Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 27

Morgunblaðið - 30.07.2018, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2018 ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// Bandaríska tímaritið LIFE gefur út sérblað í tilefni þess að Mick Jagger og Keith Richards verða 75 ára í ár, og nefnist það „The Rolling Stones: Their Rock ‘n’ Roll Life“. Af öllu því sem Jagger hefur látið frá sér í miðlum og á þeim rúmlega tvö þúsund tónleikum sem hann hefur sungið á á 56 ára tímabili, er yfirlýsing hans frá árinu 1975 frægust: „Ég vil frekar vera dauður, en að vera enn að syngja „Satisfaction“ þegar ég verð orðinn 45 ára.“ Jagger var 31 árs þegar hann sagði þetta í viðtali við tímaritið People, og bandið hafði hljóðritað lagið góða tíu árum fyrr, endur- hannað blúsinn og staðið fyrir bresku innrásinni í rokkið. Jagger sagði þetta í því sambandi að það væru aðrir heimar að sigra og í raun að Rollings Stones væri að hverfa frá þeim heimi sem þeir hefðu sjálfir skapað. Keith Richards datt þessa gríp- andi laglína í hug eina nóttina þegar hann var að reyna að sofna og tók hana upp á segulband. Jag- ger skrifaði svo textann á sund- laugarbakka í Florida þar sem bandið var að túra. Síðan var bara að bæta við trommum og bassa og lagið lenti í 1. sæti bandaríska vin- sældalistans í júní 1965 og sat þar langa hríð. Jagger var enn að syngja lagið þegar hann var 45 ára á Steel Wheels-túrnum árið 1989. Og líka árið 2015 þegar hann var gestur á tónleikum hjá Taylor Swift sem er fædd 1989. Hrokinn sem fylgdi þessari yfir- lýsingu á sínum tíma hefur breyst í skemmtilega kaldhæðni. Höf- undar lagsins verða 75 ára í ár, þeir eru enn að túra og „Satis- faction“ er á lagalistanum. Þrátt fyrir ást þeirra á eiturlyfj- um og brotthvarf ýmissa hljóm- sveitarmeðlima, auk stöðugra erja á milli afmælibarnanna tveggja, hefur bandið staðist tímans tönn. Þeir eru enn að og enn að gera það sama og þeir hafa alltaf gert. Á seinustu plötu sinni Blue & Lonesome frá árinu 2016 flytja þeir lög eftir sömu höfunda og þeir voru að flytja lög eftir fyrir alla vega 50 árum. Hvergi bólar á nýjum heimum hjá einu besta rokkbandi sögunnar. Enn að syngja „Satisfaction“ AFP Orkubolti Jagger á tónleikum með félögum sínum í Rolling Stones á Velo- drome-leikvanginum í Marseille í Frakklandi 26. júní síðastliðinn. Bandaríska leikkonan Kristen Stewart mun leika í nýrri Char- lie’s Angels mynd sem byggist á sjónvarpsþáttaröðinni og fyrri kvikmyndum, sem fjalla um þrjá kvenkyns einkaspæjara. Stewart sem þekktust er fyrir að leika í Twilight-myndunum leikur einn af „englunum“ á móti bresku leik- konunum Naomi Scott og Ellu Balinska. Leikstjórn verður í höndum leikkonunnar Elizabeth Banks sem einnig leikur Bosley, fulltrúa um- boðsskrifstofu einkaspæjara, sem hinn dularfulli Charlie á. Lét hún hafa eftir sér að Charlie’s Angels væri eitt af fyrstu fyrirbærunum til að fagna sterkum kven- persónum, eða allt frá byrjun átt- unda áratugarins. Kvikmyndagagnrýnanda BBC, finnst þetta gott næsta skref hjá Stewart. Ímynd hennar hafi breyst síðan í Twilight, og hún sé vel þekkt í myndum sem ætlaðar séu konum. Hún sé að vaxa sem leik- kona og þessi mynd verði meira töff og áreiðanlega háðsk í