Morgunblaðið - 31.07.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 31.07.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Tvísýnt er um það hvort Finnboga- staðaskóli í Árneshreppi verður starfræktur næsta skólaár. Skólinn er eini grunnskólinn í hreppnum en einungis einn nemandi er eftir í skól- anum. „Það er ekki alveg útséð með það hvort skólanum verði lokað. Við ætlum aðeins að skoða málið og spá í það hvaða leiðir eru færar,“ segir Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti Ár- neshrepps, í samtali við Morgun- blaðið. Spurð út í þær leiðir sem standa nemandanum til boða verði skólan- um lokað segir Eva of snemmt að segja til um það, en langt er í næsta skóla. Skólinn var rekinn eftir ára- mót með tveimur nemendum en Eva segir stöðuna aðra þegar einungis einn nemandi er eftir. „Við myndum alveg vilja halda skólanum opnum en félagslega séð er það ekki rétt gagnvart barninu.“ Um það hvort framkvæmdir við Hvalárvirkjun gætu orðið til þess að fleiri nemendur stunduðu nám við skólann segir Eva: „Það er nú það sem gæti orðið og við bindum vonir við. Það er aldrei hægt að hætta að vona og þess vegna vonum við ein- læglega að þetta eigi eftir að snúast við.“ Eva segir að þrátt fyrir að skól- anum yrði lokað væri það ekki til frambúðar. „Við verðum bara að sjá hvernig þróunin verður í sveitarfé- laginu. Vonandi verða einhver um- skipti á þessu sviði.“ Aðeins einn nemandi eftir  Hvalárvirkjun gæti bjargað Finnbogastaðaskóla Fjör Nemendur Finnbogastaðaskóla leika sér á lóð skólans á árum áður. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Í þessu máli er ekki bara einn sem kærir heldur fimm aðilar og þeir eru ekki allir tengdir,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður og réttargæslu- maður tveggja þeirra einstaklinga sem kærðu stuðningsfulltrúa hjá Barnavernd Reykjavíkurborgar sem ákærður var af héraðssaksóknara 11. maí síðastliðinn. Stuðningsfulltrúinn var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í gær af ákærum um að hafa beitt fjögur börn grófu kynferðisofbeldi og var í kjöl- farið sleppt úr haldi yfirvalda, að því er fram kom á mbl.is í gær, eftir rúm- lega sex mánaða gæsluvarðhald. Dómurinn hafði í gærkvöldi ekki ver- ið birtur á vef Héraðsdóms né heldur vildu lögmenn afhenda hann. „Það sem snýr að mínum umbjóðendum var mjög trúverðugur framburður, gögn og fleira, en dómarinn taldi ekki grundvöll fyrir sakfellingu,“ segir Sævar Þór, sem sagði í samtali við mbl.is að í dómnum hefði komið fram að vitnisburður umbjóðanda hans væri trúverðugur og líkindi fyrir sekt. Dómarinn hefði hins vegar tekið það fram að fjölskylda umbjóðanda hans hefði haft tíma til þess að ræða málið sín á milli og það drægi úr trú- verðugleika málsins. Bíða þess að sjá dóminn Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga- móta, sagði í samtali við Morgun- blaðið óábyrgt að tjá sig um dóminn áður en hún hefði fengið tækifæri til að lesa hann. Heiða Björg Pálma- dóttir, settur forstöðumaður Barna- verndarstofu, var sama sinnis. Þá vildi Ómar Örn Bjarnþórsson, lögmaður ákærða, ekki tjá sig við blaðamann um málið og ekki náðist í Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksókn- ara vegna málsins. Þá hefur úttekt innri endurskoð- unar sem gerð var á Barnavernd og velferðarsviði Reykjavíkur, á reglum og verkferlum er varða tilkynningar og ábendingar sem berast Barna- vernd Reykjavíkur, sýnt að mistök hafi verið gerð þegar ekki var brugð- ist við tilkynningu um meint brot stuðningsfulltrúans 2008. Lögreglan viðurkenndi einnig mistök við frum- greiningu þegar tilkynnt var um meint kynferðisbrot mannsins og að ekki hefði verið kannað strax hver starfsvettvangur hans væri. Stuðningsfulltrúinn laus úr haldi  Sýknaður af ákærum um gróft kynferðisofbeldi gagnvart fjórum