Morgunblaðið - 31.07.2018, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 25
Smáauglýsingar
Húsnæði óskast
Húsnæði óskast
frá 1.8. til 10.9. í Hafnarfirði.
Húsnæði óskast frá 1. ágúst til 10.
september í Hafnarfirði, 2-3 svefn-
herbergi. Vinsamlegast hafið sam-
band við Tómas í
brattahlid.accounting@gmail.com
eða í síma 8472596. Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Olíuskiljur - fituskiljur
- einagrunarplast
CE vottaðar vörur.
Efni til fráveitulagna.
Vatnsgeymar 100-50.000 lítra.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Þjónusta
Verktaki - Ráðgjöf -
Verkefnavinna
Reynsluríkur lögg. iðnmeistari á
besta aldri tekur að sér ýmis smáverk
/ ráðgjöf í verktöku.
Vönduð vinnubrögð. Vinsamlega
gerið fyrirspurnir á h34@simnet.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Inntökupróf verður haldið í
læknisfræði í Jessenius Faculty of
Medicine í Martin Slóvakíu í MK í
Kópavogi 24 ágúst nk.
Uppl. kaldasel@islandia.is
og 8201071
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994 Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Opið fyrir úti-
og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Bridge og kanasta kl. 13.00
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá 11:30-12:30 og kaffisala alla virka daga frá 14:30-
15:30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst. Úti
boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á Qigong á
Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega
velkomin. Vitatorg. sími: 411-9450
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 14:00-15:30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bónusrúta fer
frá Jónshúsi kl. 14:45.
Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, 13.30 Alkort.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, bridge í handavinnustofu kl. 13, gönguferð um
hverfið kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið
kl.8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-16, brids kl.13, enskunámskeið
tal kl.13, bókabíll kl.14.30, Bónusbíll 14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir
velkomnir óháð aldri, nánari í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest-
ur kl.11, boccia, spil og leikir kl.15.30. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi Sundlaug Seltjarnarnes kl. 07:15. Kaffi-
spjall í króknum kl. 10:30. Pútt á golfvellinum kl. 13:30. Ganga frá
Skólabraut kl. 14:30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur
kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
undirbúa hlutina vel. Hann var
líka einn af þeim sem allt lék í
höndunum á.
Jói var mikill nautnaseggur á
mat og drykk og naut þess að
gera vel við sig og sína á því
sviði og skipti þá ekki máli á
hvaða tíma dags það var.
Það er ekki hægt annað en að
heillast af Jóa fyrir hans hlýju
og einstaklega sterku nærveru.
Það var alltaf gott að taka þátt í
hans miklu pælingum um lífið og
tilveruna. Hann var sannur vin-
ur. Það sannaðist best þegar
hann hafði samband á erfiðum
tímum.
Á hljómsveitarárunum var
rætt um að gott lag væri ekki
verra ef það innihéldi marga
hljóma. Lífshlaup Jóa minnir
mig á góða tónlist, þ.e. gott upp-
haf, laglína og viðlag skreytt
mörgum hljómum en lagið end-
aði því miður snögglega. Enginn
lokahljómur frá rhytmagítarn-
um. Það vantar lokakaflann sem
við ætluðum svo mörg að vera
hluti af.
Elsku Sigrún, Helga, Gauja,
Karen Henný og aðrir fjöl-
skyldumeðlimir Jóa. Missir ykk-
ar er mestur.
Innilegar samúðarkveðjur frá
okkur Sossu.
Með þakklæti fyrir að hafa átt
þennan einstaka vin.
Ingi Örn.
ar mamma hætti búskap. Hún
seldi Margréti og Jóni Valgeiri
syni hennar jörðina ásamt bú-
stofni. Tók þá Margrét við bú-
skapnum og fluttist að Bekans-
stöðum, en mamma flutti að
Bekansstöðum 2 og bjó þar ásamt
Einari bróður í mörg ár. Margrét
var alltaf afar hjálpleg móður
sinni. Í dag býr Valgerður dóttir
Margrétar að Bekansstöðum 2.
Seinna kynntist hún síðari manni
sínum, Finni Guðmundssyni, sem
hafði verið búsettur í Galtarholti í
Hvalfjarðarsveit og síðar á Haga-
mel, en vann á Grundartanga.
Fluttist hann síðan að Bekans-
stöðum. Hafa þau búið þar ásamt
Jóni Valgeiri syni Margrétar og
hjálpast að við búskapinn. Fyrir
nokkrum árum brugðu þau búi og
seldu allar kýrnar. Er nú stund-
aður frístundabúskapur með
nokkrar kindur og hesta.
