Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 15

Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 Z-brautir & gluggatjöld Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili Manntjón í hörðum jarðskjálfta  Snarpur jarðskjálfti reið yfir eyjuna Lombok í Indónesíu  Talið að 14 manns hafi látið lífið og 162 eru slasaðir eftir að byggingar hrundu  Fjöldi öflugra eftirskjálfta og íbúar óttast að snúa heim til sín Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Að minnsta kosti 14 manns týndu lífi og yfir 160 manns slösuðust er snarpur jarðskjálfti af stærðargráð- unni 6,4 reið yfir eyjuna Lombok í Indónesíu á hádegi að íslenskum tíma í gær. Breska ríkisútvarpið, BBC, og fréttaveita AP greina frá þessu. Mikil skelfing greip um sig þegar skjálftinn reið yfir, en Lombok er vinsæl ferðamannaparadís austan við eyjuna Balí. Tjón varð á fleiri en 1.000 húsum og fannst skjálftinn víða, þar á meðal á Balí, en ekki hafði í gær verið tilkynnt um mannfall, slys eða skemmdir þar. Mælingar bandarísku jarðfræði- stofnunarinnar benda til þess að skjálftinn eigi upptök sín á sjö kíló- metra dýpi, en grunnir jarðskjálftar sem þessi valda oft meira tjóni en skjálftar sem eigi sér upptök dýpra. Skjálftinn átti upptök sín um 50 km norðaustur af höfuðborginni Mat- aram á norðanverðri eyjunni. Héraðið Austur-Lombok varð verst úti í hamförunum og fórust þar minnst tíu, en tala látinna gæti hækkað. Þá eru a.m.k. 162 slasaðir, þar af 67 alvarlega. Rafmagn fór af í Norður- og Austur-Lombokhéruð- um og vatnsleiðslur eru víða í sund- ur. Verið er að hlúa að slösuðum en víða er vatnsskortur. Víða hætta á skriðuföllum Stór skriða hljóp niður hlíðar eld- fjallsins Rinjani þegar skjálftinn reið yfir, og þurftu björgunarmenn að hjálpa um 800 manns af fjallinu, sem nú hefur verið lokað vegna hættu á frekari skriðuföllum. Einn malasísk- ur ferðamaður lét lífið í fjallinu. Í Austur-Lombok og höfuðborg- inni stóð jarðskjálftinn, sem varð rétt fyrir kl. 7 að staðartíma, yfir í tíu sekúndur og hlupu íbúar út á götur. Talið er að flest dauðsföll og meiðsli hafi orðið af hrynjandi byggingum. Jarðskjálftastofnanir höfðu mælt 130 eftirskjálfta, sá stærsti var upp á 5,7 stig, og eru íbúar tregir til að snúa heim til sín aftur af ótta við þá. AFP Eyðilegging Auk manntjóns varð víða mikið tjón á mannvirkjum. Sjötug kona og tvö barna- barnabörn hennar, fjögurra og fimm ára, fórust er þau náðu ekki að yf- irgefa heimili sitt sem varð gróðureldum að bráð í Redding í Kaliforníu í gær, að sögn breska ríkisútvarpsins Er þá tala látinna komin upp í fimm og 38 þúsund manns hafa nú orðið að yfirgefa heimili sín. Svæði stærra en San Francisco-borg hefur brunnið í eldunum sem geisað hafa undanfarna daga. Fleiri en 3.400 slökkviliðsmenn vinna nú við að reyna að ná stjórn á eldunum, en heitir þurrir vindar sem mynda log- andi hvirfilbylji torvelda starfið og veðurspáin lofar ekki góðu fyrir slökkvistörf næstu daga. Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur ákveðið að veita Kali- forníuríki aðstoð vegna hamfaranna. ernayr@mbl.is Fleiri finn- ast látnir Eldur Aðstæður eru erfiðar.  Óstjórnlegir gróð- ureldar í Kaliforníu Robert Mugabe, fyrrverandi forseti Simbabve, kvaðst ekki styðja sinn eigin flokk, Zanu-PF, og frambjóðanda hans, Emmerson Mnangagwa, í kosningunum þar, en herinn steypti Mugabe af stóli í nóvember í fyrra að hans undirlagi. „Ég get ekki stutt kvalara mína,“ sagði Mugabe sem hefur einungis talað tvisvar opinberlega eftir valdarán hersins. Jafnframt sagði hann eina álit- lega frambjóðandann vera Nelson Chamisa, fulltrúa stjórnarandstöðuflokksins MDC. „Ég get ekki stutt kvalara mína“ SIMBABVE Robert Mugabe. Rússneskar orrustuþotur af gerðinni SU-25 voru á meðal þeirra stríðstóla sem léku listir sínar á hátíðardegi sjóhers Rússa um helgina. Sýndu flugmenn færni sína við að stjórna þotunum og lituðu himininn með fánalitum Rússlands, áhorf- endum til mikillar gleði. Sjónarspilið fór fram við ána Neva í Sankti Pétursborg, höfuðvígi sjóhersins þar í landi, en áin er mjög áberandi í borgarlandslaginu. Flugkappar hylltu sjóherinn á hátíðardegi AFP Dagur rússneska sjóhersins haldinn hátíðlegur í Sankti Pétursborg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.