Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
Unnið úr 100% náttúrulegum
jarðhitakísil og mangan í
hreinu íslensku vatni.
fyrir uppbyggingu
beina og styrkingu
bandvefjar þ.m.t.
liðbönd, liðþófar
og krossbönd.
Liðir og bein
Repair
Nánari upplýsingar á www.geosilica.is
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Mikil sumarstemning ríkti á
barnahátíðinni „Kátt á Klambra“ á
Klambratúni í hjarta Reykjavíkur í
gær. Mikið líf og fjör var á staðnum
eins og myndirnar sýna enda veður
með allra besta móti. Ljósmyndari
og blaðamaður Morgunblaðsins
kíktu á stemninguna þegar hitastig
hafði náð um 20 gráðum.
Alls voru yfir 2.500 manns á
staðnum, að sögn aðstandenda, og
börn á öllum aldri tóku þátt í leikjum
eða fylgdust með skemmtidagskrá á
sviðunum tveimur. Þetta er í þriðja
sinn sem hátíðin er haldin og hefur
hún stækkað jafnt og þétt í umfangi.
Í ár var börnunum m.a. boðið upp á
sirkuskennslu, húllafjör, dansverk,
ljóðaupplestur og þrautabrautir.
Auk skemmtiatriða frá Jóa Pé og
Króla, Emmsjé Gauta og Ronju
Ræningjadóttur, til að nefna nokk-
ur.
Á svæðinu hljómaði lagið „Ég fer í
fríið“ og má ætla að hinir fullorðnu
hafi tengt við lagið og upplifað sanna
sumarfrístemningu með fjölskyldum
sínum.
Íslendingar á faraldsfæti
Í miðbænum er hefð fyrir því að
fólk safnist saman á góðviðris-
dögum, sér í lagi á Austurvelli. Í gær
virtist miðbærinn nokkuð daufur
miðað við aðra sólardaga. Meirihluti
gesta í miðbænum voru erlendir
ferðamenn sem virtust njóta sín í
þessum óvanalega hita.
Blaðamaður hitti fyrir hjólreiða-
mennina Michael Leseka og David
Lowe frá Bandaríkjunum sem slöpp-
uðu af á Austurvelli. „Ég er á Íslandi
því ég er frá Las Vegas. Ég er ekki
hingað kominn vegna góðs veðurs.
Rigningin er mér kærkomin“ sagði
David og hló við. Þeir sögðu veðrið á
Íslandi hafa verið ívið breytilegra en
þeir áttu von á. „Vindurinn og rign-
ingin hafa sett strik í reikninginn.
Við sáum það reyndar fljótt að
versta veðrið hefur í för með sér fal-
legasta landslagið að okkar mati.“ Í
dag er þó hvorki vindur né rigning
og ákváðu þeir því að gera hlé á
hjólaferðum sínum og slappa af.
Þær Jana Steingrímsdóttir og
Berglind Ómarsdóttir nutu veð-
urblíðunnar við Tjörnina í mið-
bænum. „Ég bjóst við betra veðri,
sólin hefði mátt láta sjá sig, en þetta
er ósköp þægilegt.“ Þær áttu von á
að fleiri væru að spóka sig í svo fá-
gætum hlýindum. „Líklega hafa
margir lagt leið sína út úr bænum.
Íslendingar fara oftast eitthvað af
stað þegar það kemur gott veður.“
Morgunblaðið/Valli
Fjör Meðal fjölmargra atriða í gær var danskennsla á túninu sem andlitsmáluð börnin skemmtu sér vel í.
Sumarstemning Yfir 2.500 manns tóku þátt í barnahátíðinni á Klambratúni.
Dansgleði Hópur ungmenna flutti dansverk við góðar undirtektir barnanna.
Sumardagurinn í ár
2.500 manns sóttu barnahátíðina „Kátt á Klambra“
Erlendir ferðamenn nutu veðurblíðunnar í miðbænum
Íslensk kona um sextugt slasaðist á
göngu yfir Klofningsheiði frá Flat-
eyri yfir í Sunnudal um klukkan 14
í gær. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Ísafirði var konan á
ferð með gönguhópi er hún rann
skyndilega niður hlíð og lenti illa á
grjóti, með þeim afleiðingum að
hún slasaðist á herðablaði og hendi.
Kalla þurfti til björgunarfólk frá
Suðureyri vegna slyssins og aðstoð-
aði það við að flytja konuna að
sjúkrabíl sem í kjölfarið flutti hana
undir læknishendur.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu er konan ekki talin vera lífs-
hættulega slösuð, en ekki er vitað
nánar um líðan hennar.
Göngukona rann niður hlíð og slasaðist