Nú kveð ég þig með söknuði
kæra systir og þakklæti fyrir góð-
ar samverustundir í gegnum tíð-
ina. Innilegar samúðarkveðjur til
eiginmanns, barna og barna-
barna.
Bjarni O.V. Þóroddsson.
Magga frænka var mér alltaf
mjög kær. Hún var eldri af tveim-
ur systrum föður míns, og ég var
svo lánsamur fá að dvelja hjá
henni og fjölskyldunni á Bekans-
stöðum í lengri og skemmri tíma
þegar ég var ungur drengur. Ég
heillaðist snemma af sveitinni,
rak beljurnar, mokaði flórinn,
gekk á fjöll, gerði við girðingar,
og vann í heyskapnum, allt undir
styrkri leiðsögn Möggu frænku.
Ég minnist hennar í bláa samfest-
ingnum í fjósinu, að mjólka kýrn-
ar, með uppbrettar ermar, og
haldandi á risastórum heyhlöss-
um í fanginu handa kúnum.
Minnisstæðar eru góðar stund-
ir við eldhúsborðið þar sem við
hlógum saman og ræddum þjóð-
málin, sveitungana, veðrið og
hvaðeina. Magga bakaði risastór
brauð, og gerði fyrirtaks bakk-
elsi. Hún var með skemmtilegan
húmor, og við áttum gott skap
saman.
Á seinni árum, eftir að ég eign-
aðist sjálfur fjölskyldu, var hún
alltaf áhugasöm um það sem á
daga okkar dreif. Þegar tækifæri
gafst til kíktum við í heimsókn á
Bekansstaði og þar var okkur
alltaf vel tekið.
Margrétar verður sárt saknað
og minningin um frábæra frænku
mína lifir.
Ég sendi fjölskyldunni mínar
innilegustu samúðarkveðjur,
Þóroddur Bjarnason.
✝ Helga Laxdalfæddist í Sam-
komuhúsinu á Sval-
barðsströnd, S-
Þing., 18. apríl
1944. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 19. júlí
2018. Foreldrar
hennar voru Theo-
dór Laxdal, bóndi í
Túnsbergi á Sval-
barðsströnd, f. 27.
maí 1917, d. 2003, og kona hans,
Líney Sveinsdóttir húsfreyja, f.
20. júlí 1911, d. 1968. Bróðir
Helgu sammæðra var Jón Kára-
son f. 7. nóvember 1926, d. 2002.
Alsystkini hennar eru Freydís, f.
8. apríl 1941, d. 2016, Sveinberg,
f. 3. júlí 1942, Svavar Páll, f. 17.
desember 1945, Oddný, f. 18.
mars 1948, d. 1990, og Lilja f.
18. nóvember 1950. Dætur
Helgu eru 1. Hafdís Björk Lax-
dal, f. 30. mars 1962. Börn henn-
ar eru Kristín Helga Laxdal
Kristinsdóttir, f. 4. febrúar
1982, dóttir hennar er Andrea
Ósk, f. 10. maí 2002. Birgitta
Rós Laxdal, f. 6. júní 1992, dóttir
hennar er Aría
Ösp, f. 27. nóv-
ember 2015. Bjarki
Laxdal Baldursson,
f. 15. nóvember
1998. 2. Sigríður
Líney Lúðvíks-
dóttir, f. 18. sept-
ember 1968. Dætur
hennar eru Kristín
Sif Magnúsdóttir
Laxdal, f. 16. nóv-
ember 1994, og
Helga Sif Óskarsdóttir Laxdal,
f. 19. maí 2005. Á Svalbarðseyri
starfaði Helga á Símstöðinni,
fyrst við afleysingar en varð síð-
ar símstöðvarstjóri. Eftir að hún
flutti til Reykjavíkur starfaði
hún lengi við verslunarstörf,
m.a. í versluninni Rangá í Skipa-
sundi og Dalveri á Dalbraut.
Síðustu 23 ár starfaði hún hjá
Reykjavíkurborg, fyrst hjá Fé-
lagsþjónustunni í Síðumúla og
síðar í símaverinu í Borgartúni.
Hún lét af störfum 2013 vegna
aldurs.
Helga verður jarðsungin frá
Guðríðarkirkju í Grafarholti í
dag, þriðjudaginn 31. júlí, kl. 13.
Að kveðjustundu hefur klukkan tifað
og kyrrlát nóttin, hulið stjörnusýn.
Af djúpum harmi, klökkvi, brjóstum
bifað,
í bliki af tári, speglast ást til þín.
En vör sem titrar, bæn og tregi
hljóður
og tóm er kallar orðalaust til þín.
