Morgunblaðið - 30.07.2018, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 211. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Spá þrumuveðri og jafnvel hagléli
2. „Ég hélt að þetta væri búið“
3. „Ljótustu samskipti sem ég hef átt“
4. „Getum við plís ekki látið þetta …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Víkingur Heiðar Ólafsson fylgir vel-
gengni fyrstu plötu sinnar, sem
Deutsche Grammophon gaf út, eftir
með plötu með einleiksverkum eftir
Johann Sebastian Bach. Kemur hún á
markað 7. september næstkomandi.
Á heimasíðu sinni segir Víkingur upp-
tökurnar hafa reynt á þolrifin. Bach
sé „erfiðasti en líka ástríkasti kenn-
arinn, mesti arkitektinn en líka inn-
blásnasta skáldið“. Á plötunni séu
alls 34 verk, frá örstuttum sögum að
mikilfenglegum tvöföldum fúgum,
„upprunalegur Bach en líka Bach
endurskapaður af Rachmaninoff,
Busoni, Kempff og mér sjálfum.“
Plata með verkum
Bachs væntanleg
Eftir að hafa keypt nokkur mynda-
albúm á flóamarkaði í Belgíu fór
leikskáldið og rithöfundurinn Frið-
geir Einarsson að vinna í því að setja
saman sögu konunnar sem hafði eitt
sinn átt albúmin. Þegar hann hófst
handa vissi hann aðeins að belgísk
kona hefði farið í frí til Mallorca á
Spáni, fyrir 40 árum, á Club Rom-
antica, dukkið þar sangríu, farið á
ströndina, brugðið sér á hjólabát og
tekið myndir af sér og vinkonu sinni.
Friðgeir mun segja sögu þessarar
belgísku konu í sýningu sem verður
frumsýnd á Nýja
sviðinu í Borg-
arleikhúsinu í
febrúar á næsta
ári og honum til
aðstoðar verður
tónlistarmaðurinn
Snorri Helgason
sem mun semja tón-
list fyrir sýn-
inguna.
Friðgeir segir sögu
belgískrar konu
Á þriðjudag Austlæg átt, 3-13, hvassast og rigning suðaustantil á
landinu, en víða þurrt annars staðar. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast
vestan- og norðanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, 5-15 m/s, hvassast suðaust-
antil. Rigning með köflum eða skúrir syðra og rigning á annesjum
norðanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast í innsveitum á Norðurlandi.
VEÐUR
Frændsystkini úr Keili í
Hafnarfirði, Axel Bóasson og
Guðrún Brá Björgvinsdóttir,
fögnuðu sigri á Íslands-
mótinu í golfi sem lauk í
Vestmannaeyjum í gær eftir
fjögurra daga keppni venju
samkvæmt. Guðrún varð Ís-
landsmeistari í fullorðins-
flokki í fyrsta sinn en Axel er
öllu vanari því að vinna mót-
ið og varð nú Íslandsmeist-
ari í þriðja sinn og annað
árið í röð. »4-5
Frændsystkini
stóðu upp úr
Lið Stjörnunnar hefur allt sem þarf til
að fara alla leið og vinna Íslandsmót
karla í knattspyrnu í sumar að mati
hins þrautreynda blaðamanns Víðis
Sigurðssonar. Þetta kemur fram í
umfjöllun hans um leik Víkings og
Stjörnunnar í gær þar sem Garðbæ-
ingar unnu 4:0 stórsigur. Í gær náði
ÍBV í þrjú mikilvæg stig með 2:1 sigri
á KA í Eyjum. »2
Garðbæingar hafa burði
til að fara alla leið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég synti frá Alcatraz-fangelsiseyjunni til San
Francisco 9. júní, en það hafði mig dreymt um að
gera frá því að ég fór að stunda sjósund,“ segir
Rúnar Guðbjartsson, sem búið hefur í San Franc-
isco í Bandaríkjunum í sex ár.
„Veðurskilyrði voru ekki þau bestu og mikill
straumur. Ég þurfti því að synda eftir braut og
náði að klára sundið, sem er 1,2 km,“ segir Rúnar.
Hann segir að slagsmál um pláss í brautinni í
byrjun sundsins hafi verið erfiðust og fólk hafi
troðist hvað yfir annað. Rúnar tók einnig þátt í
sundi undir Golden Gate brúna þann 22. júlí.
„Ég er sáttur við að hafa náð að klára sundið,
sem er 2,6 km, og synt á 45 mínútum. Ég fékk
meira að segja medalíu í flokknum 25 til 29 ára.
En ég synti reyndar einn í þeim flokki,“ segir
Rúnar og hlær við.
Hann segir að kalt hafi verið úti í djúpum sjón-
um og töluverður öldugangur. Hann hafi bæði
fengið krampa í tær og kálfa á sundinu.
„Ég var hálf smeykur við að stinga mér til
sunds því það sást til hvítháfs á svæðinu en ég sá
sem betur fer bara seli og höfrung á sundinu,“
segir Rúnar og bætir við að hann hafi í raun aldrei
ætlað sér að byrja að stunda sjósund.
Fékk lærlingsstöðu hjá PayPAl
„Pabbi, Guðbjartur Rúnarsson, byrjaði í sjó-
sundi þegar ég var unglingur og ég hélt að hann
væri orðinn klikkaður. Hann fór oft út að hlaupa
og vildi enda á sjósundi í Nauthólsvík og bað mig
um að sækja sig þangað. Honum fannst tilvalið að
ég færi með honum í sjóinn sem ég gerði fyrir
rest,“ segir Rúnar, en hann flutti á sínum tíma til
San Francisco og hóf nám í vef- og nýmiðlun á fót-
boltastyrk en Rúnar spilaði lengst af með Þrótti.
„Sumarið sem ég útskrifaðist bauðst mér lær-
lingsstaða hjá PayPAl og fékk svo tilboð um fullt
starf í kjölfarið,“ segir Rúnar sem kann vel við sig
í San Francisco og í starfinu hjá PayPAl.
Rúnar býr enn í sömu íbúð og hann leigði á
meðan hann var námsmaður og leigir ennþá með
öðrum Íslendingum.
„Íbúðin okkar er þekkt sem Litla-Ísland og er
tryggilega merkt með íslenska fánanum,“ segir
Rúnar sem er hættur að spila fótbolta en stundar í
þess stað box og sjósund.
„Það er ótrúlega gott að núllstilla sig í sjónum,“
segir Rúnar að lokum.
Synti í land frá Alcatraz-eyju
Hákarl á sundsvæðinu
og slagsmál á byrjunarreit
Sundkappi Rúnar Guðbjartsson lætur hvorki hákarla né kulda halda sér frá því að stunda sjósund.
„Fjölskyldan er öll í fluginu – pabbi, afi, bróðir, systir,
frænka, frændi og mágkona. Ég fékk ekki flugbakteríuna
og fór aðra leið,“ segir Rúnar sem hittir hluta fjölskyld-
unnar í Chicago á þriðjudaginn. „Þau koma fljúgandi og
bróðir minn verður flugstjóri í ferðinni, frænka mín flug-
maður, systir mín flugfreyja og frændi minn farþegi,“
segir Rúnar sem tekið hefur upp nafnið Roo. Hann segir
að í fyrsta tíma í skólanum í San Francisco hafi kenn-
arinn ekki getað sagt Rúnar og kallað hann Roo. Í næsta
tíma hafi annar kennari spurt um gælunafn.
„Mér fannst tilvalið að taka upp nafn sem allir geta
borið fram,“ segir Rúnar eða Roo sem notar nafnið bæði
í Bandaríkjunum og heima á Íslandi.
Nafnið Roo í stað Rúnars
FLUGFJÖLSKYLDA
Fjölskyldan Rúnar Guðbjartsson, er hér
ásamt foreldrum og systkinum á góðri stundu.
KR tók heldur betur við sér í Pepsí-
deild kvenna í knattspyrnu á laugar-
daginn og burstaði FH 5:1 í Kapla-
krika en leikurinn var mikilvægur
fyrir bæði lið í baráttunni um að
halda sæti sínu í deildinni. Meist-
ararnir í Þór/KA unnu
ÍBV 2:0 og tylltu sér á
toppinn en Breiðablik
á leik til góða. »6
KR tók hressilega við
sér í Kaplakrika