Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Stema kerrurCompair loftpressur
Breitt úrval atvinnutækjaBreit úrval atvinnut kja
Stema kerrurCompair loftpressur
Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833
asafl.is
HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Hágæða sláttutraktorar frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mannshöndin kemur hvergi ná-
lægt vörunum þegar þeim verður
komið fyrir í hillum nýs vöruhúss
heildverslunarinnar Innness ehf.
við Korngarða í Sundahöfn eða
þegar þær eru
teknar til fyrir
viðskiptavinina.
Kerfið sækir
vöruna þegar
sölumaðurinn
tekur niður
pöntun.
Framkvæmdir
hófust við vöru-
húsið í byrjun
september og
Magnús Óli
Ólafsson, forstjóri Innness ehf.,
sem er ein af stærstu matvöru-
heildverslunum landsins, segir að
þær séu nokkurn veginn á áætlun.
Ráðgert er að taka vöruhúsið í
notkun undir lok næsta árs.
Lofthæðin 35 metrar
Sjálfvirkur vöruhúsabúnaður, sá
fyrsti sem tekinn verður í notkun
hér á landi, gerir það að verkum að
vöruhúsið verður eitt það full-
komnasta í landinu. Þurrvöru- og
frystivörulagerar verða að mestu
leyti sjálfvirkir. Vélmenni stýra
vörunum upp í hillur og stýra til-
tektarskutlum sem taka vörurnar
til eftir pöntunum viðskiptavina.
Þetta sjálfvirka kerfi færir vör-
urnar að tiltektarstöðvum sem
verða mannaðar. Starfsfólkið þar
tekur kassana eða stykkin og setur
á bretti sem færibönd flytja að
plöstunarstöð og út á flutningabíl.
Sérstakir róbótar sjá um flutning á
vörum sem seldar eru á heilum
brettum.
Húsið verður um 15.500 fermetr-
ar að stærð, á þremur millipöllum
en geymslurnar með sjálfvirka til-
tektarkerfinu verða allt að 35
metrar á hæð og rúma um 20 þús-
und vörubretti. Er þetta tvisvar til
þrisvar sinnum hærra en í hefð-
bundnum geymslum vöruhúsa hér
á landi. Magnús Óli segir að þessi
lofthæð sé grundvöllur þess að
hagkvæmt sé að vera með sjálf-
virkan vöruhúsabúnað.
Sjálfvirka kerfið nær til al-
mennra matvara sem ekki þurfa
kælingu, svokallaðra þurrvara, og
einnig frystivara. Grænmeti,
ávextir og aðrar viðkvæmar vörur
í kæligeymslum eru hins vegar
færðar til á hefðbundinn hátt.
Öll starfsemi á einn stað
Innnes ehf. og systurfyrirtæki
eru með starfsemi á 5 eða 6 stöð-
um í Reykjavík. Dreifingar-
miðstöð og skrifstofur eru í
Grafarvogi. Það þýðir að flytja
þarf vörurnar frá höfninni, inn í
Grafarvog og síðan til baka til við-
skiptavina sem flestir eru mið-
svæðis í borginni.
Í húsinu við Korngarða verður
öll starfsemi fyrirtækisins sam-
einuð á einum stað, steinsnar frá
vöruafgreiðslum skipafélaganna
og nálægt stærstu viðskiptavinum.
Það sparar akstur og auðveldar
fyrirtækinu að uppfylla skuldbind-
ingar sínar um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Magnús
Óli bætir því við að með sjálfvirku
vöruhúsakerfi taki styttri tíma að
flytja vörur í geymslur og taka
þær til fyrir viðskiptavini, ná-
kvæmni aukist og meðferð vör-
unnar batni. Þá nýtist tækin betur
og minni hætta verði á að starfs-
fólk verði fyrir slysum.
Vélmenni tekur til vörurnar
Matvælaheildsalan Innnes byggir eitt fullkomnasta vöruhús landsins Sparar akstur og hjálpar
fyrirtækinu að uppfylla skuldbindingar í loftslagsmálum Verður um 15.500 fermetrar að stærð
Tölvuteikning/Innnes
Hátækni Vöruhús Innness ehf. í Sundahöfn verður eitt það fullkomnasta hér á landi. Í vörugeymslunum er tvisvar
til þrisvar sinnum hærra til lofts en í hefðbundnum vöruhúsum og verður húsið um 15.500 fermetrar að stærð.
Magnús Óli
Ólafsson
Morgunblaðið/Valli
Framkvæmdasvæði Vel gengur að byggja nýja vöruhúsið við Korngarða.
Heldur dapurt
veður á höfuð-
borgarsvæðinu í
sumar hefur ekki
haft áhrif á komu
skemmti-
ferðaskipa til
Reykjavíkur það
sem af er, segir
Gísli Gíslason,
hafnarstjóri
Faxaflóahafna, í
samtali við Morgunblaðið.
„Þetta hefur allt gengið sam-
kvæmt áætlun,“ segir Gísli og bætir
við í léttum dúr að farþegar
skemmtiferðaskipa leiti til landsins
til þess að kæla sig, en gríðarlega
heitt hefur verið í veðri á megin-
landi Evrópu í sumar. Talsvert
fleiri skemmtiferðaskip, alls 168,
koma til landsins í ár heldur en í
fyrra en þá voru þau 135. Hófst
„vertíðin“ í byrjun maí og stendur
allt fram í seinni hluta október.
Veðrið stöðvaði ekki
skemmtiferðaskipin
Gísli
Gíslason