Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 20

Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 Ástkær móðir okkar, INGIBJÖRG K. GUÐJÓNSDÓTTIR PATTON. fædd á Eiríksgötu 25, Reykjavík, búsett í Bandaríkjunum, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. ágúst klukkan 11. Gloria Sherrill John Patton Arthur Patton Steven Patton Ástkær móðir okkar, AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Dalbraut 20, sem lést mánudaginn 16. júlí, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 3. ágúst klukkan 13. Jón Hermannsson og fjölskylda Ragnhildur Hermannsdóttir og fjölskylda Guðmundur Hermannsson Klara Njálsdóttir Aðalsteinn Hermannsson Jóhanna Þórarinsdóttir Sigurborg Ágústa Jónsdóttir og fjölskylda ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR KARLSDÓTTIR, Lóa, Grænumörk 1, Selfossi, lést á dvalarheimilinu Ási miðvikudaginn 25. júlí. Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju miðvikudaginn 1. ágúst klukkan 14. Erna Magnúsdóttir Steindór Kári Reynisson Aðalheiður Millý Steindórsd. Kristján Guðnason Elín Gíslína Steindórsdóttir og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, ÞORSTEINN INGÓLFSSON, fyrrverandi sendiherra, Kópavogstúni 4, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. ágúst klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Hólmfríður Kofoed-Hansen Ingólfur Þorsteinsson Þorbjörg Kristinsdóttir Hanna Valdís Þorsteinsdóttir Sheer El-Showk Hallveig Fróðadóttir Ragna Fróðadóttir Björn Fróðason Lovísa V. Bryngeirsdóttir Hólmfríður Fróðadóttir Örn Ingólfsson Hjördís Óskarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn ✝ Guðný Þórð-ardóttir fædd- ist á Sauðárkróki 8. júní 1937. Hún lést af slysförum 21. júlí 2018. Foreldrar Guð- nýjar voru Þórður P. Sighvats, raf- virkjameistari og símstjóri á Sauð- árkróki, og María Njálsdóttir, hús- móðir og verkakona Eiginmaður Guðnýjar í rúma hálfa öld var Grétar Magni Guðbergsson jarðfræðingur, fæddur 24. desember 1934, dá- inn 31. mars 2013. Sonur Grét- ars og Guðnýjar er Þórður Grétarsson, fæddur 1963. Sam- býliskona hans er Jóhanna Mar- grét Einarsdóttir. Dóttir Þórð- ar er Brynhildur Sonur Grétars og fóst- ursonur Guðnýjar er Sigfús, fæddur 1955. Móðir Bergþóra Sigfúsdóttir. Eiginkona Sigfús- ar er Margrét Sigríður Sig- björnsdóttir. Börn þeirra eru Friðrik Atli, Snorri Grétar og þegar heim var komið. Nokkr- um árum síðar var hún skipuð yfirumsjónarmaður Talsam- bands við útlönd og gegndi þeirri stöðu í rúm tuttugu ár. Guðný sótti ýmis námskeið á ferli sínum, má þar nefna náms- dvöl í Þýskalandi 1979, náms- ferð til Stokkhólms 1980 þegar sjálfvirkni komst á í Evrópu auk þess tók hún nokkur nám- skeið í stjórnun. Þá lauk hún þýskunámi við öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð. Guðný hafði yfirgripsmikla þekkingu á íslenskum fornbók- menntum og sótti fjölmörg námskeið í Háskóla Íslands um þær. Guðný og Grétar voru lengst af búsett í Reykjavík og síðar á Seltjarnarnesi en eftir að þau fóru á eftirlaun settust þau að á jörð sinni Hvammkoti í Lýtings- staðahreppi í Skagafirði, en Hvammkot hafði þá verið í eyði í hálfa öld. Að húsbyggingu lok- inni hófu þau hjónin svo skóg- rækt í samvinnu við Norður- landsskóga og nú vex upp mikill skógur í kotinu. Eftir að Grétar féll frá bjó Guðný lengst af í Reykjavík en dvaldi tíma- bundið á hverju ári fyrir norð- an. Útför Guðnýjar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 30. júlí, kl. 15. Hildur Þóra. Dóttir Sigfúsar og Ingrid Markan er María Huld Markan Sig- fúsdóttir. Barna- börnin eru fjögur, Úlfur Esra, Þor- gerður, Móey, Lúna Rós og óskírð stúlka. Eftirlifandi bróðir Guðnýjar er Pétur Jónsson, eig- inkona hans er Sig- rún Skarphéðinsdóttir. Eftirlif- andi stjúpbróðir Guðnýjar er Friðbjörn G. Jónsson, eiginkona hans er Sólveig Hannesdóttir. Guðný ólst upp á Sauð- árkróki, Siglufirði og á Akra- nesi. Hún varð gagnfræðingur frá Gagnfræðaskólanum á Akranesi og nam einn vetur við Húsmæðraskólann á Löngumýri í Skagafirði. Hún hóf störf hjá Landssímanum 1951 og starfaði hjá Símanum allan sinn starfs- feril, nema með hléum vegna náms Grétars í Skotlandi. Hún nam ensku einn vetur í versl- unarháskóla í Aberdeen en hóf störf aftur hjá Pósti og síma Guðný Þórðardóttir var ein af þeim sem lögðu aldrei illt til nokk- urs manns en voru alltaf reiðubún- ir að aðstoða og hjálpa ef til þeirra var leitað. Það hefur auðgað líf mitt veru- lega að fá að hitta hana nánast daglega undanfarin ár. Hún sagði mér sögur af lífi sínu þegar hún var að alast upp, snjónum á Siglu- firði, ferðunum á milli Sauðár- króks og Siglufjarðar á vorin þeg- ar hún fór til sumardvalar hjá föður sínum. Henni þótti sérlega vænt um þessa staði enda lágu þar rætur hennar, Svo kom Hvamm- kot inn í myndina og þar átti hún góða daga. Hún hafði gaman af að segja sögur. Í vor fórum við norður og hún sagði mér og sýndi mér húsin sem voru henni kærust á Króknum. Skömmu síðar ókum við saman um Vesturbæinn og þú sýndir mér húsin þar sem þú hafðir heimsótt sem barn og svo húsið sem geymdi íbúðina þar sem vinkon- urnar leigðu á Víðimelnum þegar þið voruð ungar og ógiftar í blóma lífsins. Það var mikið hlegið þenn- an dag. Ég dáðist oft að þér fyrir að vera stöðugt að mennta þig. Þú fórst á námskeið, þú hélst við tungumálakunnáttu þinni bæði í þýsku og ensku með stöðugum lestri og varst alltaf að bæta í orðaforðann. Við deildum líka ást á því að lesa bækur, fræðibækur jafnt sem skáldsögur. Ég velti því fyrir mér nú við hvern ég eigi að ræða bækurnar sem ég er að lesa hverju sinni. Báðar létum við hvor aðra lesa allskonar bækur sem hinni hefði aldrei dottið í hug að lesa. Það var gaman. Þú varst mér góð og fyrir það er ég þakklát. Þú vildir allt fyrir fólkið þitt gera og barst hag allra fyrir brjósti. Þú gladdist yfir sér- hverjum áfanga sem þitt fólk náði í lífinu. Að leiðarlokum þakka ég þér góða samfylgd og vildi óska að við hefðum átt miklu fleiri ár saman. Jóhanna Margrét. Ástkær frænka okkar, Guðný Þórðardóttir, hefur skyndilega verið hrifin frá okkur í hörmulegu slysi. Lífið hennar slokknaði á einu augnabliki, eftir stöndum við harmi slegin. Guðný, eða Gígi, eins og hún var alltaf kölluð, var fyrsta barnabarnið á Stöðinni, Aðalgötu 11, á Sauðárkróki. Húsið var alltaf kallað Stöðin vegna þess að þar var fyrsta símstöðin á Króknum frá 1906 og í rúma hálfa öld. Það er full ástæða til að minnast upp- runans í gamla húsinu um leið og frænku okkar, því að svo nátengt var líf Gígíar og okkar systkin- anna þar. Eftir lát Péturs símstöðvar- stjóra og úrsmiðs, 1938, bjuggu á Stöðinni eftirlifandi synir hans, Pálmi, Þórður og Sighvatur, faðir okkar undirritaðra. Þórður og María, foreldrar Gígíar, bjuggu þar fyrstu hjúskaparárin og eign- uðust auk Gígíar, soninn Pétur. Þau Þórður skildu og þegar María, ásamt Gígí, flutti burt með seinni manni, varð Pétur litli eftir á Króknum. Hann lést aðeins 5 ára. Sá missir var mikill og sár en á því sama ári fæddist annar bróð- ir, Pétur sem var Gígí einstaklega kær og nú sér á bak ástkærri syst- ur. Gígí sóttist alla tíð eftir því að dvelja hjá föður sínum, kom sum- arlangt á Krókinn og átti þar sitt annað heimili. Þau voru afar sam- rýnd og Gígí sýndi föður sínum alltaf mikla tryggð og umhyggju og fylgdi honum eftir til síðasta dags. Hún fylgdist líka með okkur systkinum á Stöðinni og þegar börnin okkar fæddust fylgdist hún með þeim, naut þess að kynnast nýjum hrokkinkollum og öllum öðrum. Frændræknin var sterk enda átti hún Sighvat gamla Borg- firðing sem langafa í báðar ættir. Þau Gígi, Grétar og fjölskylda voru glaðir þátttakendur í stóra niðjamótinu til heiðurs Sighvati og afkomendum sumarið 2010. Lífið hennar Gígíar var sann- arlega nátengt símanum. Hún horfði stolt yfir ævistarf sitt innan veggja Landssímans, þar var hún líka þriðja kynslóð, því Þórður faðir hennar varð stöðvarstjóri og lengi flokksstjóri Landssímans á Norðurlandi. Gígí var sannarlega ein af „stelpunum á stöðinni“, eins og hún sagði sjálf með áherslu og gleðitón. Hún var mikill gleðigjafi, ræddi af áhuga alls konar hugð- arefni, kryddaði mál sitt með gam- anyrðum, hafði afar hljómþýða rödd og var í einu orði sagt falleg innst sem yst. Hún var mjög bók- elsk, sást varla án bókar í hönd, var listelsk og dugleg að sækja sér fróðleik, fór á Njálunámskeið og mörg önnur slík, ferðaðist víða, bakaði holl brauð og miðlaði stöð- ugt af gleði, jákvæðni og um- hyggju. Hún var líka mikið nátt- úrubarn, elskaði að njóta stemningar hvort sem var á há- sléttu Tenerife eða í Hvammkoti, hvort sem var á þýsku, spænsku eða öðrum tungumálum, en hún var næm á tungumál og lét drauma sína rætast í þeim efnum. Við systkinin erum einlæglega þakklát fyrir að hafa átt hana að, hún var alltaf ein af okkur, hélt góðu sambandi, ræktaði frænd- semina af einstakri vinsemd og umhyggju, um það eigum við mörg dæmi og viljum þakka af al- hug. Minningarljósið hennar Gígí- ar frænku mun lifa með okkur alla tíð. Við systkinin vottum fjöl- skyldu og ástvinum Gígíar frænku einlæga samúð. Ragnar, Rósa, Pálmi, Ingvar, Þórunn, Björn, Sigrún og Daníel Sighvatsbörn og fjölskyldur. Kveðjustundin er komin, svo óvænt, sem hún oft er þó svo ald- urinn færist yfir. Við í hópnum okkar sem nefnum okkur „Skaga- klúbbinn“ kveðjum nú hana Gígí, konu sem var svo sérstök. Einlæg, hógvær, vel lesin, ljúf í allri fram- komu og gat líka haft sínar skoð- anir og fylgt þeim. Hún var góð fyrirmynd okkar hinna. Hópurinn okkar sem núna nálgast fimmtíu ára tilvist, allar Skagastelpur hvort sem við vor- um fæddar þar eða aðfluttar. Vor- um í upphafi sjö, urðum flestar fimmtán en erum núna ellefu. Vin- áttan nær frá skólaárum, atvinnu og fleiru. Við höfum komið saman reglulega alla vetrarmánuði öll þessi ár. Makar okkar hafa líka notið samverustunda með okkur bæði innanlands og utan. Minn- ingar sem hlaðast upp, hver og ein tengjast, samanstanda af vænt- umþykju, glaðværð, vináttu og tryggð. Við erum þakklátar fyrir að hafa haft hana Gígí sem einn hlekkinn í þessari keðju okkar og hann sterkan. Við sendum fjöl- skyldu hennar og vinum innileg- ustu samúðarkveðjur með orðum spámannsins Khalils Gibran. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Fyrir hönd Skagaklúbbsins, Erla Sigurðardóttir. Dauðinn – Þetta óútskýrða fyr- irbrigði kemur oft eins og leiftur- blik og hverfur svo aftur jafn- skjótt. Ætíð tekur hann með sér eitt jarðarinnar barn sem ferða- félaga en hvert er ferðinni heitið? Það veit enginn. Þá er spurt er ferðafélaginn horfinn með öllu úr þessum mannheimi sem við lifum í en því fer fjarri. Andrúmið – genin lifa áfram í ættleggnum og minn- ingarnar verða skuggamyndir á vegg eilífðarinnar. Hvort er okkur eftirlifendum dýrmætast, minn- ingin um óþreytandi móður sem elur okkur í móðurkviði og annast okkur af óbilandi eljusemi, þess vegna frá vöggu til grafar, eða ein- læg og kröfulaus vinátta sem allt- af er fyrir hendi þegar mest á reynir? Erfitt er að gera þarna upp á milli. En eitt er víst – þetta hvort tveggja nær dauðinn ekki