Morgunblaðið - 30.07.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 30.07.2018, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Guðmundur Þór Valsson, mælingaverkfræðingur hjá Landmæl-ingum Íslands, á 40 ára afmæli í dag. „Ég starfa við að búa tilnet sem eru notuð við framkvæmdir á Íslandi og kortagerð. Það felur líka í sér að vakta hreyfingar landsins. Það er það sem gerir þetta spennandi við Ísland er að maður er líka að glíma við þetta, að landið sé ekki stöðugt. Þótt það sé ekki mikil hreyfing þá safnast þetta saman og með nútímatækni er nákvæmnin orðin svo mikil að maður verður fljótlega var við breytingar. Guðmundur útskrifaðist með BS-gráðu í umhverfis- og bygg- ingaverkfræði frá Háskóla Íslands 2001 og tók síðan meistaragráðu í mælingaverkfræði við Landbúnaðarháskólann í Ås í Noregi. Guð- mundur er Skagamaður og Landmælingar eru uppi á Akranesi. Hafði það áhrif á val námsins? „Já, það má segja það. Ég var sumarstarfs- maður hjá Landmælingum og varð strax hrifinn af starfinu, Suður- landsskjálftarnir urðu þarna árið 2000 og mér fannst líka spennandi að geta bæði unnið inni og úti við mælingar. Mér finnst það mikill kostur að geta ferðast um landið.“ Áhugamál Guðmundar eru tónlist, íþróttir, sérstaklega fótbolti og golf, og veiðar. Hann spilar á saxófón og gítar og hefur sungið í kór- um. Kona Guðmundar er Katrín Valdís Hjartardóttir, kennari í Grund- arskóla. Börn þeirra eru tvíburarnir Kristín Anna og Unnur Katrín sem eru að verða sex ára og Guðmundur Kári sem er eins árs. „Það verða rólegheit hjá mér í tilefni afmælisins, ég býð nánustu fjölskyldu í mat og svo verður kannski partí í ágúst þegar flestir eru komnir úr sumarfríi.“ Mælingaverkfræðingurinn Guðmundur í mælingum við Flókalund. Vaktar og mælir hreyfingar Íslands Guðmundur Þór Valsson er fertugur í dag G uðrún Lilja Gunnlaugs- dóttir fæddist á Húsa- vík 30.7. 1968, var öll sumur sem barn og unglingur á Sandi í Að- aldal hjá ömmu sinni og afa, en borgarbarn í Hlíðunum á veturna: „Þetta tvennt, sveitin og borgin eiga mig jafnt. Ég tel mig ótrúlega heppna að hafa átt afa og ömmu í sveit, sveitin togaði í okkur hjónin þegar við fluttum með börnin í Að- aldalinn 1994. Eftir átta ár í sveit- inni og eitt barn í viðbót var stefnan tekin til Hollands í hönnunarnám með fjölskylduna, hund og tvo ketti.“ Guðrún lauk prófi í förðun við Dawn Cragg School of Theatrical and Television Makeup 1990, burt- fararprófi í húsgagnasmíði frá Tækniskólanum 1994, var í Mynd- listarskólanum á Akureyri 2001- 2002, lauk BA-prófi í iðnhönnun frá Design Academi Eindhoven í Hol- landi 2005 og MPM, meistarprófi í verkefnastjórnun og leiðtogahæfni, frá HR 2013. Guðrún var förðunarfræðingur fyrir kvikmyndir og auglýsingar hjá Saga Film 1990-93, var smíðakenn- ari við Hafralækjarskóla 1999-2001 og starfaði við Studio Makkink & bey í Rotterdam 2004. Hún stofnaði eigið fyrirtæki Studiobility 2005 og vörumerkið Bility 2008 og starf- rækti hvort tveggja til 2015. Undir merkjum Studiobility hefur hún hannað allt frá ilmvatnsflöskum yfir í gestastofur fyrir erlenda og inn- lenda aðila. Guðrún hefur kennt við Listahá- skóla Íslands á BA- og MA-stigi og haldið fjölda fyrirlestra og nám- skeiða. Guðrún hefur tekið þátt í fjölda hönnunarsýninga hérlendis og erlendis og unnið til marg- víslegra verðlauna fyrir verk sín, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, hönnuður og deildarstjóri – 50 ára Ljósmynd/Marinó Thorlacius Jón og Gunna Hér eru hjónin í Vestfjarðarleiðangri fyrir fjórum árum og í gönguferð með Rauðasand í baksýn. Gerir ekki upp á milli sveitasælu og borgarlífs Hraunblóm Skúlptúr eftir Guðrúnu, unninn úr íslensku hrauni. Hveragerði Karen Lilja Björnsdóttir fæddist 17. október 2017 kl. 9.42 í Reykjavík. Hún vó 3.748 g og var 49 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Guðrún Björg Úlfarsdóttir og Björn Aron Magnússon. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.