Morgunblaðið - 31.07.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018
Skólar & námskeið
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 17. ágúst
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
UGLÝSINGA:
nn 14. ágúst.
SÉRBLAÐ
jallað um þá
em í boði er
að auka við
ærni í haust
og vetur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
PÖNTUN A
fyrir þriðjudagi
Í blaðinu verður f
fjölbreyttu valkosti s
fyrir þá sem stefna á
þekkingu sína og f
Í dag eru liðin 70 ár frá vígslu
Fossvogskirkju og bálstofunnar í
Fossvogi. Langur aðdragandi var að
þessum byggingaframkvæmdum.
Söfnuðirnir í Reykjavík tóku við
stjórn garðanna 1932 og var þá farið
að ræða um byggingu útfararkirkju
í Fossvogi. Stjórn kirkjugarðanna
var í höndum sóknarnefndarinnar í
Reykjavíkurprestakalli og safn-
aðarstjórnar Fríkirkjusafnaðarins
en þegar Reykjavíkurprestakalli var
skipt í fjórar sóknir árið 1940 varð
sú breyting að í kirkjugarðsstjórn
var kosinn einn maður úr hverjum
söfnuði og kaus safnaðarstjórn hann
úr sínum hópi. Þessi nýja stjórn tók
við störfum í ársbyrjun 1941 og var
fyrsta verk hennar að skapa fjár-
hagslegan grundvöll fyrir kirkju-
byggingu. Byggingarstjórn fól húsa-
meisturunum Sigurði Guðmunds-
syni og Eiríki Einarssyni að gera
uppdrætti að Fossvogskirkju og
tengibyggingum. Ákveðið var að
byggja útfararkirkju
fyrir Reykjavík-
urprófastsdæmi, sem
tæki 250-300 manns í
sæti og sambyggt við
hana fullkomið líkhús.
Samvinna var höfð við
Bálfararfélag Íslands,
sem þá var starfandi,
um byggingu bálstofu í
tengslum við kirkju-
bygginguna. Á sum-
ardaginn fyrsta, þann
25. apríl 1946, lagði
forseti Íslands hr.
Sveinn Björnsson
hornstein í kór kirkj-
unnar. Sr. Bjarni Jónsson, vígslu-
biskup, vígði kirkjuna rúmum
tveimur árum síðar, þann 31. júlí
1948. Kirkjan var ekki fullbúin, en
vígslu var flýtt vegna andláts dr.
Gunnlaugs Claessen, formanns Bál-
fararfélagsins. Með því var orðið við
ósk hans um að útför hans yrði frá
Fossvogskirkju og lík-
ama hans yrði eytt í
hinni nýju bálstofu.
Þann 12. desember
1948 var Fossvogs-
kirkja endanlega opn-
uð til almennra nota.
48% landsmanna á
þjónustusvæði
KGRP
Það voru framsýnir
og stórhuga menn sem
tóku þessa ákvörðun
árið 1941 við erfiðar
aðstæður á stríðs-
tímum. Íbúar í Reykjavík voru
43.982 árið 1940 og það ár létust um
435 bæjarbúar. Á þjónustusvæði
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma (KGRP) eru nú þrjú sveit-
arfélög: Reykjavík, Kópavogur og
Seltjarnarnes. Samkvæmt nýrri
íbúatölu frá Hagstofunni eru íbúar á
þjónustusvæðinu um 166.586 eða um
48% af íbúatölu landsmanna. Dauðs-
föll á öllu landinu árið 2017 voru skv.
Hagstofunni 2.239, þar af innan
KGRP 1.102 eða 49% af heildartölu
látinna. Þess má geta að bálfarir
hafa aukist gríðarlega hér á landi
eins og í nágrannalöndum okkar. Á
síðasta ári voru jarðsetningar hjá
KGRP 50% duftgrafir og á landsvísu
var hlutfall bálfara komið í 35,3%.
KGRP hafa því miklum og aukn-
um verkefnum að gegna og þurfa að
vera í stakk búnir að takast á við
mikla uppbyggingu á næstu árum
og áratugum þegar litið er til endur-
nýjunar bálstofu með þeim hreins-
unartækjum sem tilskilin eru og
byggingu nýs líkhúss fyrir höfuð-
borgarsvæðið. Framlag ríkisins til
málaflokksins hefur verið skert um
40% og á undanförnum árum hefur
verið tregða hjá ráðamönnum að
standa við samkomulag sem gert
var 2005 um rétt framlag til garð-
anna. Brugðist hefur verið við skert-
um framlögum með aðhaldi og
niðurskurði í rekstri. Þessi skerðing
hefur gengið svo nærri KGRP að
íhugað hefur verið að loka Foss-
vogskirkju og tengibyggingum, þar
með töldu líkhúsinu í Fossvogi. Von-
andi kemur ekki til þess að stjórn
KGRP neyðist til þess – en ef það
gerðist yrði slíkt ekki aðeins til van-
sæmdar og óþæginda innanlands
heldur einnig dapurleg frétt til
helstu nágrannaríkja okkar sem
hafa þessa þjónustu við almenning í
góðu lagi.
Eftir að málefni kirkjugarðanna
voru kynnt alþingismönnum fyrr á
þessu ári virðist skilningur á alvar-
legri rekstrarstöðu þeirra hafa
aukist. Vonir eru bundnar við að á
þessu ári láti dómsmálaráðherra og
kirkjugarðaráð fara fram endur-
skoðun á samkomulaginu frá 2005
sem muni fela í sér verulega leið-
réttingu á framlagi til garðanna og
að þau verkefni sem um ræðir verði
skilgreind nákvæmar en áður hefur
verið gert.
70 ár frá vígslu
Fossvogskirkju og
bálstofunnar í Fossvogi
Eftir Þórstein Ragnarsson
»KGRP hafa auknum
verkefnum að gegna
og þurfa að vera í stakk
búnir að takast á við
mikla uppbyggingu.
Þórsteinn
Ragnarsson
Höfundur er forstjóri KGRP.
Duftgarðurinn við Fossvogskirkju var tekinn í notkun 1950 skömmu eftir
vígslu kirkjunnar. Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt sá um hönnun
viðamikillar endurgerðar duftgarðsins, sem hófst 1991 en er nú lokið.
Altaristaflan og aðrir munir í kór eru listaverk Helga Gíslasonar mynd-
höggvara. Gluggi í stafninum er sveinsstykki Leifs Breiðfjörð, frá 1971.
Vestan kirkjunnar er minnisvarði til minningar um sjómenn og sæfarendur
er drukknuðu en fundust ekki og hafa ekki komist í vígða mold. Hann er frá
1996 og Halldór Guðmundsson arkitekt teiknaði hann.
Vinsamlegast færið texta um hálfan
sentimeter út á spássíur frá miðju,
svo lesandi geti, án þess að slasa sig
á höndum, lesið sér til ánægju.
Aldinn bókaormur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Kæru umbrots-
menn bóka og
tímarita
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is