Morgunblaðið - 31.07.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018
Bamix töfrasproti
Verð 29.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Framkvæmdir við nýtt hótel í
Tryggvagötu í Reykjavík, Exeter-
hótel, eru á lokastigi. Keahótel
munu reka hið nýja hótel. Nafnið
vísar til Exeter-hússins sem stóð á
reitnum en var rifið í óleyfi. Fyrir
framan hótelið er torg, sem gert
verður aðgengilegt fyrir borgarbúa
og gesti borgarinnar.
Í Exeter-hóteli verða 106 her-
bergi og byrjað er að taka við bók-
unum. Á jarðhæð hússins verða
veitingastaðurinn Le Kock, barinn
Tail og bakaríið Deig, að því er
fram kemur á heimasíðu hótelsins.
Mannverk hefur unnið að upp-
byggingu á lóðinni Tryggvagötu 10-
14. Fyrir framan uppbyggingar-
svæðið stendur svokallað „Nausta-
torg“ sem Mannverk hefur verið
með að láni hjá Reykjavíkurborg
fyrir aðstöðu verktaka. Nú er kom-
ið að því að Mannverk gangi frá
torginu og skili því í sama ástandi
til Reykjavíkurborgar.
Mannverk og skrifstofa eigna og
atvinnuþróunar borgarinnar létu
vinna drög að nýju skipulagi á
Naustatorgi og Norðurstíg þar sem
torgið og stígurinn verða endurnýj-
aðir frá grunni. Borgarráð sam-
þykkti samninginn á fundi sínum 5.
maí s.l.
Verktakinn endurbyggir
Til að ná því markmiði að torgið
verði ekki lagfært að óþörfu eru að-
ilar sammála um að Mannverk end-
urbyggi torgið á sinn kostnað, segir
í samkomulaginu. Reykjavíkurborg
mun sjá um alla hönnun utan lóðar
og kosta hana og að koma fyrir
ljósastaurum, pollum og setpalli.
Hann er hugsaður bæði sem set-
pallur og stallur fyrir listaverk.
Áætlaður kostnaður Reykjavíkur-
bogar vegna þessa verks verður um
10 milljónir króna.
Reykjavíkurborg mun síðar end-
urnýja Norðurstíg, milli Vestur-
götu og Tryggvagötu, með fyrir-
vara um samþykkt fjárhagsáætl-
unar. Stefnt er að því að Norður-
stígur verði á fjárhagsáætlun árs-
ins 2019.
Sem fyrr segir var Exeter-húsið
rifið í óleyfi. Það gerðist í apríl
2016. Gefið hafði verið leyfi til þess
að rífa hluta bygginga á þessari lóð
og lyfta Exeter-húsinu upp um eina
hæð, breyta formi þaks á bakhlið og
byggja við húsið, sem var reist árið
1906 og var friðað.
Í yfirlýsingu Mannverks baðst
fyrirtækið „afsökunar á skorti á að-
gát“ við framkvæmdir við Tryggva-
götu 10-14. Nýtt hús, í sömu mynd,
var reist á umræddum reit. Það er
gult að lit.
Húsið Tryggvagata 10, þar sem
áður var fiskverslunin Fiskhöllin,
var einnig endurbyggt í upphaf-
legri mynd. Það hús var rifið eftir
að hafa skemmst mikið í eldsvoða
árið 2009.
Morgunblaðið/sisi
Naustatorg Húsin þrjú við torgið verða brátt tilbúin til notkunar, Exeter-hótel, Exeter-húsið og Fiskhöllin.
Naustatorg lagað
Framkvæmdir við Tryggvagötu 10-14 eru á lokastigi
Exeter-hótel brátt opnað Veitingastaðir og bakarí
námi í stjórnun
og forystu í skóla-
umhverfi frá
Endurmenntun
Háskóla Íslands.
Valgerður hefur
víðtæka reynslu
af skólastarfi sem
kennari, náms-
ráðgjafi, deild-
arstjóri í Fram-
haldsskólanum á
Húsavík og skólameistari Fram-
haldsskólans á Laugum,“ segir þar
einnig.
Valgerður Gunnarsdóttir hefur ver-
ið skipuð skólameistari Framhalds-
skólans á Húsavík. „Að fenginni um-
sögn skólanefndar Framhalds-
skólans á Húsavík hefur Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menning-
armálaráðherra, ákveðið að skipa
Valgerði í embættið, en skipað er til
fimm ára frá og með 1. ágúst 2018,“
segir í tilkynningu ráðuneytisins, en
tvær umsóknir bárust um embættið.
„Valgerður lauk B.A. prófi í ís-
lensku frá Háskóla Íslands, námi í
kennslu- og uppeldisfræði frá Há-
skólanum á Akureyri og diplóma-
Nýr skólameistari
Valgerður
Gunnarsdóttir
Tekur við á Húsavík 1. ágúst nk.
á sameinuðu
embætti sýslu-
manns á Suður-
landi.
Kristín hefur
verið settur
sýslumaður á
Suðurlandi frá 1.
maí 2017.
Sambýlis-
maður Kristínar
Þórðardóttur er
Friðrik Erlingsson og eiga þau þrjú
börn.
Sigríður Á. Andersen dómsmála-
ráðherra hefur skipað Kristínu Þórð-
ardóttur til að vera sýslumaður á
Suðurlandi frá 1. ágúst næstkomandi.
Kemur þetta fram í tilkynningu sem
birt er á heimasíðu dómsmálaráðu-
neytisins.
Kristín er fædd hinn 6. september
árið 1979. Hún lauk lögfræðiprófi frá
lagadeild Háskóla Íslands í júní 2006.
Kristín starfaði eftir útskrift sem
fulltrúi og staðgengill sýslumanns og
lögreglustjóra á Hvolsvelli, en frá
árinu 2015 hefur hún gegnt því starfi
Skipuð sýslumaður
Tekur við á Suðurlandi 1. ágúst nk.
Kristín
Þórðardóttir
Lilja Guðný Jóhannesdóttir hefur
verið skipuð skólameistari Verk-
menntaskóla Austurlands. „Að feng-
inni umsögn skólanefndar Verk-
menntaskóla Austurlands hefur
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, ákveðið að
skipa Lilju Guðnýju í embættið en
skipað er til fimm ára frá og með 1.
ágúst 2018,“ segir í tilkynningu frá
ráðuneytinu, en ein umsókn barst
um starf skólameistara.
Lilja Guðný hefur lokið M.Ed.
námi frá Háskóla Íslands, auk við-
bótarnáms í
stjórnun og mati
menntastofnana
frá sama skóla.
„Hún hefur víð-
tæka kennslu-
reynslu á grunn-
og framhalds-
skólastigi, auk
þess sem hún hef-
ur sinnt kennslu í
framhalds-
fræðslu,“ segir einnig en hún hefur
starfað við skólann sl. sex ár.
Skipuð skólameistari
Hefur starfað við skólann sl. sex ár
Lilja Guðný
Jóhannesdóttir
Alls voru 29 ökumenn teknir fyrir
ölvunar- og fíkniefnaakstur á höf-
uðborgarsvæðinu um nýliðna helgi.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
voru tuttugu ökumenn stöðvaðir af
lögreglu innan marka Reykjavíkur,
fimm í Kópavogi, þrír í Hafnarfirði
og einn í Garðabæ.
Hinir brotlegu voru af báðum
kynjum, 24 karlmenn á aldrinum 18
til 75 ára og fimm konur á aldrinum
22 til 41 árs. Sjö þessara ökumanna
höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi
og höfðu þrír hinna brotlegu aldrei
öðlast ökuréttindi.
Ölvunar- og fíkniefnaakstur hef-
ur verið til umræðu að undanförnu,
en að sögn lögreglu hefur þessum
brotum fjölgað mjög.
Mikið um ölvunar- og fíkniefnaakstur