leik- stjórn Banks. Einnig sé hún möguleg leið fyrir hana inn í gam- anmyndageirann. Eldri myndirnar sem byggðust á þessum gömlu sjónavarpsþáttum voru frumsýndar árin 2000 og 2003, og þá léku leikkonurnar Drew Barrymore, Lucy Liu og Cameron Diaz þetta lokkandi þríeyki, sem notar sambland af gáfum og bardagalist til þess að leysa glæpamál. Vampíra verður lokkandi engill AFP Engill Kristen Stewart er ein þeirra leikkvenna sem leika munu Engla Charlie, Charlie’s Angels. persónulegra og sýnum þar fleiri gripi sem tengjast henni. Með sýn- ingunni er Auður að fá meira pláss í þessu húsi, og sjáum við fyrir okkur að bjóða litlum hópum upp á sérstaka leiðsögn um Gljúfrastein þar sem ævi og verk Auðar verða í forgrunni.“ Plássið á Gljúfrasteini er af skornum skammti og þurfti að beita útsjónarsemi til að koma sýn- ingunni um Auði fyrir. „Í móttöku- húsinu, sem var áður bílskúr heim- ilisins, höfum við sett upp ljós- myndir af verkum Auðar, og af Maríuteppinu fræga sem hún saumaði. Einnig sýnum við búta úr bréfasafni Auðar og styðjumst þar við grúsk Mörtu Guðrúnar Jóhann- esdóttur sem skrifaði meistara- ritgerð í safnafræði um Auði,“ út- skýrir Guðný en meðal gripa sem ættingjar Auðar hafa lánað safninu vegna nýju sýningarinnar er for- láta værðarvoð sem var breidd yfir bæði Halldór og Auði þegar þau létust. „Einnig er sýndur einn af fimm kjólum sem saumaðir voru fyrir Auði fyrir Nóbelsverð- launahátíðina og til að nýta plássið sem best höfum við notað skúff- urnar í kommóðu í herbergi Auðar og geymum í hverri skúffu sögu- bút úr lífi hennar.“ Morgunblaðið/Hari skapaða hluti“ Gljúfrasteinn er lítið hús sem rúmar mikla starfsemi. Auk sjálfs safnsins, sem einblínir á líf og störf Halldórs Laxness og leyfir gestum að koma inn á heimili skáldsins nokkurn veginn eins og það var meðan hann var á lífi, eru þar skrifstofur og rými sem hýsa fjölbreytta menningarviðburði yfir árið. Á sumrin eru haldnir tón- leikar á Gljúfrasteini alla sunnu- daga og að vetri til er m.a. hefð fyrir að bjóða rithöfundum að lesa úr nýútkomnum bókum sínum í aðdraganda jóla. Guðný segir mikla umferð um húsið og að æskilegt væri að geta stækkað safnið. „Það hefur verið í umræðunni allar götur síðan safn- ið opnaði fyrst í september 2004 og núna síðast árið 2016 lögðu fulltrúar allra flokka fram þings- ályktunartillögu þar sem lagt var til að byggt yrði við safnið,“ út- skýrir Guðný og bendir á að fara megi ýmsar leiðir, s.s. að kaupa annað þeirra húsa sem liggja að safninu eða byggja viðbót við safnið í næsta nágrenni þess. „Í nýrri byggingu mætti t.d. hafa vinnuaðstöðu starfsfólks, geymslur undir safngripi og að- stöðu fyrir sýningar og viðburði. Í dag er staðan þannig að ef við fáum til okkar eina rútu fulla af fólki þá er Gljúfrasteinn orðinn pakkfullur.“ Að sögn Guðnýjar eru ýmis for- dæmi fyrir því erlendis að söfn á fyrrverandi heimilum merkra skálda breiði úr sér til nærliggj- andi íbúða og húsa. „Ágætt dæmi, en mjög stórt, er heimili Astrid Lindgren en bæði er heimilið varð- veitt, og húsin þar allt í kring, stór sýningarsalur og gönguleiðir um svæðið fyrir gesti.“ Ein rúta af gestum og húsið er fullt LANGAR TIL AÐ STÆKKA SAFNIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.