Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018
Nýr stór
humar
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sestu nú niður og gerðu áætlun um
að gera draum þinn að veruleika. Vertu já-
kvæður og skemmtu þér í návist vina þinna.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er góður dagur þegar hlutirnir
eru þér í hag vegna dugnaðar. Fólk tekur
meira eftir þér en ella og þú átt ekki gott
með að falla í fjöldann.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Farðu varlega í samskiptum þínum
við fjölskylduna í dag. Mundu að ábyrgð
fylgir orði hverju og þá er þér ekkert að
vanbúnaði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Árekstrar og valdabarátta halda þér
við efnið í dag. Allir hlutir kosta sitt en það
er forgangsröðin sem skiptir öllu máli.
Mundu að koma fram við aðra eins og þú
vilt að þeir komi fram við þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ráð frá einhverjum þér eldri geta
komið þér að gagni í dag og orðið til þess
að auka tekjumöguleika þína. Leggðu því
vel við hlustir og skrifaðu niður minn-
ispunkta.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Smá hlé á þéttri dagskrá þinni gefur
þér tíma til að dreyma, hugsa og plana
uppákomu í náinni framtíð. Skemmtu þér í
góðra vina hópi og gerðu þér dagamun.
23. sept. - 22. okt.
Vog Tilraunir þínar til að afla og eyða pen-
ingum ættu að fara að bera meiri árangur
en þær hafa gert að undanförnu. Þú munt
uppskera ríkulega ef þú sýnir þolinmæði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu það vera að flýta þér um
of því það býður hættunni heim og þú skil-
ar verri vinnu fyrir vikið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn er kjörinn til þess að
hitta vinina og finna út úr því hvernig hægt
er að bæta veröldina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er góður tími til að gera líf
þitt meira skapandi. Fullkomnar aðstæður
verða að vaxa með manni og gefa svigrúm
fyrir hreyfingu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki hafa áhyggjur af því hvað
aðrir eru að hugsa. Hagaðu orðum þínum
svo að þú þurfir ekki að sjá eftir neinu,
hvað sem gerist.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Aðstæður fyrir endurbætur á heim-
ilinu eru góðar í dag. Notaðu tækifærið og
þiggðu alla þá hjálp sem þér býðst. Nú er
um að gera að skipulegga hirslur og skápa
og losa sig við allan óþarfa.
Jón Ingvar Jónsson sagði frá þvíundir miðnætti á miðvikudag að
um kvöldið hefði hann beðið séra
Hjálmar Jónsson að skíra barn í
föðurætt sinni:
Heimsins ljós í Hafnarfirði
heilsar jóði á fögrum stað.
Krílið yrði einhvers virði
ef þú bráðum skírir það.
Séra Hjálmar brást vel við:
Áður en kemur hrímkalt haust
með harðindum fyrir stafni
barnið verður brotalaust
blessað í Drottins nafni.
Ekki leið á löngu áður en Jón
Ingvar léti séra Hjálmar vita af
nafni drengs sem hann átti að skíra:
Að foreldranna frómu bón
fallegt haldið þing var:
hann skal nefndur Jón Jón Jón
Jón Jón Jón Jón Ingvar.
Og bætti við til skýringar: „Þetta
er dæmi um vísur þar sem heimilt
er að brjóta allar bragfræðireglur,
en það þarf næmt brageyra til að
vita hvenær má svindla.“
Tobbo Thor sagði Jón Ingvar í
góðum félagsskap. Þannig orti Eg-
ill Jónasson um fylgismann Björns
á Brún eftir að sá hafði haldið ræðu
um kosti Bjarnar:
Ef að Jónas eignast börn
öll þau heita lætur:
Björn, Björn, Björn, Björn, Björn,
Björn, Björn;
bæði syni og dætur.
Og bætti síðan við að kunningi
sinn hefði ort að morgni, eftir djúp-
stætt fyllirí og langætt, þessa dýrt
kveðnu vísu:
Æ, æ, æ, æ, æ, æ, æ,
æ, æ, æ, æ, æ, æ;
æ, æ, æ, æ, æ, æ, æ,
æ, æ, æ, æ, æ, æ.
Jón Ingvar sagðist hafa kunnað
fyrri vísuna en ekki vitað um höf-
und. En, seinni vísan væri viss full-
komnun. Titillinn gæti verið „SUM-
ARIÐ 2018“.
Steinunn P. Hafstað sagði að hún
hefði ort þessa:
Ja ba da, ba da ba, da ba da dú
gobbe dí gú.
