Morgunblaðið - 30.07.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018
U
Sumarútsalan
hafin í Kaiu
Opið virka daga kl. 11-18, lokað laugardaga í sumarListhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
30-70%af öllum
vörum
Eyþór Arnalds, oddviti sjálf-stæðismanna í borgarstjórn,
vék að vaxandi stjórnsýslu Reykja-
víkur í pistli á dögunum. Hann
benti á að skrifstofa borgarstjóra
og borgarritara
hefði vaxið einna
hraðast, kostn-
aðurinn hefði verið
157 milljónir fyrir
níu árum en yfir
800 milljónir í
fyrra.
Og Eyþór benti á nokkur starfs-heiti og starfslýsingar á skrif-
stofu borgarstjóra, sem benda ekki
endilega til að aðhaldið sé mikið á
efstu hæð ráðhússins.
Einn starfsmaður skrifstofunnarer „dagskrárfulltrúi borg-
arstjóra“ og hefur „umsjón með
dagskrá borgarstjóra og sinnir al-
mennri þjónustu við borgarstjóra“.
Á skrifstofu borgarstjóra er líka
„starfsmaður í kaffi- og funda-
umsjón“ auk „móttökufulltrúa“.
Þar er líka að finna „teymisstjóra“
og „verkefnastjóra verkefnastofu“
(nei, þetta starfsheiti er ekki tilbún-
ingur).
Þetta eru aðeins nokkrir afstarfsmönnum á vaxandi skrif-
stofu borgarstjóra og útsvarsgreið-
endur í borginni hljóta að velta því
fyrir sér hvort ekki væri möguleiki
að borgarstjóri hefði aðeins færri
aðstoðarmenn.
Svo er það áróðurssvið borg-arinnar. Þar er mikill fjöldi
sem slær ekki slöku við í áróð-
ursmálum fyrir meirihlutann, eins
og sást vel í nýafstöðnum kosn-
ingum.
Allt bendir þetta til að sparamætti víðar hjá borginni en í
þjónustu við borgarbúa eins og nú
er gert.
Verkefnastjóri
verkefnastofu
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.7., kl. 18.00
Reykjavík 16 alskýjað
Bolungarvík 8 súld
Akureyri 12 alskýjað
Nuuk 13 léttskýjað
Þórshöfn 13 léttskýjað
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 24 skýjað
Stokkhólmur 22 skúrir
Helsinki 28 heiðskírt
Lúxemborg 29 heiðskírt
Brussel 26 heiðskírt
Dublin 16 skýjað
Glasgow 14 súld
London 19 súld
París 26 rigning
Amsterdam 22 rigning
Hamborg 28 heiðskírt
Berlín 29 heiðskírt
Vín 31 léttskýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 31 heiðskírt
Barcelona 30 heiðskírt
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 31 heiðskírt
Aþena 24 skýjað
Winnipeg 19 heiðskírt
Montreal 22 skýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 24 skýjað
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:29 22:40
ÍSAFJÖRÐUR 4:11 23:08
SIGLUFJÖRÐUR 3:53 22:52
DJÚPIVOGUR 3:53 22:15
Þúsundir komu saman í Þórshöfn,
höfuðborg Færeyja, um nýliðna
helgi til að taka þátt í Ólafsvöku,
þjóðhátíð Færeyinga. Er hún haldin
dagana 28. og 29. júlí á hverju ári.
Sem fyrr var mikið um dýrðir í
Þórshöfn og mátti víða sjá fólk klætt
í sitt fínasta púss. Nær hátíðin jafn-
an hámarki síðla kvölds á Ólafs-
vökudag, 29. júlí, þegar stiginn er
hinn frægi færeyski hringdans undir
kvæðasöng.
Að sögn Halldórs Arndísarsonar,
sem staddur var á Ólafsvöku, varð
vart þverfótað fyrir fólki á aðal-
torginu í Þórshöfn þar sem sungið
var og dansað. Þá var einnig margt
um manninn við úrslitin í færeysku
meistarakeppninni í kappróðri, sem
fara ávallt fram á Ólafsvöku.
Ólafsvaka er til minningar um
Ólaf Helga Haraldsson Noregskon-
ung, sem féll í Stiklastaðaorrustu ár-
ið 1030. Þá er lögþing Færeyinga
sett á Ólafsvöku. Lögmaður Fær-
eyja, Aksel V. Johannesen, flutti
Ólafsvökuræðu sína á Lögþinginu í
gær og lagði hann meðal annars
áherslu á mikilvægi fjölskyldunnar
innan samfélagsins. axel@mbl.is
Gleði og gaman á Ólafsvöku í Færeyjum
Ljósmynd/Gunnar Arndísarson
Góða Ólafsvöku! Ungir sem aldnir fjölmenntu á Ólafsvökuhátíð í Þórshöfn.
Smíði á 34 íbúða
fjölbýlishúsi við
Urriðaholt í
Garðabæ, sem
fyrirtækið IKEA
stendur fyrir, er
á lokastigum, að
sögn Þórarins
Ævarssonar,
framkvæmda-
stjóra IKEA. Bú-
ist er við því að
fyrstu leigjendur flytji inn í byrjun
næsta árs. Aðspurður segir Þór-
arinn of snemmt að segja til um
kostnað og leiguverð. „Við stefnum
ennþá að því að bjóða þessar íbúðir
á umtalsvert lægra verði en gengur
gerist,“ segir Þórarinn í samtali við
Morgunblaðið.
„Það er búið að glerja og setja
hurðir í, þannig að það er búið að
loka húsinu. Nú er unnið að inni-
vinnunni.Við fáum húsið afhent í
október og getum þá byrjað að
koma fyrir innréttingum og gólf-
efni. Þetta gengur því bara vel,“
segir Þórarinn enn fremur.
Íbúðirnar verða 25-60 fermetrar
stærð og eru aðallega hugsaðar
fyrir starfsfólk IKEA. Nokkrar
íbúðir verða þó leigðar út á almenn-
um leigumarkaði, t.a.m. til náms-
manna. axel@mbl.is
Smíði senn
lokið á íbúð-
um IKEA
Þórarinn
Ævarsson