Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 12

Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is Úrval af íslenskri hönnun Unicorn hálsmen frá 5.400,- SEB köttur - gylltur frá 18.600,- Alda hálsmen frá 9.600,- Birki armbands spöng frá 24.900,- Sumarið hjá mér hefur veriðlíflegt. Ég hef verið mikið áflakki, vinnutengdu og fjöl-skyldutengdu. Hef farið í styttri og lengri ferðir síðan í byrjun júní og því lítið náð að velta mér upp úr rigningarsumrinu mikla hér heima. Sem er bara hið besta mál, finnst mér. Ég er meira fyrir sól en rigningu. Ég stökk svo nánast beint út úr flugvél á Guns N’ Roses-tónleikana í Laugardalnum. Tónleika sem ég var búinn að hlakka mikið til eftir að hafa hlustað á hljómsveitina út í eitt á menntaskólaárunum. Þetta voru að mínu mati frábærir tónleikar – fyrst og fremst vegna þess að það var svo augljóst að þeir félagar höfðu gaman af því sem þeir voru að gera. Maður sá það á allri líkams- tjáningu og hreinlega í augunum á þeim. Og það smitaði út frá sér, skapaði jákvæða og góða orku í Laugardalnum. Daginn eftir tónleikana datt ég svo ofan í tómarúm og það kom mér algjörlega í opna skjöldu. Hafði á flakkinu hlakkað til að koma heim og vera heima, en það var eins og tón- leikarnir hefðu verið einhvers konar endapunktur á keðju atburða sem mynduðu stóran hluta sumarsins hjá mér. Og þegar ég velti því betur fyr- ir mér er ég búinn að upplifa svo margt spennandi, nýtt og skemmti- legt í sumar að það er líklega eðlilegt að ég lendi í spennufalli þegar hlutir róast. Spennufallinu fylgdi ör-flensa, hausverkur og líkamleg þreyta og ég streittist fyrst á móti, reyndi að halda áfram með mín verkefni og skyldur. En svo ákvað ég að fylgja eigin ráðleggingum, fresta verkefn- unum og hreinlega sofa þetta úr mér. Henti mér í bælið og var þar í tæpan sólarhring. Vaknaði svo ferskur og bjartur. Kominn út úr tómarúminu og spenntur fyrir öllu því sem framundan er hér á Íslandi næstu vikur og mánuði. Við þurfum öll að taka hvíldina al- varlega, passa upp á okkur sjálf til þess að geta gefið af okkur og verið öðrum til stuðnings og hvatningar. Pælið bara í Slash, eftir að hafa verið á sviðinu í Laugardalnum í tæpa fjóra klukkutíma, stútfullur af orku og leikgleði, skellti kappinn sér í handstöðu áður en hann labbaði keikur út af sviðinu. Þannig orku hefur maður bara ef maður hefur gaman af því sem maður er að gera og passar að hvíla sig milli lota. Tómarúm eftir tónleika Njóttu ferðalagsins Guðjón Svansson guðjon@njottuferdalagsins.is Guðjón Svansson er Íslendingur, ferðalangur, eiginmaður, fjögurra stráka faðir, rithöfundur, fyrirles- ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og nemandi sem heldur úti bloggsíð- unni njottuferdalagsins.