í, lífið geymir þetta út yfir dauða og gröf. Hvers vegna er ég að pára þessar línur? Vegna þess að dauð- inn hreif í burtu úr hræðilegu slysi vinkonu mína Guðnýju Þórðar- dóttur – Gígí, og skildi um leið eft- ir mikla sorg og mikinn söknuð. Hún var eiginkona besta vinar míns og skólafélaga, Grétars Guð- bergssonar heitins, og saman fór- um við í gegnum lífið með mörg- um gleðifundum og glettnisboðum, samvera okkar var full af hlátrum og gáska og hjálp- semi og vinsemd hvert í annars garð. Það er gott að geta boðið dauðanum birginn með þessum jákvæðu minningum og þessum yndislegu skuggamyndum af fal- legri vinkonu sem er ekki lengur meðal vor. Kannski hittast þau hjónin fyrir hinum megin – eigi veit ég, en eitt er víst, að þá verða miklir gleðifundir. Sjálfur þakka ég fyrir ríkulega samveru með þessari góðu vin- konu minni og óeigingjörnu eig- inkonu vinar míns, móður sonar þeirra og ömmu sonardóttur. Með þessum fáeinu línum fylgja samúðarkveðjur til Þórðar Grétarssonar og annarra ættingja og ástvina vegna fráfalls Guðnýjar frá okkur Önnu Sigríði. Knútur Bruun. Guðný Þórðardóttir Góður vinur fall- inn frá. Ég kynnist „Gunna Hauks“ í kringum 10 ára aldurinn. Þá var Gunnar hjá afa sínum og ömmu, þeim „Gunna Mara og Ellu“ á Bakka, þar voru þau með kindur. Gunnar bjó þá á Eskifirði, en var nokkur sumur hjá þeim áður en hann flutti til Húsavíkur. Vinátta okkar Gunna fór hægt af stað en hefur enst í meira en 50 ár. Við Gunnar áttum það sameig- inlegt að vera ekki í fótbolta, og því brölluðum við margt óhefð- bundið saman og þá helst tveir. Þegar við Gunnar komum á ung- lingsár styrktist vináttan veru- lega. Báðir fórum við svipaða leið í lífinu. Hann var þó oftast skref- inu á undan mér, enda hann fæddur 1955 en ég 1956. Við fórum báðir snemma til sjós, fyrst á bátum frá Húsavík. 16 ára vorum við komnir „á síld“ í Norðursjónum. Gunnar var á Ásgeiri RE en ég á Keflvíking KE. Hann byrjaði þetta ævintýri árinu á undan mér. Gunnar byrj- ar í vélskólanum árið 1973. Ég byrja í vélskólanum 1974, „þ.e ári á eftir“ Gunnari. Báðir náðum við okkur í góða menntun, þó að skólagangan hafi verið stutt á unglingsárum. Ég man vel eftir sveitaballinu „Sumargleðin Skjólbrekku“ þar sem Gunnar náði í Guðrúnu Ein- arsdóttir sem síðar varð eigin- Gunnar Helgi Hauksson ✝ Gunnar HelgiHauksson fæddist 5. nóv- ember 1955. Hann lést 12. júlí 2018. Útför Gunnars fór fram frá Hafn- arfjarðarkirkju 20. júlí 2018. konan hans. Guðrún var þá sumarlangt á Höskuldsstöðum í Reykjadal. Á skólaárum okk- ar Gunnars styrkt- ist vináttan enn, og náðu konur okkar einnig vel saman og bundust sterkum vináttuböndum. Við Gunnar eigum börn á svipuðum aldri og var mikill samgangur og vinátta hjá þeim líka fram á unglingsár. Gunnar starfaði hjá Héðni óslitið frá 1982 til dauðadags. Hann hafði þó verið hjá Héðni, með hléum frá 1978. Bjartsýni og eldhugur Gunnars í störfum hans fyrir Héðinn, varð til þess að ég hreifst með, og hóf störf hjá Héðni 1992. Mikið er ég þakklátur fyrir að hafa kynnst „Gunna Hauks“ og hafa átt hann sem vin. Æðruleysi Gunnars í veikind- um sínum sýnir vel hvaða mann hann hafði að geyma. Ein síðustu orð sem Gunnar sagði við mig sýna það vel, „það er betra að vera sjúklingurinn“ við þessar aðstæður. Guðrún Björg, Rakel, Sara, Arnar, Ethan og Greta Guðrún. Gerða, Smári, Heiðar og Íris. Þið hafið misst mikið, allt of snemma. Ég og fjölskilda mín viljum senda ykkur öllum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Vináttan vex ekki á trjánum Vökvaðu og nærðu hana eins vel og þú getur þá mun hún vaxa og dafna sem aldrei fyrr (Höf. ókunnur.) Júlíus Ívarsson. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.