Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 Breska vikuritið The Spectatorhefur komið út í tæpar tvær aldir og gleður lesendur sína með vandaðri og skemmtilegri um- fjöllun sem á fáa sína líka. Þar á bæ eru menn ekki mjög ginn- keyptir fyrir pólitískri rétt- hugsun en almenn réttsýni og rökfesta, í bland við á köflum óvenjulega pistla og önnur skrif, gera blaðið jafnan lestursins virði.    Í nýjasta heftiThe Spectator er meðal annars fjallað um ástand sem Íslendingar hafa varla kynnst, og alls ekki þetta sumarið, en það eru langvarandi þurrkar. Þurrkar í Bretlandi þetta sumarið hafa rifjað upp ástand sem þar ríkti árið 1976 þegar fólk nýtti sér gosbrunninn á Trafalgar Square til að lina þrautirnar.    En The Spectator segir að fólkgleymi því þegar horft er til baka að árið 1976 hafi vatnsveit- urnar verið ríkisreknar og hafi ekki ráðið við vandann. Nú lofi Corbyn að ríkisvæða þær á ný þar sem vatnsfyrirtækin hafi ekki staðið sig eftir einkavæðingu, en staðreyndir málsins séu aðrar.    Nú standist kerfið þurrkanamun betur en áður, þó að ekki sé það fullkomið. Áður hafi vatnsskömmtun verið daglegt brauð og skömmtun á rafmagni sömuleiðis, ólíkt því sem nú sé.    Og þá hafi vinstri stjórninskipað sérstakan „þurrka- ráðherra“, sem hafi sagt frá því að hann samnýtti baðvatnið með eiginkonu sinni til að verja illa stæð vatnsbólin. Það getur út af fyrir sig verið gott og blessað, en tæplega besta leiðin til að stýra vatnsnotkun í heilu landi. Þurrkaráðherrann og baðvatnið STAKSTEINAR Veður víða um heim 30.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 skúrir Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 13 skýjað Nuuk 15 heiðskírt Þórshöfn 13 skýjað Ósló 24 heiðskírt Kaupmannahöfn 28 heiðskírt Stokkhólmur 25 léttskýjað Helsinki 27 léttskýjað Lúxemborg 30 heiðskírt Brussel 28 heiðskírt Dublin 16 skúrir Glasgow 16 rigning London 21 léttskýjað París 28 skýjað Amsterdam 25 léttskýjað Hamborg 31 heiðskírt Berlín 31 heiðskírt Vín 31 léttskýjað Moskva 22 léttskýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 34 heiðskírt Barcelona 30 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Róm 32 heiðskírt Aþena 31 léttskýjað Winnipeg 25 skýjað Montreal 23 léttskýjað New York 25 heiðskírt Chicago 23 léttskýjað Orlando 28 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 31. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:33 22:37 ÍSAFJÖRÐUR 4:15 23:04 SIGLUFJÖRÐUR 3:57 22:48 DJÚPIVOGUR 3:56 22:12 Bragð af vináttu • Hágæðagæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Við sjáum fram á að það verði veitt auknu fé til fangelsismála og þar með getum við orðið skilvirkari og unnið hægt en örugglega á boðunar- listum,“ segir Páll Winkel fangels- ismálastjóri í samtali við Morgun- blaðið. Útlit er fyrir að fullnusta vararefs- inga, þ.e. refsingar sem þeir sem ekki greiða fésektir þurfa að sæta, geti hafist nú á næstunni og að öll fangelsisrými landsins verði nýtt. „Við sjáum fram á það núna á næstunni, í síðasta lagi á næsta ári, að geta nýtt öll fangelsi hundrað pró- sent. Með því tekst okkur að taka frá pláss sem eru sérstaklega tekin frá fyrir vararefsingar.“ Páll segir að hingað til hafi áhersla verið lögð á að framfylgja óskilorðs- bundnum refsingum. Nú sé hins veg- ar útlit fyrir að fullnusta vararefs- inga geti farið fram. „Við höfum núna um nokkurt skeið einbeitt okkur að óskilorðs- bundnum fangelsisrefsingum en með auknu fjármagni í fangelsis- kerfið gefst okkur tækifæri til að nýta öll fangarými og þar með fyrir þá sem ekki hafa greitt sektir.“ Páll segir brotin sem þarna falla undir vera af margvíslegum toga. „Þetta eru mjög fjölbreytt brot. T.d. umferðarlagabrot eða skattalaga- brot. Þetta eru einfaldlega þeir sem hafa verið dæmdir til að greiða sekt- ir. Þeir sem ekki gera það þurfa þá að afplána svokallaða vararefsingu fésekta, og það er vist í fangelsi.“ Eins og fram kom á mbl.is fyrir helgi hefur föngum fækkað umtals- vert á síðustu árum en í dag eru 43 fangar á hverja 100.000 íbúa á Ís- landi. Til samanburðar voru fangar 56 á hverja 100.000 íbúa árin 2013 og 2014 og eru að meðaltali 62 á hverja 100.000 íbúa á hinum Norðurlöndun- um. Fullnusta vararefsinga hefst á næstunni Morgunblaðið/Hari Bjartsýnn Páll sér fram á að auknu fjármagni muni fylgja skilvirkni.  Fullnusta vararefsinga mun nú geta farið fram  Öll fangelsisrými verða nýtt  „Getum orðið skilvirkari og unnið á boðunarlistum“  Allar tegundir brota UTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.