Morgunblaðið - 31.07.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur komið sér vel að vera
gæddur hæfilegum skammti af þrjósku
þegar allir vilja kasta sinni ábyrgð yfir á
þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Vitur leiðbeinandi mun vísa þér leið
til drauma þinna og gæti meira að segja
verið tilbúin til að sinna þér sérstaklega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú mátt hafa þig allan við til að
leysa vandasamt verkefni sem þér er falið.
Varastu að flækja hluti þegar einfaldleikinn
er bestur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þar sem þú hefur lagt hart að þér
að undanförnu er nú kominn tími til að þú
dekrir svolítið við sjálfan þig og þína nán-
ustu. Lukkan eltir þig á röndum á næstu
misserum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt svo auðvelt með að fara þínu
fram, að þú þarft að gæta þess að ganga
ekki of nærri öðrum. Mundu að aðgát skal
höfð í nærveru sálar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er auðvelt að gagnrýna fólk úr
fjarlægð, sérstaklega þá sem hafa mikil
völd og virðast misnota þau. Ekki er alltaf
allt sem sýnist og oft eitthvað í gangi á
bak við tjöldin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt auðvelt með að hrífa fólk með
þér þessa dagana. Tíma með góðum vinum
er alltaf vel varið og þú átt að láta það eftir
þér í ríkara mæli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur tekið á að starfa
með öðrum. Sýndu sjálfum þér þá virðingu
að leita ekki annars en þess, sem þér eru
til visku og vaxtar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að berjast fyrir sjálf-
stæði þínu bæði heima fyrir og í vinnunni.
Taktu það til þín sem þú átt skilið og vertu
ekki of alvarlegur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að leita þér aðstoðar ef
þú ætlar ekki að drukkna í vinnu. Reyndu
að forðast alla árekstra við vinnufélaga
þína.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Orð þín hafa mikil áhrif og því
verður þú að gæta þess vel hvað þú lætur
út úr þér. Talaðu við fólk sem er á sömu
bylgjulengd og þú.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Leyfðu sköpunargáfu þinni að fá út-
rás og vertu hvergi hræddur við að sýna
þínum nánustu afraksturinn. Hæfileikum
þínum eru engin takmörk sett.
Sigurlín Hermannsdóttir skrifaðiá Leir að menn væru komnir á
kaf í eilífðarmálin. Best að bæta í
sarpinn:
Örskjótt líður ævin hjá
ellin svíður, köld og grá.
Dauðinn bíður, bregður ljá
burt hann sníður fölnuð strá.
Arnþór Helgason brást skjótt
við:
Bregst þér aldrei bogalistin,
betri vísur getur vart.
Heldur vex nú ljóðalystin,
lífið þó að reynist hart.
P.s.: Ekki er átt við harðlífi.
Gústi Mar skaut inn:
Hanga niður himintjöld
heimsins von er dáin.
Best hann vildi koma í kvöld
kallinn sá með ljáinn.
Skírnir Garðarsson leit yfir far-
inn veg á efri árum:
Marga fjöru mjög ég saup,
mín eru sporin víða,
oft menn slást við agg og raup,
eymsli, böl og kvíða.
Fía á Sandi var uppörvandi:
Sussu sussu.Ekkert liggur á.
Endalokin koma bara þegar þau
koma:
Þegar endar öl og sex
og ónýtt verður hold.
Upp af því ég veit að vex
vænsta tré úr mold.
Gott er ef ég greftrun fæ
ég glaða kveðju fengi.
Presturinn segði bæbæbæ
svo bæjuðu hinir lengi.
Kveðja barst að norðan frá Fíu á
Sandi:
Ef út í buskann æskufjörið allt er rokið
gleði, þraut og þörfum lokið
þá er víst í skjólin fokið.
Ingólfur Ómar kvað:
Ævi manns er ekkert grín
ennþá fæ að tóra.
Ellin gæti orðið fín
ef ég hætti að þjóra.