börnum  Sat í rúma sex mánuði í gæsluvarðhaldi  Dómari segir að framburður þolanda sé trúverðugur og líkindi séu fyrir sekt geranda Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Dómur Beðið er eftir því að dómur sem kveðinn var upp í gær verði birtur. „Við vorum komnir af stað um miðjan júlí með Premier, en það er um vika síðan við settum Gullauga á markaðinn – sem er mjög góð sumarkartafla,“ segir Hjalti Egils- son á Seljavöllum í Hornafirði, en rauðar kartöflur komu um tíu dög- um síðar og síðast Helga, sem er meiri vetrarkartafla. „Tíðarfarið hefur verið alveg þokkalegt, samt frekar erfitt vor út af kulda, en svo hefur verið ágætt hérna hjá okkur í sumar,“ segir Hjalti, sem segir að uppskeran líti mjög vel út núna og hann voni að það gangi sem allra best hjá öllum kartöfluræktendum. „Þessar miklu rigningar hafa valdið skemmdum sums staðar í görðunum. Sumar kartöflurnar hreinlega drukknuðu,“ segir Sigur- bjartur Pálsson á Skarði á Hellu og bendir á að sunnlenskum kartöflum seinki aðeins í ár. Tíðin hafi verið ótrúlega slæm fyrir kartöflurækt á Suðurlandi í sumar. „Svo er líka bú- ið að vera svo kalt þar til núna og þá gerist mjög lítið. En við bindum vonir við að rætist úr veðri nú í ágúst.“ ernayr@mbl.is Gullauga frá Hornafirði komið í verslanir en sunnlenskum kartöflum seinkar vegna kulda og bleytu Morgunblaðið/Árni Sæberg Kartöflur á Suðurlandi drukknuðu „Við erum ánægðar með skipan í dóminn og bíðum spennt- ar eftir að vinnu hans ljúki,“ segir Katrín Sif Sigur- geirsdóttir, for- maður kjara- nefndar ljósmæðra, í sam- tali við Morgun- blaðið. Gerðardómur í deilu Ljós- mæðrafélags Íslands og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkis- sjóðs mun eiga fund í dag kl. 10.30 í húsakynnum ríkissáttasemjara. Spurð út í væntingar segir Katrín Sif: „Við viljum að launasetningin endurspegli menntunarkröfur og ábyrgð, að við verðum launasettar til jafns á við aðrar stéttir með sam- bærilegar menntunarkröfur,“ og bætir við að ef úrskurður gerðar- dóms verði á skjön við þær kröfur gætu margar ljósmæður farið að endurskoða hvort þær vilji vinna áfram í faginu. ernayr@mbl.is Hittast á fyrsta fundi í dag Katrín Sif Sigurgeirsdóttir  Ljósmæður sáttar Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Samkeppniseftirlitið heimilaði í gær kaup N1 hf. á Festi hf. Samruninn er háður skilyrðum sem Samkeppn- iseftirlitið og samrunaaðilar hafa gert sátt um, segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. „Við lítum á þetta sem mjög stór- an áfanga í löngu ferli málsins og teljum kaupin á Festi mikilvæg til að bregðast við breytingum sem eru að verða á smásölumarkaði á Ís- landi,“ segir Eggert Þór Kristófers- son, forstjóri N1, í samtali við Morgunblaðið. „Markmið samrunans er skýrt, við ætlum að hagræða í rekstrinum og veita viðskiptavinum félaganna betri þjónustu til framtíðar. Við munum taka við félaginu 1. septem- ber og nú hefst undirbúningur með starfsfólki og fleirum,“ segir hann. N1 skuldbindur sig m.a. til þess að selja eldsneytisstöðvar til nýs keppinautar, selja dagvöruverslun Kjarval á Hellu, auka aðgengi end- urseljenda að birgðarými, dreifingu og eldsneyti í heildsölu og tryggja samkeppnislegt sjálfstæði félagsins. Sátt við sett skilyrði Spurður hvort hann sé sáttur við skilyrðin sem sett voru segir Egg- ert Þór: „Þetta eru stærstu við- skipti á Íslandi síðan árið 2006 og eðlilega vekur svona stór samruni ýmsar spurningar. Við teljum að þessi sátt endurspegli áhyggjur Samkeppniseftirlitsins af tilurð svona stórs fyrirtækis á litlum markaði. Við lítum svo á að skil- yrðin séu eðlileg miðað við það sem við ætlum að gera og erum sátt við niðurstöðuna.“ N1 fær að kaupa Festi með skilyrðum  Stærstu viðskipti á Íslandi síðan 2006

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.