Dú be dí, be dí be,dí be dí bú
hobbe dí hú.
Mér finnst fara vel á því að botna
þessa nafnarunu með stöku Bene-
dikts Jóhannssonar:
Sæmundur hann steig á stokk
og stoltur nefnist Sæmi Rokk.
Ég hvái og spyr mig hvort ég nenni
að heita núna Benni Penni.
Og til gamans er hér hringhenda
sem ort var á þeim árum sem nafn-
giftin „Sæmi Rokk“ varð til:
Rokkið prísa skólaskröll
skandalísera bæinn,
það eru skvísleg húllum-höll
húkkar físu gæinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet
Vísnahorn
Skírn og SUMARIÐ 2018
„ÉG VIL ÞOLINMÆÐI DÝRLINGS,
STÁLTAUGAR OG FRAMÚRSKARANDI
ATHYGLISGÁFU. HAFÐU HANN TVÖFALDAN.“
„ÉG HELD AÐ HANN KOMIST. DRÍFUM
OKKUR!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að telja dagana.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KARLAR KUNNA EKKI VIÐ AÐ
TALA UM TILFINNINGAR SÍNAR
ÞAÐ ER
RÉTT
ÞAÐ GERIR MIG KVÍÐINN AÐ
TALA UM TILFINNINGAR…
VAAAARLEGA
HELLIÐ
SJÓÐANDI
OLÍUNNI!
EN ÞAÐ ER
STRÍÐSGLÆPUR!
JÁ, HVAÐ VAR ÉG AÐ
HUGSA?!
GERIÐ SIGTI
ÚR ÞEIM MEÐ
ÖRVUNUM!
Dalvík er eitt þeirra byggðarlagasem Víkverji hefur heimsótt á
þessu sumri. Bærinn er einstaklega
gróinn og umgjörð hans falleg; hvort
sem litið er til fjalls eða fjöru. Höfn-
in er lífæð staðarins; skip og bátar
koma og fara og þarna starfrækir
Samherji fiskvinnslustöð sem er há-
tæknivædd og á heimsvísu. Frekari
uppbygging á vegum fyrirtækisins
er að hefjast og raunar er mikil upp-
bygging á þessum slóðum. Í Svarf-
aðardal er blómlegur búskapur og
ferðaþjónustufyrirtækin á svæðinu
eru mörg. Ef til vill má segja að Dal-
víkurbyggð, en svo heitir sveitarfé-
lagið, sé gott dæmi um byggð úti á
landi þar sem er eðlilegur vöxtur og
viðgangur og jafnvægi í íbúaþróun.
Slíkt byggist á traustu atvinnulífi en
ekki síður því að íbúum séu tryggð
góð skilyrði, með til dæmis góðum
skólum, íþróttaaðstöðu og velferð-
arþjónustu. Allt þarf að haldast í
hendur og þar er Dalvík gott dæmi.
x x x
Búðardalur er sveitaþorp, þar búaum 270 manns en á staðnum er
flest sem þarf; verslun, banki, skóli,
heilsugæsla og dvalarheimili fyrir
gamla fólkið. Þarna starfrækir
Mjólkursamsalan mygluostagerð,
Vegagerðin er með útibú og ferða-
þjónustan er vaxandi vegur í Dala-
sýslu. Undirstaða hennar er að Dal-
irnir eru söguríkt svæði þó
aðatburðirnir sem vísað er til hafi
gerst fyrir þúsund árum og vel það
eru þeir engu að síður nálægir. Bæj-
arnöfnin vísa mörg beint í Laxdælu,
sögu Eiríks rauða eða aðra sígilda
sagnabrunna. Það er raunar
skemmtilegt þegar spunnið er til
framtíðar úr gömlum þræði, þá að
sjálfsögðu í bland við ný viðhorf, eins
og Dalamenn gera með ágætum.
x x x
Þykkvibær. Þegar ekið er til framtil suðurs átt til sjávar er þorpið
að hálfu í hafi, en rís hærra þegar
nær ströndinni er komið. Húsin,
gömul og ný, lyftast í hillingum sum-
arsólar og í mýrinni norðan við þorp-
ið snúast vindmyllurnar. Þetta er ís-
lenski kartöflubærinn, enda eru
akrarnir á þessum slóðum gjöfulir í
meira lagi, en kartöfluneysla dregst
saman. vikverji@mbl.is
Víkverji
Annan grundvöll getur enginn lagt en
þann sem lagður er, sem er Jesús
Kristur.
(Fyrra Korintubréf 3.11)