Morgunblaðið - 31.07.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 31.07.2018, Síða 31
huggun,“ segir Patty um verk sín. Þau hafa tekið þátt í nokkrum samsýningum í Chicago auk þess sem Baldur hefur áður haldið einka- sýningu í Gallery Port, tvær einka- sýningar í Chicago og sú þriðja er væntanleg í nóvember. Á árunum áð- ur vann Patty sem hönnuður í San Fransiskó, en þar kynntust þau hjónin þegar Baldur stundaði nám í myndskreytingum og teikningu í Academy of Art, listaháskólanum þar í borg á árunum 2008 til 2011. „Eftir námið fluttumst við til Chi- cago til að vera nær fjölskyldu Patty, en reynum alltaf að vera á Íslandi á sumrin. Borgin er mjög barnvæn með mikið af görðum og opnum svæðum fyrir börn, en samt mjög vanmetin því fólk einblínir gjarnan á hana sem mikla glæpaborg,“ segir Baldur og lætur almennt vel af lífinu vestra. Þau hjónin eru samstiga í því að skiptast á að gæta bús og barna og vinna hvort að sínum verkum í sameiginlegri vinnustofu sinni „Drottinn blessi heimilið“ Þegar Baldur er spurður nánar út í innblástur og áhrifavalda, segist hann alltaf hafa verið svolítið skotinn í íslensku expressjónistunum. „Ég ólst upp með sjálfsmynd eftir Alfreð Flóka fyrir ofan rúmið mitt og átti það til að stara á hana klukkutímum saman,“ upplýsir hann. Og spurður um hvort listrænir hæfileikar séu í ættinni nefnir hann afa sinn Stein- grím heitinn Guðmundsson, sem málaði til dæmis myndina „Drottinn blessi heimilið“ og til voru eftirprent- anir af á mörgum heimilum í gamla daga. Undanfarið hefur Baldur fengist töluvert við myndskreytingar fyrir tímarit, til dæmis California Sunday Magazine, sem að hans sögn var val- ið tímarit ársins í Bandaríkjunum. Nýlega teiknaði hann tvær forsíður Chicago Reader og ekki alls fyrir löngu var hann fenginn sem gesta- listamaður fyrir sýndarveruleika- forritið „The Brush“ sem hannað er af Google. Mest þótti honum þó hlaupa á snærið hjá sér þegar hann fékk beiðni frá The New York Times um að myndskreyta grein um net- notkun barna og unglinga. „Þeir sáu teikningar mínar í California Sunday Magazine og höfðu samband,“ segir Baldur, sem vonast til að fá fleiri beiðnir úr sömu átt. „Að fá að teikna í The New York Times er „drauma- gigg“ teiknarans,“ bætir hann við. Sýningin Skemmtilegs stendur til 9. ágúst. Furðuleg fígúra Olíumálverk eftir Baldur, Vorkvöld í Reykjavík. „Draumagigg“ „Að fá að teikna í The New York Times er draumagigg teiknarans,“ segir Baldur, sem myndskreytti grein í blaðinu nýlega. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Guitar Islancio fagnar 20 ára starfs- afmæli í ár. Í tilefni þess verður dag- skrá víða um land út árið og hefst hún með tónleikum í Listasafni Sig- urjóns kvöld kl. 20.30. „Við förum um landið í haust og síðan verðum við með afmælistón- leika í haust og þá leika ýmsir gestir með okkur,“ segir Jón Rafnsson kontrabassaleikari, sem skipar tríó- ið ásamt gítaleikurunum Birni Thor- oddsen og Gunnari Þórðarsyni, sem eru einmitt að slá lokatóninn í æf- ingu fyrir kvöldið þegar blaðamaður hefur samband. Urðu strax vinsælir „Við stofnuðum bandið haustið 1998. Gunnar og Björn höfðu þá leik- ið heilmikið saman á ýmsum vett- vangi. Björn fékk þá hugmynd sem hann viðraði við Gunnar, að stofna svona tríó sem myndi leika gítar- útsetningar á íslenskum þjóðlögum. Ég var nýfluttur frá Akureyri þar sem ég hafði starfað í átta ár sem tónlistarmaður, og var svo heppinn að þeir buðu mér að vera með. Við urðum strax vinsælir og gáfum út plötu ári seinna, sem endaði í gull- sölu sem er einstakt fyrir svona instrúmental djassplötu,“ segir Jón, og bætir við að þeir hafi alltaf haldið sig við íslensku þjóðlögin. „Við erum einmitt að dusta rykið af þeim núna á æfingunni til þess að hafa þetta allt pottþétt. Það hefur samt ýmislegt annað slæðst inn á prógrammið á þessum 20 árum, alls- konar lög, bæði djassstandardar og popplög. Það er t.d skemmtileg út- setning af laginu hans Stevie Won- der, „Sir Duke“, sem datt inn fljót- lega á ferlinum og hefur fylgt okkur síðan. Sömuleiðis lagið „Nuages“ eftir Django Reinhardt sem verður einmitt á dagskránni í kvöld, en hans hljómur kom fljótlega í tríóið. Stund- um bresta Gunnar og Björn í söng ef þeim finnst orðið of mikið instrú- mental. Þannig að tríóið er alltaf að taka pínu breytingum í hljómi en við höldum okkur alltaf við þjóðlögin og þær útsetningar.“ Fólk lygnir aftur augum „Við fórum fljótlega að spila út um allan heim. Við höfum leikið í Kína og í tvígang farið til Japan og gefið út plötu þar. Einnig á tónlistarhá- tíðum um öll Bandaríkin, Kanada og Evrópu. Við gáfum út eina plötu í Kanada. Þá tókum við uppáhalds- lögin okkar af fyrstu þremur plöt- unum og lékum þau inn aftur með vestur-íslenska trompetleikaranum Richard Gillis.“ Jón segir að það sem áheyrendur í útlöndum fíli mest við tónlistina þeirra sé þessi sérstaki hljómur og svo lögin sjálf. „Þessi þjóðlög eru ofsalega falleg, og lög eins og „Vísur Vatnsenda-Rósu“, „Guð gaf mér eyra“, „Krummi svaf í klettagjá“, „Sofðu unga ástin mín“ eru alltaf vinsæl. Stundum sér maður að fólk lygnir aftur augunum og er að hlusta á eitthvað sem það hefur aldrei heyrt áður.“ Útgáfa á afmælisárinu Tónleikarnir í kvöld eru þeir einu í Reykjavík sem bara tríóið verður að spila, og alla vega helmingur lag- anna verða þau þjóðlög sem hafa verið vinsælust með þeim og mest spiluð. „Svo vorum við einmitt að dusta rykið af lagi sem við höfum ekki spilað í 10-15 ár, „Ólafur Lilju- rós“, það verður mjög gaman að spila það aftur.“ Hann segir október líkast til þann mánuð sem tríóið mun bregða undir sig betri fætinum og fara út á land að spila. „Af tilefni afmælisársins ætlum við líka að gefa út bók í haust með útsetningum okkur við 24 íslensk þjóðlög. Svo er aldrei að vita nema það detti inn ein plata fyrir jólin. Jafnvel LP plata, þær eru orðnar svo vinsælar aftur,“ segir Jón Rafns- son kontrabassaleikari sem vill sjá sem flesta á tónleikunum í kvöld. Höldum okkur alltaf við þjóðlögin  20 ára starfsafmæli Guitar Islancio  Tónleikar í kvöld og víða um land Ljósmynd/Ari Svavarsson Þríeykið Jón, Björn og Gunnar hafa spilað saman í 20 ár í Guitar Islancio.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.