Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is „Þetta er hann aftur.“ Þetta sagði kambódískur kaffihúsagestur í við- tali við AFP eftir að flokkur for- sætisráðherrans Hun Sen vann kosningasigur í fyrradag. Hun Sen er einn lífseigasti ríkisstjórnar- leiðtogi í heimi og hefur setið sem forsætisráðherra Kambódíu frá árinu 1979. Það ár kom innrásarher Víetnama honum til valda þegar ein- ræðisherranum Pol Pot og Rauðu kmerunum var steypt af stóli. Segja má að með kosningum gær- dagsins hafi í reynd verið snúið aftur til flokksræðis. Flokkur Hun Sen, Þjóðarflokkur Kambódíu, hlaut öll þingsætin sem kosið var um. Deilt hefur verið um lögmæti kosning- anna. Stjórnarandstaðan hlaut 44 prósent atkvæða í kosningum árið 2013 en í þetta sinn stýfði Hun Sen vængi hennar áður en kosið var. Þjóðbjörgunarflokkur Kambódíu, helsti stjórnarandstöðuflokkurinn, var leystur upp og formaður hans handtekinn fyrir landráð í aðdrag- anda kosninganna. Meðlimir hans hafa líkt niðurstöðunum við „dauða lýðræðis“. Í orðsendingu frá ríkisstjórn Bandaríkjanna var lýst yfir að kosn- ingarnar hefðu „hvorki verið frjálsar né sanngjarnar“ og hefðu ekki sam- ræmst vilja kambódísku þjóðar- innar. Samkvæmt frétt Reuters eru Bandaríkin og Evrópusambandið nú að íhuga refsiaðgerðir gegn kambódískum yfirvöldum. Kínverjar sendu Hun Sen hins vegar ham- ingjuóskir og sögðu framkvæmd þingkosninganna vera kambódískt innanríkismál. „Dauði lýðræðis“ í Kambódíu AFP Sigurvegari Hun Sen, forsætisráðherra Kambódíu til tæpra 40 ára, greiðir atkvæði í umdeildum þingkosningum sem haldnar voru á sunnudaginn  Stjórnarflokkur fékk öll þingsætin Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Hinn 94 ára gamli Robert Mugabe gekk í gær á kjörstað í þingkosn- ingum í Simbabve ásamt löndum sín- um eins og svo oft áður. Nú var þó sá munur á að hann átti ekki kost á að kjósa sjálfan sig, né kaus hann að greiða sínum eigin flokki, Hinu afr- íska þjóðarbandalagi Simbabve (Zimbabwe African National Union eða ZANU), atkvæðið. Þetta voru nefnilega fyrstu kosningar Sim- babve í tæp fjörutíu ár þar sem Mu- gabe var ekki á kjörseðlinum. Robert Mugabe réð harðri hendi yfir Simbabve sem forsætisráðherra og forseti frá árinu 1980 þar til hon- um var steypt af stóli af eigin flokks- mönnum síðla árs í fyrra. Valdaránið gegn Mugabe var meðal annars framið vegna umdeildra áætlana hans um að láta valdakeflið ganga til eiginkonu sinnar, Grace Mugabe. Í stað Mugabe og konu hans settist á forsetastól gamall samstarfsmaður og varaforseti Mugabe, Emmerson Mnangagwa, eða „krókódíllinn“ eins og hann er stundum kallaður. Brostin bandalög Ljóst er að mikið vatn hefur runn- ið til sjávar á milli Mugabe og fyrr- verandi bandamanna hans því hann lýsti því yfir á blaðamannafundi í fyrradag að hann myndi ekki kjósa Mnangagwa og ZANU-flokkinn í kosningunum. Mugabe sagðist ekki geta hugsað sér að styðja þannig „kvalara“ sína og hvatti Simbabve- menn þess í stað til að kjósa stjórn- arandstöðuflokkinn, Hreyfinguna fyrir lýðræðisumbótum (Movement for democratic change eða MDC). Má þetta heita mikill viðsnúningur hjá Mugabe þar sem félagar MDC hafa í tæp tuttugu ár verið