Morgunblaðið - 31.07.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 31.07.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 Algjört súkkulæði! HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R og og „Viðurkenningarnar eru hvati til hönnuða og framkvæmdaraðila til faglegra vinnubragða við hönnun og uppbyggingu á ferðamannastöðum á Íslandi,“ segir Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá teiknistofunni Landslagi. Stofan hefur hlotið til- nefningu til hinna virtu verðlauna Rosa Barba Landscape Prize fyrir hönnun á tröppustíg upp á Saxhól í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Greint var frá tilnefningum til verðlaunanna í lok síðustu viku en verðlaunin verða veitt í Barcelona í lok september. Þau eru veitt í tengslum við Landslagarkitektúr- tvíæringinn í Barcelóna sem nú er haldinn í tíunda sinn. Þráinn segir að þessi tilnefning sé „ein mesta viður- kenning sem íslenskir landslagsarki- tektar hafa hlotið.“ Níu verkefni tilnefnd Alls eru níu verkefni hvaðanæva úr heiminum tilnefnd, tvö frá Kína auk verkefna frá Frakklandi, Grikk- landi, Íslandi, Ísrael, Ítalíu, Mexíkó og Sviss. Landslag hefur áður verið tilnefnt til þessara verðlauna, árið 2003 fyrir hönnun snjóflóðavarnar- garða á Siglufirði. Verkefnið hlaut þá sérstaka viðurkenningu. Saxhóll hefur þrisvar sinnum verið tilnefnd- ur til innlendra og erlendra verð- launa á liðnu ári, Hönnunarverð- launa Íslands, Nordic Architecture Fair Award og Menningarverðlauna DV. Auk þess var verkið valið sem fulltrúi íslenskrar hönnunar á ráð- stefnu í Stokkhólmi síðastliðið vor, Architecture and Design The Nordic Way. Vinsæll útsýnisstaður Í tilkynningu frá Landslagi kemur fram að Saxhóll er vinsæll viðkomu- og útsýnisstaður yst á Snæfellsnesi í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Hóllinn er 45 metra hár keilulaga gígur með lausu og lítt grónu gjalli í hlíðum. Gígurinn er nálægt þjóðveginum og þaðan er gott útsýni að jökli og yfir hraunbreiðurnar allt um kring. „Með sívaxandi fjölda gesta hafði myndast ákveðið spor í spírallaga sneiðing upp hólinn og var tekið að skríða til, breikka og aflagast. Laust yfirborðið var jafnframt óþægilegt og hættulegt yfirferðar. Smíðaður var tröppustígur úr svörtu stáli sem ryðgaði fljótlega og samlagaðist lit- brigðum hólsins. Stígurinn er lagður eftir sárinu sem komið var í hólinn og er settur saman úr tveimur bog- um sem mætast á hvíldarpalli á miðri leið. Stígurinn er 160 metra langur og 1,5 metra breiður sem nægir til fólk geti mæst. Hvor bogi er sam- settur úr þriggja metra löngum ein- ingum. Hliðar stigans eru úr stífum stálplötum sem skorðast niður í gjallið. Einingar voru festar saman í eina samfellu og engra annarra und- irstaða var þörf. Reynslan af tröppu- stígnum er sú að gestir halda sig al- farið á sporinu og hættan á myndun nýrra leiða virðist úr sögunni,“ segir í tilkynningunni. Vinsæll Saxhóll er vinsæll viðkomu- og útsýnisstaður yst á Snæfellsnesi. Tröppustígur Stígurinn upp á Saxhól í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli er 160 metra langur og 1,5 metra breiður sem nægir til að fólk geti mæst. Tilnefnd til virtra alþjóð- legra verðlauna  Hönnun Landslags ehf. á tröppustíg upp á Saxhól hlýtur viðurkenningu Útsýnisstaður » Saxhóll er vinsæll viðkomu- og útsýnisstaður í Þjóðgarð- inum Snæfellsjökli. » Tröppustígur var lagður eftir að sívaxandi fjöldi gesta setti mark sitt á staðinn og spor hafði myndast vegna umferðar. Laust yfirborð var hættulegt yfirferðar. » Þráinn Hauksson og Jón Rafnar Benjamínsson lands- lagsarkitektar hönnuðu tröppustíginn. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.