Er eftirsjá, í mildi blíðrar móður,
af minningum sem berast ótt til mín.
Hver mynd er ljóð, um yl frá
móðurbarmi,
hvert munabrot, er óður kærleikans,
og andvarp hljótt og angurdögg á
hvarmi
er endurkast af skini græðarans.
Í bergmálinu, magnast mjúkur kliður
með silfurstrengjum óma verkin þín.
Og ástúð þinni, kveðast
hljómakviður.
Hvíldu í friði, elsku mamma mín!
(Jóhann Jóhannsson)
Þín dóttir,
Sigríður (Sigga).
Elsku hjartans amma okkar.
Það er svo óraunverulegt að við
séum að kveðja þig í dag og að
þú sért farin frá okkur. Mikið
erum við þó þakklátar fyrir og
heppnar að hafa átt þig í lífi
okkar og fyrir allar þær stundir
sem við áttum saman. Við syst-
urnar vorum afskaplega nánar
henni ömmu Helgu og vorum
við miklar vinkonur. Oftar en
ekki fann maður lyktina af ný-
steiktum lummum eða fiskiboll-
um þegar við kíktum í heimsókn
en amma var alltaf dugleg að
bjóða okkur fjölskyldunni í mat,
sérstaklega þegar hún bjó fyrir
neðan okkur í Baughúsunum.
Ömmu fannst einnig alltaf
mikilvægt að við systurnar
myndum læra rétta orðanotkun
og vandaðan orðaforða og brást
skjótt við þegar hún heyrði okk-
ur tala rangt mál. Okkur fannst
þetta nú heldur mikil afskipta-
semi fyrir svona ungar stelpur
sem höfðu nú ekki mikinn
áhuga á þessu á þeim tíma. Í
dag erum við þó henni ömmu
ævinlega þakklátar fyrir þessa
afskiptasemi sína og átti hún
mikinn þátt í því að móta þær
sterku og sjálfstæðu manneskj-
ur sem við systurnar höfum að
geyma.
Hún amma var afskaplega já-
kvæð og lífsglöð manneskja þó
svo að veikindin hafi tekið sinn
toll síðustu árin. Alltaf var
nafna hennar, Helga Sif, þó
henni til staðar og mætti tvisv-
ar í viku eftir skóla til þess að
hjálpa henni með heimilisstörf-
in (fór á „vappið“) sem ömmu
þótti afar dýrmætt. Í lok dags
skrifaði nafna hennar dagbók-
arfærslu á Facebook ömmu
sinnar þar sem hún lýsti sínum
degi og skrifaði undir „Kveðja,
litla ráðskonan“. Þessar færslur
ásamt þessum stundum verða
Helgu Sif ómetanlegar. Amma
var afar nægjusöm kona og það
þurfti ekki mikið til þess að
gleðja hana. Hafði hún til dæm-
is miklar mætur á reglulegum
ferðum okkar á kaffihús bæj-
arins þar sem við gæddum okk-
ur á kaffi og croissant. Stund-
um treysti hún sér þó ekki út og
þá var ekki um annað að ræða
en að kaupa bakkelsi í bakarí-
inu og færa henni með kaffinu.
Amma var líka mikil áhuga-
manneskja um handbolta og
voru þau ófá skiptin sem hún og
Kristín Sif sátu saman í sjón-
varpsstólnum og horfðu á leiki
með tilheyrandi hjartsláttar-
truflunum vegna spennu.
Elsku amma, við lærðum svo
ótal margt af þér sem mun
fylgja okkur alla tíð og erum við
þér ævinlega þakklátar. Það er
svo gott að hugsa til baka og
rifja upp hvað þú varst alltaf
góð við okkur og vildir allt fyrir
okkur gera. Það voru forrétt-
indi að hafa átt þig sem ömmu.
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar fyrir okkur, það sem við
munum sakna þín mikið.
Umhyggju og ástúð þína okkur veittir
hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni
hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin
bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur var þitt
dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hvíldu í friði, elsku amma.
GGÞ.
Þínar ömmustelpur,
Kristín Sif og Helga Sif.
Helga Th. Laxdal
HINSTA KVEÐJA
Elsku sys, Hjartans þökk
fyrir allar okkar ljúfu
stundir. Góða ferð og skil-
aðu kveðju í sumarlandið.
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
Á meðan hjörtun mild og góð
minning örmum vefur
þá fær að hljóma lífsins ljóð
og lag sem tilgang hefur.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir
því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(Kristján Hreinsson.)
Lilla sys,
Lilja Laxdal.