Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 26

Morgunblaðið - 30.07.2018, Side 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Notendum streymisveitunnar Spo- tify fjölgar hratt og eru áskrifendur Premium-þjónustunnar, sem er án auglýsinga, nú orðnir 83 milljónir talsins en um 180 milljónir manna nota veituna á mánuði, skv. frétt á vef tímaritsins Variety. Þrátt fyrir þetta hafa hlutabréf í fyrirtækinu lækkað í verði en það var skráð í kauphöllina í New York í apríl á þessu ári og hægt hefur á vexti tekna fyrirtækisins. Áskrifendum fjölgaði um átta milljónir, úr 75 milljónum í 83, á seinustu þremur mánuðum og er það nokkuð umfram það sem stjórnendur fyrirtækisins áttu von á. Hin mikla fjölgun áskrifenda hef- ur fyrst og fremst orðið í Róm- önsku-Ameríku sem er afar fjöl- mennt markaðssvæði og því mikilvægt fyrirtækinu. Og þrátt fyrir hinn mikla fjölda notenda eru mörg lönd ónumin enn af Spotify, t.d. hið gríðarfjölmenna Indland. AFP Streymi Áskrifendum Spotify fjölgar hraðar en spár gerðu ráð fyrir. Áskrifendur Spotify orðnir 83 milljónir VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Rösklega ár er liðið síðan Gljúfra- steinn – hús skáldsins var opnað á ný eftir umfangsmiklar viðgerðir. Að sögn Guðnýjar Dóru Gests- dóttur heppnuðust viðgerðirnar vel en myglusveppur hafði myndast í byggingunni vegna mikils raka. „Það þurfti að flytja allan safn- kostinn út á meðan og ærið verk- efni að raða öllum mununum aftur inn og koma safninu í samt horf. Um stóra framkvæmd var að ræða og efri hæð safnsins varð nánast bara fokheld því rífa þurfti allar klæðningar af veggjum og ein- angra upp á nýtt. Vanda þurfti til verka enda húsið friðað og endur- bæturnar gerðar í nánu samstarfi við ráðgjafa frá Þjóðminjasafni og Minjastofnun. Gljúfrasteinn er núna orðinn eins og hann á að vera, en lítil sem engin verks- ummerki er að finna um viðgerð- irnar.“ Starfið í húsinu heldur áfram að þróast, og áhugaverð dagskrá þar í boði árið um kring. Brotið verður blað í sögu safnsins í dag, 30. júlí, þegar þar verður opnuð ný sýning tileinkuð Auði Sveinsdóttur á Gljúfrasteini, eiginkonu Halldórs Laxness. Yfirskrift sýningarinnar er Frjáls í mínu lífi en það var Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sem hannaði sýninguna. Ráku saman menningarheimili Saga Auðar er samofin húsinu og hún var merkileg manneskja fyrir margra hluta sakir. Segja má að eftir að Halldór hlaut Nóbels- verðlaunin í bókmenntum hafi Auður tekið að sér nokkurs konar forsetafrúarhlutverk. „Það þótti tilhlýðilegt að Nóbelsskáldið tæki á móti erlendum gestum sem komu í opinberar heimsóknir til landsins og stóð hún fyrir veglegum mót- tökum fyrir ýmis fyrirmenni og þjóðhöfðingja, þar á meðal Olof Palme og sænska konunginn sem heimsótti Gljúfrastein í tvígang,“ útskýrir Guðný. „Auður og Halldór unnu líka mikið saman, hún vélrit- aði mikið upp fyrir hann og lýsti því á einum stað að hún hefði verið eins og lifandi segulband sem gat leiðrétt og komið með ábendingar. Auður tók það líka að sér að svara bréfum fyrir Halldór og má segja að þau hafi í sameiningu rekið smátt en öflugt menningarheimili.“ Auður hefði orðið hundrað ára í ár, en hún fæddist á Eyrarbakka þann 30. júlí 1918. „Hún og Hall- dór giftast í desember 1945 og skömmu síðar flytja þau inn í Gljúfrastein en Auður hafði um- sjón með byggingu hússins. Hún var mjög drífandi kona og sá um alla skapaða hluti, og var svo mikið meira en rösk húsmóðir. Auður lét sig ýmis málefni varða og skrifaði heilmikið í kvennatímarit síns tíma, ritaði m.a. greinar fyrir kvennasíður Þjóðviljans, í tímaritið Melkorku og fyrir Hug og hönd,“ segir Guðný og bætir við að Auður hafi sjaldan legið á skoðunum sín- um. „Í greinunum fjallar hún t.d. um íslenskar minjar og mynd- vefnað, en það var m.a. í vefnaði og útsaumi þar sem hún fann sköpun sinni útrás og er heilmikið til af fallegum gripum sem hún vann sjálf.“ Að vera eiginkona Nóbelsskálds gerði Auði líka að opinberri mann- eskju. „Hún var mikið í viðtölum og blaðamenn heimsóttu Auði á Gljúfrasteini við ýmis tækifæri,“ segir Guðný. „Það mæddi meira á Auði en mörgum samtímakonum hennar, en af viðtölum við hana að dæma var hún mjög sátt í sínu lífi og sátt í sínu hlutverki.“ Í einkalífinu virðist Auður hafa verið þungamiðja fjölskyldunnar. „Hún var mjög sjálfstæð kona, en líka með mjög stóran faðm og hélt utan um fjölskyldu sína og barna- börn. Allir þeir sem kynntust Auði lýsa henni af hlýju og vænt- umþykju.“ Merkilegir gripir Á Gljúfrasteini höfðu hjónin hvort sitt herbergið og hefur sýn- ingunni um Auði verið komið fyrir í herberginu hennar. „Þar bjó hún allt fram á gamalsaldur en flutti svo í íbúðir fyrir eldri borgara á Hlaðhömrum. Með hjálp fjölskyldu Auðar höfum við gert herbergið „Drífandi kona og sá um alla  Í dag verður opnuð á Gljúfrasteini sýning tileinkuð Auði Sveins- dóttur  Sem eiginkona Nóbelsskáldsins varð hún að opinberri per- sónu og mæddi meira á henni en mörgum samtímakonum hennar Kjölfesta „Hún var mjög sjálfstæð kona, en líka með mjög stóran faðm og hélt utan um fjölskyldu sína og barnabörn,“ segir Guðný um Auði Sveinsdóttur sem fær núna meiri sýnileika á safninu. Dvalarstaður „Með hjálp fjölskyldu Auðar höfum við gert herbergið persónu- legra og sýnum þar fleiri gripi sem tengjast henni.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.