það er ekki eins og það hafi reynt mikið á þau.“ Þá segir Gylfi ljóst að krónan hafi verið að styrkjast sem hafi gert samkeppnisstöðu erfiðari. „En þá eiga fyrirtæki ekki að spyrna við fótum með því að hækka verð á vöru, þá hlýtur samkeppnisstaðan að versna enn meira. Þetta er gömul saga og ný í efna- hagsmálum á Ís- landi – að krónan hefur verið látin styrkjast mikið, en sjaldnast er hægt að rekja það til kjarasamn- inga.“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, telur að hörð kjaradeila sé í uppsiglingu. „Þetta lítur alls ekki vel út og nægir að nefna í því samhengi að fólk úr efri lögum samfélagsins hefur verið að fá launahækkanir sem nema 45% og upp í 56% á einu bretti, upphæðir sem nema allt að 1,2 millj- ónum. Hvernig eigum við í verkalýðs- hreyfingunni að fara inn í kjaravetur með þessi skilaboð frá þessum aðil- um?“ Kjarasamningar verka- og verslunarfólks renna út eftir rúma 100 virka daga og ekki er sátt í sjón- máli, að mati Vilhjálms. „Það eru miklar líkur á að það stefni í mjög hörð átök á íslenskum vinnumarkaði strax í byrjun næsta árs ef við sjáum ekki til lands fyrir þann tíma. Það er gífurlega erfiður vetur framundan“ Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Ís- lands, segir umræðuna ekki til að mynda sátt í samfélaginu. „Þessi barlómur um erfiða stöðu fyrirtækja byrjar þegar kemur að því að gera nýja kjarasamninga og þessi taktík er notuð til að reyna að slá á væntingar fólks.“ Hann segir Raf- greinasambandið muni horfa til launahækkana sem kjararáð hefur verið að úrskurða í komandi kjara- samningum. „Þeir hafa sett línurnar, ef að fólk sem er í efsta stigi launa- þrepsins getur fengið 45%, af hverju ekki aðrir?“ „Gífurlega erfiður vetur framundan“  Hörð kjaradeila framundan að mati verkalýðsleiðtoga  Nýlegar launahækkanir slá tóninn Gylfi Arnbjörnsson Vilhjálmur Birgisson Kristján Þórður Snæbjarnarson Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Slappt sumarveður suðvestanlands undanfarið hefur ekki haft mikil áhrif á sölu á grillkjöti og ís. En ætla mætti að minna væri grillað og að færri gerðu sér ferð í ísbúð í þeirri veðráttu sem ríkt hefur. Veðrið hefur verið öllu skaplegra norðanlands það sem af er sumri. Í ísbúðinni Brynju á Akureyri hefur íssala verið mjög góð. Þá selst meira af ís yfir sumarið með komu fleiri ferðamanna til Akureyrar, sem sækja mjög í ísinn þar. Hvað íssölu á höfuðborgarsvæðinu varðar segir framkvæmdastjóri Ísbúðar Vestur- bæjar, Katla Guðjónsdóttir, að íssal- an sé ekki svo slæm miðað við hve lítið hefur sést til sólar. Spurð um mun á milli ára segir Katla hann ekki vera mikinn og á það við allar fimm ísbúðir fyrirtækisins. Mikið keypt af bjúgum og slátri „Sala á grillvörum er minni en í venjulegu sumri en á móti er veruleg söluaukning á bjúgum og slátri, sem eru meiri vetrarvörur,“ segir Stein- þór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, í samtali við Morgun- blaðið um sölutölur sumarsins. Um 10% söluaukning er til verslana á Austurlandi meðan aðrar búðir á höfuðborgarsvæðinu eru á pari við sölu fyrrasumars. Veðrið hefur þó ekki allt að segja um breyttar sölu- tölur, segir Steinþór, heldur hafi samkeppni frá keppinautum líka sitt að segja. Einar Long, eigandi Grillbúð- arinnar, sem er í Kópavogi, segir sölu á grillum hafa verið töluvert betri í apíl, maí og júní í ár heldur en í fyrra. „En síðasta mánuðinn hefur hún verið minni en venjulega af skiljanlegum ástæðum,“ bætir Einar við. Hann tekur fram að hægt sé að grilla í öllum veðrum en vitanlega er meiri stemning í því að grilla í góðu veðri. „Aftur á móti hefur veðrið bitnað mun meira á sölu garðhúsgagna. Fólk sest ekki mikið út á sólbekk um þessar mundir,“ segir Einar. Að sögn sölustjóra ÍSAGA ehf, Þorgeirs Sæberg, hefur veðrið ekki haft mikil áhrif á sölu gaskúta að undanförnu. „Það er örlítið minni sala en í fyrra,“ segir Þorgeir í sam- tali við Morgunblaðið. Þá er salan meiri fyrir norðan heldur en fyrir sunnan. „Miðað við veðrið erum við mjög sáttir,“ segir Þorgeir. Grill- og íssala hefur haldið sér  Fáir kaupa sér þó ný garðhúsgögn Morgunblaðið/Eggert Sumartíð Íslendingar láta ekki mis- jafnt veður koma í veg fyrir ísferð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.