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Rjómablíða Tökum hvíldina alvarlega. Sundið er gott fyrir líkama og sál. Líkt og síðustu ár verður fjöl- skylduhátíðin Sæludagar haldin í Vatnaskógi um verslunarmannahelg- ina þar sem fjöldi fólks á öllum aldri skemmtir sér saman á. Hátíðin hefst nk. fimmtudag 2. ágúst. „Dagskráin í ár er fjölbreytt og spennandi að venju. Í Vatnaskógi er frábær aðstaða fyrir unga sem aldna og er hún nýtt á skemmtilegan og fjölskylduvænan máta Sæludögum,“ segir Benjamín Pálsson sem er einn af forsvarsmönnum hátíðarinnar. Haldnir verða tónleikar á laug- ardagskvöld þar sem Regína Ósk og Friðrik Ómar skemmta. Meðal ann- arra viðburða má nefna varðeld, íþróttir, fræðslustundir, kvöldvökur, hoppukastalaþorp, fótbolta, báta, vatnafjör, brúðuleikhús, fjölskyldu- guðsþjónustu og spennandi ung- lingadagskrá Skemmtilegt og fjölskylduvænt Sæludagar í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina Ljósm/Aðsend Vatnaskógur Uppspretta ævintýra í lífi ungra jafnt sem aldraðra. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Við ætlum að ganga um fal-legt land. Fossarnir í efrihluta Þjórsár eru auðvitaðekki í alfaraleið og því er gaman að kynna þá fólki sem heillast af tignarleik þeirra og sterkum svip,“ segir Sigþrúður Jónsdóttir náttúru- fræðingur. Um versl- unarmannahelg- ina stendur Ferðafélag Ís- lands fyrir svo- nefndri Fossa- göngu um Þjórsárdal og Gnúpverjaafrétt, sem þær Sig- þrúður Jónsdóttir og Björg Eva Er- lendsdóttir fara fyrir. Þær eru báðar úr Gnúpverja- hreppi, hafa oft farið á fjall og eru því staðháttum kunnugar. Lagt verður af stað frá Reykjavík árla morguns, næstkomandi laugardag, 4. ágúst, og ekið að Stöng í Þjórsárdal – og þaðan gengið að Háafossi; sem steypist 122 m fram af hálendisbrúninni. Næsta dag verður svo ekið að Bjarnarlækjarbotnum á Gnúpverja- frétti og gengið að Kjálkaversfossi í Þjórsá. Þaðan verður farið um Loðnaver að Dalsá, sem þarna fellur í mörgum litlum og fallegum fossum. Breiðir úr sér á klöppum Á sunnudag, þriðja og síðasta dag ferðarinnar, verður eftir nætur- dvöl í fábrotnum fjallaskála ekið að svonefndum Kóngsási og gengið að fossinum Dynk og þaðan niður með Þjórsá að Gljúfurleitarfossi. „Dynkur er auðvitað til- komumestur fossanna á þessum slóð- um; 38 metra hár þar sem hann breiðir úr sér á klöppunum og fellur fram í miklu gili. Mest er vatnið í gljúfrinu og ánni að vestan – en að virða fossinn og náttúruna á þessum slóðum fyrir sér er alltaf til- komumikið,“ tiltekur Sigþrúður. Það var árið 2002 sem Sigþrúður og Björg Eva efndu til fyrstu skipu- lögðu göngunnar um þessar slóðir sem þá voru talsvert í umræðunni vegna fyrirhugaðrar Norð- lingaölduveitu. Þar var gert ráð fyrir stíflu og vatnsmiðlun í Þjórsárverum en henni hefði fylgt að vatn hefði að mestu verið tekið af Þjórsá og foss- arnir þá orðið berar klappirnar. Hlakka til ferðar „Sem betur fer tókst að afstýra þeim framkvæmdum, enda hefði skaðinn orðið mikill. En eftir stóð að fjöldi fólks fékk áhuga á fallegri nátt- úru á þessu svæði og ég hlakka til að fara þangað nú um verslunarmanna- helgina,“ segir Sigþrúður. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dynkur Fáir fossar landsins eru jafn tilkomumiklir og svona staði er gaman að skoða í leiðsögn staðkunnugra. Ferð um fossaslóð Í efri hluta Þjórsár eru fallegir fossar. Um næstu helgi stendur Ferðafélag Íslands fyrir þriggja daga gönguferð um þessar fá- förnu slóðir sem sann- arlega koma á óvart. Ljósmynd/Sigþrúður Jónsdóttir Gljúfurleitarfoss Vatnsmikill þar sem hann fellur í djúpu en grónu gili. Sigþrúður Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.