helstu andstæðingar hans í simbabveskum stjórnmálum. Stofnandi og helsti leiðtogi MDC, Morgan Tsvangirai, lést í febrúar síðastliðnum. Frambjóðandi stjórn- arandstöðunnar gegn Mnangagwa í kosningunum er því Nelson Cham- isa, fjörutíu ára gamall lögfræðingur og prestur. Chamisa er rétt nógu gamall til þess að vera kjörgengur í forsetaembættið en hann vonast til þess að æska hans og léttleiki muni einmitt skila honum sigri gegn hin- um 75 ára og alvörugefna Mnan- gagwa. „Simbabve þarf ekki á stórum manni að halda,“ sagði Chamisa í samtali við Observer, „heldur stórri hugmynd.“ Gengið til Mugabelausra kosninga  Simbabvemenn kusu milli breytinga og áframhaldandi stjórnar ZANU  Mnangagwa og Chamisa tókust á um forsetastólinn  „Simbabve þarf ekki á stórum manni að halda, heldur stórri hugmynd“ AFP Kjörstaður Simbabvemenn bíða í röð eftir því að fá að greiða atkvæði á kjörstað í kosningum gærdagsins. Þetta voru fyrstu kosningarnar í tæp fjörutíu ár þar sem Robert Mugabe fyrrverandi forseti var ekki í framboði. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Serbneski lögfræðingurinn Drago- slav Miša Ognjanovic var myrtur fyrir utan heimili sitt í Belgrad á sunnudaginn. Frá þessu er sagt á fréttamiðlum AFP og The Guardian. Ognjanovic var á sínum tíma verj- andi Slobodans Miloševic, forseta Júgóslavíu og síðar Serbíu og Svart- fjallalands, í stríðsglæparéttarhöld- um hins síðarnefnda. Stríðsglæparéttarhöldin yfir Mi- loševic fóru fram snemma eftir alda- mótin á vegum Sameinuðu þjóðanna í Haag. Aldrei var kveðinn upp úr- skurður gegn fyrrverandi forsetan- um þar sem hann lést í varðhaldi meðan á réttarhöldunum stóð. Ognjanovic hefur á ferli sínum far- ið með málsvörn fyrir ýmsa aðra um- deilda sakborninga, þar á meðal eiturlyfjabaróninn Luka Bojovic, sem er nú í fangavist á Spáni. Bojo- vic er einn af leiðtogum stríðandi fylkinga í gengjastríði í Svartfjalla- landi sem hefur leitt til nokkurra dauðsfalla. Meðal annars hefur einn verjandi meðlims í öðru genginu ver- ið myrtur. Ekkert er þó hægt að fullyrða hvort morðið á Ognjanovic tengist málsvörnum hans fyrir Miloševic eða Bojovic. Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, sagði lögregluna hafa nokkr- ar vísbendingar undir höndum sem gætu leitt til handtöku morðingjans. Auk morðsins á Ognjanovic særðist 26 ára sonur hans á öxl. Viktor Gostiljac, formaður serb- neska lögmannafélagsins, sagði að öll lögfræðistéttin væri steini lostin vegna morðsins og að „skotið á Ognj- anovic [væri] skot á alla lögfræð- inga“. Verjandi Miloš- evics myrtur  Lögfræðingur skotinn í Belgrad Í skoðanakönnunum í aðdrag- anda kosninganna hefur Em- merson Mnangagwa, núverandi forseti, mælst með örlítið for- skot á keppinaut sinn, Nelson Chamisa. Mnangagwa hefur lof- að lýðræðisumbótum og bætt- um efnahag auk þess sem hann hefur lagt til að Simbabve gangi í breska samveldið á ný. Hann hefur þó verið innsti koppur í búri í stjórn Mugabe í mörg ár og tók samkvæmt AFP þátt í of- sóknum gegn stjórnarandstæð- ingum þar sem um 20.000 manns létu lífið á níunda ára- tugnum. Krókódíllinn Mnangagwa SIMBABVE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.