Ekki var við því að búast að Fíu
litist á þetta:
Auðvitað verður elli þung
eins og hroðaleg brekka.
Þú heldur ég verði aftur ung
ef ég hætti að drekka?
Og Gústa Mar ekki heldur:
Ölþreytan er ekkert grín
ósköp ljótt að heyra.
Ellin gæti orðið fín
ef ég drykki meira.
Kaupmaður á Húsavík atyrti
konu sína svo Skarða-Gísli heyrði.
Þá kvað hann:
Ég hef hlýtt á yðar tal
ei með sinni gljúpu;
oft hef ég gráan vitað val
vega að hvítri rjúpu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ævi manns er ekkert grín
„ÉG GAT EKKERT ANNAÐ GERT. HANN
RÁFAÐI Í SÍFELLU FRÁ SKRIFBORÐINU
SÍNU.“
„HANN ER FÍNN NÆSTA KLUKKUTÍMANN.
FÖRUM Í HÁDEGISMAT.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar vor er í lofti
allt árið um kring.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVÍLÍKUR
SÆTILÍUS!
HEY! ERTU HRIFNARI
AF HONUM EN
MÉR?
MEINARÐU
AKKÚRAT
NÚNA?
HRÓLFUR! ÞÚ ERT ALGJÖRLEGA
SAUÐDRUKKINN!!
AÐ SÖGN! VEL MÆLT,
LÖGMAÐUR!
Þó sumarið hafi ekki verið upp ámarga fiska sunnanmegin á land-
inu hefur Víkverji reynt að njóta þess
eftir fremsta megni. Sumarfríið var
nýtt í ferðalög til hlýrri landshluta og
þeim fáu sólardögum sem gefist hafa
í höfuðstaðnum hefur verið tekið
fagnandi. Eitt af þeim verkum sem
þægilegt er að sinna á frídögum,
meðfram hefðbundinni afslöppun, er
tiltekt í geymslum og skúrum.
x x x
Batnandi mönnum er best að lifa ogeitt af því sem Víkverji hefur sett
sér markmið um er að minnka akstur
og ganga meira. Víkverji vill vita-
skuld ekki láta sitt eftir liggja í að
vernda umhverfið og menga minna.
Það er hins vegar ekki hlaupið að því
að skila af sér dósum og flöskum til
endurvinnslu nema hafa til þess bíl.
x x x
Víkverji man þá tíð þegar dósa- ogflöskuvélar voru við matvöru-
verslanir og fólk gat nýtt ferðina í
búðina til að skila af sér. Þannig er
málum enn háttað í löndunum í kring-
um okkur og almenn sátt ríkir um
það fyrirkomulag. Það er enda ekki
mikil lógík í því að þurfa að ræsa bíl
með tilheyrandi mengun til þess að
skila af sér flöskum til endurvinnslu.
Að menga til að koma í veg fyrir
mengun. Það geta vart verið óyfir-
stíganlegar hindranir í vegi fyrir því
að settar séu upp móttökuvélar við
matvöruverslanir á ný. Óskandi væri
að þetta væri skoðað.
x x x
Annars réðst Víkverji í það þurfa-verk á dögunum að losa sig við
myndlykil frá Vodafone. Sjónvarps-
neysla heimilisins fer nú aðallega
fram í gegnum Netflix og aðrar
streymisveitur og því var þetta næsta
skref inn í framtíðina. Síðustu mánuði
hafði Víkverji borgað fasta upphæð
fyrir leigu á myndlykli sem lítið var
notaður. Og í þau fáu skipti sem það
henti fraus hann reglulega. Lífið
brosir því við Víkverja og það myndi
eflaust verða fullkomið ef Ríkis-
útvarpið setti fréttatíma sína reglu-
lega inn í appið. Það er nú lágmarks-
þjónusta og jafnvel lögbundin skylda
þessa fyrirtækis í almannaeigu.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, athvarf á degi neyð-
arinnar, hann annast þá sem leita
hælis hjá honum.
(Nahúm 1.7)
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds