Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018
Algjört
súkkulæði!
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og
„Viðurkenningarnar eru hvati til
hönnuða og framkvæmdaraðila til
faglegra vinnubragða við hönnun og
uppbyggingu á ferðamannastöðum á
Íslandi,“ segir Þráinn Hauksson,
landslagsarkitekt hjá teiknistofunni
Landslagi. Stofan hefur hlotið til-
nefningu til hinna virtu verðlauna
Rosa Barba Landscape Prize fyrir
hönnun á tröppustíg upp á Saxhól í
Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.
Greint var frá tilnefningum til
verðlaunanna í lok síðustu viku en
verðlaunin verða veitt í Barcelona í
lok september. Þau eru veitt í
tengslum við Landslagarkitektúr-
tvíæringinn í Barcelóna sem nú er
haldinn í tíunda sinn. Þráinn segir að
þessi tilnefning sé „ein mesta viður-
kenning sem íslenskir landslagsarki-
tektar hafa hlotið.“
Níu verkefni tilnefnd
Alls eru níu verkefni hvaðanæva
úr heiminum tilnefnd, tvö frá Kína
auk verkefna frá Frakklandi, Grikk-
landi, Íslandi, Ísrael, Ítalíu, Mexíkó
og Sviss. Landslag hefur áður verið
tilnefnt til þessara verðlauna, árið
2003 fyrir hönnun snjóflóðavarnar-
garða á Siglufirði. Verkefnið hlaut
þá sérstaka viðurkenningu. Saxhóll
hefur þrisvar sinnum verið tilnefnd-
ur til innlendra og erlendra verð-
launa á liðnu ári, Hönnunarverð-
launa Íslands, Nordic Architecture
Fair Award og Menningarverðlauna
DV. Auk þess var verkið valið sem
fulltrúi íslenskrar hönnunar á ráð-
stefnu í Stokkhólmi síðastliðið vor,
Architecture and Design The Nordic
Way.
Vinsæll útsýnisstaður
Í tilkynningu frá Landslagi kemur
fram að Saxhóll er vinsæll viðkomu-
og útsýnisstaður yst á Snæfellsnesi í
Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Hóllinn
er 45 metra hár keilulaga gígur með
lausu og lítt grónu gjalli í hlíðum.
Gígurinn er nálægt þjóðveginum og
þaðan er gott útsýni að jökli og yfir
hraunbreiðurnar allt um kring.
„Með sívaxandi fjölda gesta hafði
myndast ákveðið spor í spírallaga
sneiðing upp hólinn og var tekið að
skríða til, breikka og aflagast. Laust
yfirborðið var jafnframt óþægilegt
og hættulegt yfirferðar. Smíðaður
var tröppustígur úr svörtu stáli sem
ryðgaði fljótlega og samlagaðist lit-
brigðum hólsins. Stígurinn er lagður
eftir sárinu sem komið var í hólinn
og er settur saman úr tveimur bog-
um sem mætast á hvíldarpalli á miðri
leið. Stígurinn er 160 metra langur
og 1,5 metra breiður sem nægir til
fólk geti mæst. Hvor bogi er sam-
settur úr þriggja metra löngum ein-
ingum. Hliðar stigans eru úr stífum
stálplötum sem skorðast niður í
gjallið. Einingar voru festar saman í
eina samfellu og engra annarra und-
irstaða var þörf. Reynslan af tröppu-
stígnum er sú að gestir halda sig al-
farið á sporinu og hættan á myndun
nýrra leiða virðist úr sögunni,“ segir
í tilkynningunni.
Vinsæll Saxhóll er vinsæll viðkomu- og útsýnisstaður yst á Snæfellsnesi.
Tröppustígur Stígurinn upp á Saxhól í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli er 160
metra langur og 1,5 metra breiður sem nægir til að fólk geti mæst.
Tilnefnd til
virtra alþjóð-
legra verðlauna
Hönnun Landslags ehf. á tröppustíg
upp á Saxhól hlýtur viðurkenningu
Útsýnisstaður
» Saxhóll er vinsæll viðkomu-
og útsýnisstaður í Þjóðgarð-
inum Snæfellsjökli.
» Tröppustígur var lagður eftir
að sívaxandi fjöldi gesta setti
mark sitt á staðinn og spor
hafði myndast vegna umferðar.
Laust yfirborð var hættulegt
yfirferðar.
» Þráinn Hauksson og Jón
Rafnar Benjamínsson lands-
lagsarkitektar hönnuðu
tröppustíginn.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS